Eyjan

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Upplýsingaóreiða um upplýsingaóreiðu

Mynd
Mynd

Það voru vafalaust einhverjir sem sáu pósta á samfélagsmiðlum síðustu daga um árásir Úkraínumanna á bottaverksmiðju í Rússlandi. Sagan var sannfærandi. Úkraína réðst á gagnaver rússneska tæknirisans Yandex. Í kjölfarið hrundi netumferð frá fyrirtækinu og samfélagsmiðlar virtust skyndilega rólegri. Færri ummæli, minni áróður, færri reikningar sem virtust hafa það eitt að markmiði að sá sundrungu og ýta undir pólitíska skautun á Vesturlöndum.

Það var því freistandi að álykta að Úkraína hefði ekki aðeins hitt gagnaver heldur einnig tekist að eyðileggja áróðursvél Kremlverja. En þegar gögnin voru skoðuð nánar reyndist sagan ekki alveg svona einföld. Við höfum hér upplifað ákveðna upplýsingaóreiðu um upplýsingaóreiðu.

Hvað segja gögnin?

Þegar rykið er sest og gögnin skoðuð kemur í ljós að tölurnar sem virtust vera í lóðréttu falli eftir árásina mældu sjálfvirka netumferð frá Yandex, meðal annars umferð leitarvélabotta sem fara um netið til að safna upplýsingum fyrir leitarvélina. Gögnin sýndu ekki að rússneskum áróðursreikningum hefðu fækkað.

Árásirnar á gagnaverin og röskun á starfsemi Yandex eru raunverulegar. En það sannar ekki að þær hafi þaggað niður í áróðursreikningunum. Myndrit sem fór víða um netið var ekki að mæla það.

Samt dreifðist sú saga eins og eldur í sinu. Kannski var sagan of góð til að sleppa henni. Kannski langaði okkur að trúa henni.

Sagan sem við vildum trúa

Rússar hafa um árabil beitt skipulögðum upplýsinga- og áhrifaherferðum til að hafa áhrif á lýðræðisríki. Gervireikningar sem þykjast vera venjulegt fólk og ýta undir deilur og skapa þá tilfinningu að ákveðnar skoðanir séu útbreiddari en þær kannski eru í raun og veru.

Í júlí 2024 greindi bandaríska dómsmálaráðuneytið frá aðgerðum gegn rússneskri bottaverksmiðju sem notaði gervigreind til að búa til falska reikninga á X. Nærri þúsund reikningar voru rannsakaðir í aðgerðinni. Aðgangarnir virtust tilheyra raunverulegu fólki og dreifa skoðunum í samræmi við markmið rússneskra stjórnvalda. Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands sagði um síðustu helgi að hann hefði fengið það staðfest að Rússland hefði haft afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslunni um Brexit árið 2016.

Áhyggjurnar eru því réttmætar. Upplýsingaóreiða er raunveruleg ógn við lýðræðislega umræðu. En þegar upplýsingar virðast staðfesta það sem við höfum lengi talið satt, erum við kannski fljót að álykta.

Það eru vafalaust margir sem bíða eftir því að áróðursvélar Kremlverja verði afhjúpaðar. Ég held líka að það séu margir sem vilja að lýðræðisríki finni leiðir til að verjast erlendum afskiptum. Þegar það koma síðan fram fréttir um að slíkt sé að takast er auðvitað freistandi að taka undir, deila og fagna. En þá er kannski tími til kominn að staldra við.

Það er nefnilega ekki nóg að upplýsingar styðji málstað sem við teljum réttan. Þær þurfa að vera réttar.

Enginn er ónæmur

En þegar upplýsingar falla nákvæmlega að okkar heimsmynd er hætt við að við gerum það sama og við gagnrýnum aðra fyrir. Við tökum þeim fagnandi, deilum áfram og hjálpum við að dreifa þeim til enn fleiri. Þannig getur röng túlkun orðið á svipstundu að pólitískri staðreynd. Þegar leiðréttingin kemur fram er hún sjaldan jafn spennandi og upphaflega sagan. Dópamín-rússið er yfirstaðið.

Það er því auðvelt að átta sig á því hvor fær meiri dreifingu. Upplýsingaóreiðan eða leiðréttingin. Vandinn felst ekki aðeins í þeim sem búa til rangar upplýsingar. Hann felst líka í umhverfi sem umbunar hröð og sterk viðbrögð. Við erum ekki aðeins áhorfendur. Við erum þátttakendur.

Sannleikurinn

Þessi heimsmynd snýst ekki bara um kapphlaup stórvelda í að fanga athygli okkar. Lýðræði þarfnast upplýsinga sem standast skoðun. Við verðum að gera sömu kröfur hvort sem þær styðja okkar eigin málstað eða andstæðinga okkar.

Ef við fordæmum áróður þegar hann kemur frá málstað sem okkur mislíkar en lítum fram hjá ónákvæmni þegar hann gagnast okkar eigin málstað, þá höfum við svikið sannleikann. Við erum að velja okkur þægilega útgáfu af honum.

Það er ekki veikleikamerki að viðurkenna mistök. Við þurfum að geta sagt: „Ég deildi þessu vegna þess að ég taldi það satt. Ég skoðaði málið betur. Það reyndist ekki rétt og ég leiðrétti það.“

Hér verða samfélagsmiðlafyrirtækin líka að axla ábyrgð á kerfum sem dreifa efni áður en það hefur verið sannreynt. Við þurfum að efla miðlalæsi og spyrja okkur hvaðan gögn koma. Hvað þau sýna í raun og hvað það er sem við vitum ekki. Við munum líklega ekki útrýma lygum af Internetinu eða koma í veg fyrir allar tilraunir erlendra ríkja til að hafa áhrif á umræðuna. En við getum öll staldrað við áður en við deilum, kannað heimildir og leiðrétt okkur þegar við höfum rangt fyrir okkur.

Lýðræðið veikist ekki aðeins þegar einhver lýgur að okkur. Það veikist líka þegar við hættum að gera kröfu um að það sem við deilum sé satt.