Þegar ég var tólf ára fékk ég vinnu í gamalli og góðri byggingarvöruverzlun, og já, hún var skrifuð með zetu. Í búðinni voru tvö verkfæri sem mótuðu hugsun mína meira en flestir skólar: gamall tommustokkur og vélræn reiknivél þar sem maður sneri sveif og færði handvirkt á milli tuga.
Þessi tæki gáfu mér ekki svörin á silfurfati. Til að nota reiknivélina varð ég að skilja tugakerfið. Til að mæla timbrið með tommustokknum varð ég að skynja rýmið. Áður en ég vissi af var ég orðinn fljótur í hugarreikningi og kominn með líkamlega tilfinningu fyrir lengd, flatarmáli og rúmmáli. Þegar ég lagði frá mér tommustokkinn og gekk út úr búðinni var ég hæfari en þegar ég gekk inn.
Rúmum fimmtíu árum síðar stöndum við frammi fyrir mestu tæknibyltingu sögunnar. Spurningin sem brennur á mér er þessi: Erum við að smíða verkfæri sem auka greind mannsins, eða vélar sem gera okkur háðari því að láta aðra hugsa fyrir okkur?
Spunagreindin og beislið
Við skulum ekki gera lítið úr gervigreindinni. Nýjustu líkön heims, á borð við Gemini 4 Argon frá Google og nýjustu kerfi OpenAI, eru þegar farin að hjálpa vísindamönnum að uppgötva nýja hluti, skrifa flókinn hugbúnað og leysa verkefni sem áður tóku marga mánuði.
En þrátt fyrir þetta mikla afl er þetta í grunninn spunagreind (generative AI). Hún er líkindavél sem vinnur úr mynstrum og táknum. Einmitt vegna aflsins þurfum við að gæta að beislinu: hvernig við hemjum vélina, tengjum hana við traustar heimildir og prófum niðurstöðurnar. Því öflugri sem vélin verður, þeim mun meira skiptir að við getum sannreynt það sem hún gerir.
Þegar vélin svarar, hver sannreynir?
Nýlegt dæmi úr æðri stærðfræði sýnir þetta í hnotskurn. Í september tilkynnti OpenAI að gervigreindarkerfi fyrirtækisins hefði leyst eina útgáfu hinnar frægu þrautar um jöfnur Naviers og Stokes, sem lýsa hreyfingu vökva. Þrautin er ein af sjö þúsaldarþrautum Clay stofnunarinnar og útgáfan sem OpenAI leysti er sú þar sem ytri krafti er beitt á vökvann. Clay stofnunin sagði að þrautin virtist leyst, þótt formlegu mati sé ólokið. Sönnunin var að auki þýdd yfir í sönnunarforritið Lean, sem samþykkti hana.
Í október birtu þrír stærðfræðingar, tveir við Cambridge háskóla og einn við King's College í London, grein sem ber heitið Navier-Stokes lost in translation. Þeir sýndu að sönnunin sem Lean samþykkti samsvaraði ekki að öllu leyti röksemdafærslunni í skriflegu greininni. Í einu milliskrefinu krafðist Lean útgáfan fimm afleiða umfram það sem leitað var að, þar sem skriflega sönnunin taldi fjórar duga. Tölvan sannaði með öðrum orðum veikari milliniðurstöðu en textinn hélt fram.
Höfundarnir segja ekki að niðurstaða OpenAI sé röng, og OpenAI segist ætla að laga villur í skriflegu sönnuninni eftir því sem þær finnast. En dæmið sýnir að jafnvel þegar vélin fær grænt ljós frá tölvu er ekki tryggt að hún hafi sannað nákvæmlega það sem sagt var á mannamáli. Rétt niðurstaða, rétt sönnun og rétt túlkun eru þrír ólíkir hlutir. Þarna liggur mergurinn málsins. Við þurfum ekki aðeins öflugri spunagreind heldur betra beisli, óháða sannprófun og fólk sem skilur hvað vélin er raunverulega að gera.
Hættan á að missa eigin færni
David Krakauer, sem rannsakar flókin kerfi við Santa Fe stofnunina í Bandaríkjunum, gerir í nýlegri grein greinarmun á tvenns konar verkfærum. Uppfyllandi verkfæri (complementary tools) skila færni til notandans, færni sem situr eftir þegar verkfærið er tekið burt. Samkeppnisverkfæri (competitive tools) gera notandann háðari því meira sem hann notar þau, og geta hans án verkfærisins dvínar.
Tommustokkurinn var uppfyllandi verkfæri. Hann mældi ekki timbrið fyrir mig, hann kenndi mér að mæla. Reiknivélin losaði mig ekki undan því að skilja tölurnar, hún hjálpaði mér að vinna með þær. Gervigreindin getur hins vegar skilað fullbúnu svari án þess að ég hafi skilið eitt einasta skref á leiðinni. Þar liggur hættan. Ekki í því að vélin sé of gáfuð, heldur í því að við hættum að þjálfa eigin dómgreind.
Mannsheilinn er nefnilega ekki aðeins reiknivél. Hann er 20 vatta líffræðilegt undur, hluti af lifandi líkama sem lærir með skynjun, hreyfingu, reynslu og samskiptum við umhverfið. Við vitum ekki hvort gervigreind geti nokkurn tímann öðlast sambærilega reynslu. En við vitum að hæfileikinn til að gefa sannfærandi svar er ekki sá sami og hæfileikinn til að tryggja að svarið sé rétt.
Gufuvélin, kolin og Alvitur
Það má líkja gervigreind nútímans við gufuvél sem vinnur afl úr þekkingarkolum mannkynsins, á sama tíma og gagnaver heimsins kalla á sífellt meiri raforku. En til að gufuvél skili öruggu afli þarf ekki aðeins góð kol, heldur líka góða vél, vandaða stýringu og nákvæm mælitæki.
Þegar ég hóf að smíða Alvitur.is í febrúar síðastliðnum var markmiðið ekki að búa til enn eina vél sem svarar öllum spurningum heimsins. Ég vildi kanna hvernig hægt væri að smíða trausta umgjörð utan um spunagreind: tengja hana við áreiðanlegar heimildir, vernda gögn og tryggja að maðurinn héldi stjórninni þar sem ábyrgðin skiptir mestu. Það er beislið. Ekki ein tæknilausn, heldur samspil gagna, prófana, öryggisreglna og mannlegrar dómgreindar.
Þegar ég var tólf ára kenndi tommustokkurinn mér að mæla og reiknivélin kenndi mér að skilja tölur. Verkfærin gerðu mig hæfari. Nú höfum við smíðað vélar sem gera margt betur og hraðar en við sjálf. Það er stórkostlegt tækifæri en líka mikil ábyrgð.
Spurningin er ekki hvort gervigreindin verði öflugri. Það verður hún. Spurningin er hvort við verðum hæfari með henni eða hvort við hættum smám saman að hugsa sjálf. Framtíðin ræðst ekki aðeins af því hversu góðar vélarnar verða, heldur af því hversu góð við verðum í að nota þær.
Þess vegna þurfum við beislið. Og þess vegna megum við aldrei leggja frá okkur tommustokkinn í eigin huga.
Höfundur er stofnandi Alvitur.is og starfar að þróun og stefnumótun á sviði gervigreindar.