Eyjan

Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar

Mynd

Þeir sem halda að eitthvert fullveldisafsal felist í því að innleiða bókun 35 virðast misskilja málið illa. Andstaðan byggist á misskilningi. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Mig langar til að koma að tvennu. Það er svona farið að styttast í annan endann hjá okkur. Mig langar aðeins að koma inn á að nú var þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst þar sem var fellt, ekki með miklum mun en það var fellt, að taka aftur upp og halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Breytti það einhverju varðandi það hversu mikilvægt það er að innleiða bókun 35 með réttum hætti? Hafði það einhver áhrif eða skipti það bara engu máli? Við þurfum að gera þetta hvort eð er.

„Við þurfum að gera það hvort eð er. En það kannski breytir því að við tökum ákvörðun um að við ætlum að halda okkur við þetta EES-samstarf. Ég get ekki lesið niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar með öðrum hætti.“

Það var enginn sem talaði á móti EES-samningnum í þeirri baráttu.

„Nei. Og við segjum: Heyrðu, við ætlum að halda okkur við EES-samstarfið. Það skiptir þá máli að uppfylla skuldbindingar sínar samkvæmt því samstarfi. Þannig að ég sé í raun og veru kannski ekki að þjóðaratkvæðagreiðslan sem slík hafi neitt með þetta að gera. Þetta snýst bara um, eins og ég segi, réttindi og réttindamissi.“

Já, já, og það náttúrlega blasir við að við erum þá ekki að fá ,allavega ekki að sinni, við erum þá ekki að fá aðildarsamning að ESB og eins og þú bendir á, það er áfram EES-samningurinn og við verðum þá að uppfylla þann samning.

„Já, það verðum við að gera. Það er oft verið að láta að því liggja að þetta séu einhverjar kröfur frá Brussel og kröfur frá hinu illa ESB sem ætli einhvern veginn að taka yfir allt og allt. Þetta snýst ekkert um það, bókun 35. Þetta er innanlandsmálefni sem snýst um réttindi borgaranna í þessu landi sem eru ekki nægilega tryggð í lögum í dag. Það er það sem bókun 35 snýst um. Hún snýst ekki um fullveldisframsal eða alþjóðasamstarf eða neitt slíkt. Hún snýst um það að tryggja fólki þau réttindi sem það á.“

Þú komst nú ansi nálægt þessum síðasta punkti sem ég ætla að koma inn á. Þær raddir hafa heyrst meðal þeirra sem eru mótfallnir innleiðingu bókunar 35 að innleiðing eða lögfesting sé með einhverjum hætti fullveldisafsal og gangi þess vegna gegn íslensku stjórnarskránni. Hver er þín skoðun á slíkum málflutningi?

„Ég held hann hljóti bara að byggjast á misskilningi. Ég held að það hljóti bara að vera að menn hoppi alltaf yfir orðið „innleiddar“ og fari beint í að EES-reglur skuli njóta forgangs. Allavega finnst mér framsetningin vera oft þannig að við ætlum ekki að láta einhverja í Evrópu segja okkur fyrir verkum og þeir ákveði lögin og svo framvegis. Við erum að tala um innleiddar EES-reglur. Þannig að þetta eru þá gerðir sem eru búnar að fara svo marga hringi í stjórnkerfinu, búnar að fara fyrir utanríkismálanefnd áður en að þær fara fyrir sameiginlegu EES-nefndina.

Síðan er búið að taka þær upp í samninginn. Síðan er þingsályktunartillaga samþykkt um að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Síðan er innleiðingarfrumvarp þannig að þetta er búið að fara marga hringi áður en þetta verður að íslenskum lögum. Þetta er bara spurningin um hvernig ætlum við að ákveða forgang þegar að reglur skarast á og ég bara, ég get ekki séð fyrir mitt litla líf hvernig það getur verið stjórnarskrárbrot vegna þess að eru þá, ja, við erum nú með lögskýringarreglur úr Rómarétti, lex specialis og lex posterior, svo eitthvað sé nefnt. Eru það þá ekki einhverjar erlendar reglur sem brjóta í bága við stjórnarskrá?

Stjórnarskráin er ekki með ákvæði um lögskýringaraðferðir. Það eru meginreglur sem að hafa að mestu til verið ólögfestar. Síðan erum við stundum með ákvæði í lögum sem segja að einhver lög gangi framar einhverjum öðrum lögum, hvort sem það er vegna EES-skuldbindinga eða bara alls ekki.“

Ef ég skil frumvarpið rétt þá er forgangsreglan innleidd en það er sérstaklega tekið fram: nema Alþingi kveði sérstaklega á um annað. Alþingi þarf þá að samþykkja sérstök lög þar sem kemur fram að þau lög gangi framar innleiddum EES- tilskipunum.

„Já, það má kannski segja að með þessu er verið að gera þá kröfu til löggjafans að ef hann ætli sér að brjóta gegn þjóðréttarskuldbindingu, hann ætli sér að brjóta gegn EES-samningnum að þá segi hann það berum orðum þannig að það þurfi enginn að velkjast í vafa um þann vilja. Og er það ekki bara allt í lagi?“

Það er bara allt í lagi. Það er svona, það er auðvitað næsti leikur áður en við, áður en við segjum upp þessum EES-samningi, af okkar hálfu, er það ekki?

„Jú, það er ákveðin áhætta sem fylgir því að taka meðvitaða ákvörðun um að brjóta gegn samningnum og menn hljóta að gera það þá að yfirlögðu ráði. En í raun og veru er þetta til þess að hnykkja á að það er náttúrlega ekki verið að framselja lagasetningarvald. Í raun og veru er það þannig að Alþingi setur lög og svo getur það bara næsta dag sett önnur lög. Alþingi getur ákveðið að brjóta í bága við EES-samninginn hvort sem að það stendur í einhverju ákvæði eða ekki. En það er verið að hnykkja á því að það sé þá skýrt og það sé skýrt fyrir dómendur og það sé skýrt, ekki síst fyrir þá sem að hljóta þá einhvern réttindamissi.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.