Seltjarnarnesbær tapaði 521 milljón króna á A-hluta rekstrarins fyrstu sex mánuði þessa árs samkvæmt árshlutauppgjöri sem afgreitt var á fundi bæjarstjórnar nýlega. Þetta er talsvert meira tap en allt árið í fyrra sem þó var talin afleit útkoma. Skuldasöfnun á fyrri hluta ársins nam 880 milljónum króna og nú eru heildarskuldir Seltjarnarnesbæjar komnar í 9,5 milljarða króna. Öll rauð ljós blikka varðandi rekstur bæjarins sem lengi hefur verið slæmur en sennilega aldrei sem nú.
Sjálfstæðismenn hafa verið í meirihluta bæjarstjórnarinnar alla tíð og nú þarf enginn að velkjast í vafa um „rekstrarsnilli“ flokksmanna sem hafa einir fengið að ráða. Sjálfstæðismenn hafa mjög gagnrýnt fjármál sumra sveitarfélaga, ekki síst Reykjavíkurborgar, þar sem þeir hafa lítið komið að stjórn síðustu 30 árin, þar til á þessu ári. Þeir býsnuðust yfir því að borgin hafi tapað í A-hluta 3,2 milljörðum króna fyrstu 6 mánuði þessa árs.
Orðið á götunni er að setji menn fjárhæðir í samhengi þá blasi við þessi mynd: Íbúar Seltjarnarness eru 4.700. Íbúar Reykjavíkur eru 147.000 eða 31 sinnum fleiri en íbúar Seltjarnarness. Þannig samsvarar tap Seltjarnarness 16 milljörðum miðað við íbúafjölda Reykjavíkur. En tapið á A-hluta í borginni nam 3,2 milljörðum sem þótti ekki gott og var gagnrýnt harkalega af Sjálfstæðisflokknum! Samkvæmt upplýsingum sem birtar hafa verið um afkomu sveitarfélaganna að undanförnu eru öll stærri sveitarfélög rekin með tapi en enginn með eins skelfilegu tapi og Seltjarnarnes. Útkoman var einnig vond í Hafnarfirði en þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn ráðið mestu hin síðari ár.
Minnihlutinn í bæjarstjórn Seltjarnarness hefur bent á að þessi útkoma sé víðs fjarri þeirri fjárhagsáætlun sem samþykkt var fyrir árið 2026 og lýst yfir áhyggjum. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum fylgist innviðaráðuneytið með fjármálum sveitarfélaga og getur gripið inn í ef horfur eru á að sveitarfélag sé ekki gjaldfært og geti siglt í fjárhagslegt strand. Þá getur ráðuneytið tekið stjórn sveitarfélagsins yfir – eins og til dæmis gerðist hjá Álftanesbæ fyrir nokkrum árum en þá voru ráðin tekin af bæjarstjórninni og bænum sett utanaðkomandi yfirstjórn fjármála.
Orðið á götunni er að það yrði meiriháttar hneisa ef til inngrips þyrfti að koma á Seltjarnarnesi þar sem meðaltekjur fólks hafa verið með því hæsta á landinu um áratuga skeið og útsvör því hlutfallslega há. Að vísu hafa Sjálfstæðismenn þumbast við að halda útsvarsprósentu heldur lægri en nágrannasveitarfélögin til að geta gortað af því. Árangurinn er meðal annars þessi hrikalega skuldasöfnun en fleira kemur vafalaust til eins og sleifarlag í rekstri og ómarkvissar fjárfestingar bæjarins frá síðustu aldamótum.
Bæjarstjórinn Þór Sigurgeirsson er meðal annars gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert bæjarstjórn fyrr grein fyrir þessari hörmulegu stöðu og gripið til aðgerða. Hann kennir verðbólgu og fjármagnsgjöldum um ásamt lífeyrisskuldbindingum. Það eru aumar afsakanir því öll sveitarfélög, smá og stór, eru að fást við það sama í þeim efnum en ná miklum mun betri árangri en Seltjarnarnes sem skrapar botninn þegar litið er á afkomuna í hlutfalli við íbúafjölda.
Orðið á götunni er að mörgum skattgreiðendum á Seltjarnarnesi blöskri að bæjarstjórinn og oddviti Sjálfstæðisflokksins skuli bjóða upp á það fyrirkomulag að eiginkona hans, María Björk Óskarsdóttir, gegni stjórnunarstarfi hjá bænum og sé næstráðandi bæjarstjórans þar sem þau munu þiggja 5 milljónir króna á mánuði í starfskjör, 60 milljónir á ári – 240 milljónir á yfirstandandi kjörtímabili að óbreyttu, með þessa skelfilegu stöðu rekstrar og skulda. Þetta þykir óviðeigandi og þekkist ekki hjá öðrum sveitarfélögum.