Eyjan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Snúnir samningar sem leysa ekki klípu Íslands

Mynd
Mynd
Mynd

Sú grundvallarbreyting hefur orðið á utanríkisstefnu Bandaríkjanna að þau semja ekki lengur við aðrar þjóðir á grundvelli vestrænna gilda, heldur ekki á grundvelli hugmynda um fríverslun og alls ekki á grundvelli alþjóðlegra leikreglna. Aflsmunir eru eina lögmálið sem þau virða.

Eftir heimsókn Rubios utanríkisráðherra Bandaríkjanna á dögunum liggur nú fyrir að ríkisstjórnin ætlar í viðræður um möguleika á efnahagslegri samvinnu við Trump-stjórnina á þessum nýja grundvelli. Þær eru að sönnu óhjákvæmilegar við ríkjandi aðstæður, en þeim fylgir áhætta.

Samningsmarkmið of áhættusöm

Að baki þjóðaratkvæðagreiðslunni lágu skýr samningsmarkmið, sem Alþingi samþykkti, eins og eðlilegt er í samningum, sem hafa umtalsverða þýðingu. Í þessu tilviki eru aftur á móti engin samningsmarkmið uppi á borðum.

Trúlega þykir það of áhættusamt því reikna verður með að endurgjaldskröfur Trump-stjórnarinnar verði alltaf tvöfalt þyngri á metunum.

Þetta sýnir að Ísland er í klípu í viðræðum af þessu tagi. Hún er meiri en ella af því að við höfum ekki tryggt okkur pólitískt bakland í samstarfi þeirra þjóða, sem standa vörð um vestræn gildi og fríverslun.

Gáfu stjórnarandstöðunni vilyrði fyrir þjóðaratkvæði

Stjórnarandstöðuflokkarnir tefldu fram fríverslunarsamningi við Bandaríkin sem kosti á móti fullri aðild að Evrópusambandinu.

Í samtali við Morgunblaðið síðasta laugardag upplýsir formaður Sjálfstæðisflokksins að bandarísk stjórnvöld hefðu á fundum í Washington fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna gefið henni og forystu flokksins  vilyrði fyrir fríverslunarsamningi, sem hún segist trúa enn á. Það lýsir áköfum trúarhita í ljósi afneitunar Rubios.

Nýlunda er að stjórnvöld í Bandaríkjunum eigi í slíkum samningaviðræðum við stjórnarandstöðuflokka í öðrum löndum. Hin hliðin á nýjum stjórnarháttum af þessum toga er vanvirðing gagnvart lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum.

Ríkisstjórn Íslands er ekki ein um að vera í þessari stöðu. Ríkisstjórn Þýskalands hefur til að mynda áður fundið fyrir slíkri framgöngu gagnvart öfga hægri flokknum AfD.

Sviku stjórnarandstöðuna eftir þjóðaratkvæðagreiðslu

Það athyglisverða er að þessi samskipti stjórnarandstöðunnar og fulltrúa Trump-stjórnarinnar eiga sér stað á sama tíma og þjóðaratkvæðið fer fram. Það lítur út eins og afskipti af íslenskum innanríkismálum.

En svo gerist það öfugsnúna:

Um leið og þjóðaratkvæðagreiðslan er afstaðin kemur Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn. Hann nýtti hana fyrst og fremst til að kippa stoðunum undan grundvelli nýju utanríkisstefnu stjórnarandstöðuflokkanna með því að vísa tillögum þeirra um fríverslun í stað tolla- og fríverslunarsamvinnu við Evrópu út í hafsauga.

Þetta sýnir að jafnvel stjórnarandstaðan getur ekki treyst því, sem fram kemur í viðræðum við fulltrúa Trump-stjórnarinnar. En þar rær stjórnarandstaðan ekki ein á báti. Reynsla flestra annarra er sú sama.

Baksvið viðræðna

Hér þarf að hafa nokkur atriði á baksviðinu í huga:

  • Ísland hefur ekkert pólitískt bakland eins og Danmörk og Grænland höfðu í nýlegum samningum.
  • Það hvernig bandarísk stjórnvöld spiluðu með stjórnarandstöðuna fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðslu sýnir hversu mikilvægt það er fyrir Ísland að hafa traust land undir fótum áður en haldið ef af stað.
  • Ósk Rubios um að draga íslenskar auðlindir inn í viðræður um efnahagssamvinnu þarf ekki að vera hættuleg en á samt að kveikja  aðvörunarljós. Í þeim efnum þarf að ræða fyrir fram hvar rauðu strikin liggja.
  • Ríkisstjórn Kanada upplýsti þjóðina þegar í stað þegar henni þótti sem kröfur Trump-stjórnarinnar gengju of nærri fullveldi landsins. Mikilvægt er að hafa þau viðmið klár.
  • Rubio dró hvorki kortið með Íslandi í bandarísku fánalitunum til baka í heimsókninni né þá ósk Trumps til fyrri ríkisstjórnar að Ísland íhugaði að gerast fylki í Bandaríkjunum. Báðar þessar ögranir standa því eða liggja í besta falli í dvala þrátt fyrir mótmæli Íslands. Viðræðurnar fara fram í þeim skugga.

Gegn íslenskum hagsmunum og utanríkisstefnu

Í þessu samhengi má nefna að Rubio hefur krafist þess að Ísland og önnur ríki, sem njóta herverndar Bandaríkjanna, afneiti Alþjóða glæpadómstólnum.

Í raun er þetta spurning um hvort Ísland sé tilbúið að kaupa herverndina því verði að taka þátt í því að afnema alþjóðareglur um stríðsglæpi. Það er ósk um gjörbreytingu á íslenskri utanríkisstefnu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur áður hafnað slíkum hugmyndum. Það staðfestir að ríkisstjórnin stendur fast á utanríkispólitískum prinsippum þrátt fyrir snúna hagsmunastöðu gagnvart Trump-stjórninni. Hér virðast stjórnarandstöðuflokkarnir hins vegar opnir fyrir því að gefa eftir.

Fyrr á þessu ári stakk Trump-stjórnin Ísland og gömlu vestrænu bandalagsríkin í bakið með aðgerðum, sem lokuðu að miklu leyti á olíuflutninga frá Mið-Austurlöndum. Ísland eins og önnur vestræn ríki hefur af þeim sökum orðið fyrir efnahagslegu tjóni. Nú stingur hún þau aftur í bakið með olíukaupasamningi við Rússland, sem auðveldar Pútín að halda styrjöldinni í Evrópu áfram.

Af þessu má ráða að Ísland er að tala við allt annars konar Bandaríki en áður var. En utanríkisráðherra hefur staðið fast með beinum hagsmunum Íslands og samstarfsríkjanna í Evrópu. Hins vegar virðast stjórnarandstöðuflokkarnir halla sér nær sérhagsmunamati Trump-stjórnarinnar.

Tálsýn sem leysir ekki þá klípu sem ísland er í utan tollabandalags

Hugmynd stjórnarandstöðunnar um Bandaríkin í stað Evrópu var og er tálsýn, sem leysir ekki þá klípu sem Ísland er í utan tollabandalags í alheims tollastríði. Það er veruleiki, sem þjóðin þarf að horfast í augu við.

Stefna stjórnarandstöðuflokkanna verður svo enn fjarstæðukenndari þegar í ljós er komið að Trump-stjórnin var að spila með forystumenn þeirra í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Það viðfangsefni að tryggja viðskiptalegt öryggi landsins og fá aðild að samtryggingarákvæði þeirra þjóða, sem verja vestræn gildi og frjálsa verslun, er enn óleyst.

Á einn veg eða annan þarf þó að leysa það verkefni. En sú lausn er ekki á dagskrá í þessum viðræðum og rúmast ekki þar vegna gjörólíkrar hugmyndafræði.