Fjörutíu árum eftir sögulegan fund Reagans og Gorbatsjovs í Höfða stöndum við aftur frammi fyrir heimi þar sem stríð, ótti og vígbúnaður ógna lífi og framtíð milljóna manna. Við þekkjum afleiðingar stríðs allt of vel. Nú er tímabært að spyrja hvort við séum að gera nóg til að fyrirbyggja átök og skapa varanlegan frið. Þar geta Íslendingar lagt meira af mörkum en stærð þjóðarinnar gefur til kynna.
Friðurinn er ekki sjálfgefinn
Hvaða skilyrði viljum við skapa fyrir börn okkar og barnabörn? Að þau geti lifað öruggu og hamingjuríku lífi, notið frelsis, menntunar og tækifæra til að láta drauma sína rætast.
Allt þetta byggist á einni grunnforsendu góðs lífs: FRIÐI.
Friðurinn er grunnurinn að hamingju.
Við þurfum ekki að horfa langt til að sjá hvað gerist þegar ófriður ríkir. Í Úkraínu, Mið-Austurlöndum, Súdan og víðar hafa milljónir manna misst heimili sín, ástvini og öryggi. Börn alast upp við sprengingar og missi ástvina, í stað leikja og skólagöngu. Fjölskyldur sundrast og samfélög eru lögð í rúst.
Áhrifin ná langt út fyrir átakasvæðin. Við finnum öll fyrir stríðunum með einum eða öðrum hætti. Þau hafa áhrif á efnahag, verðlag, viðskipti og öryggi þjóða. Þau skapa ótta og óvissu um framtíðina.
Þess vegna er friður ekki aðeins verkefni þeirra sem búa á stríðssvæðum. Hann er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra.
En þá vaknar áleitin spurning: Hvers vegna leggjum við ekki enn meiri kraft í að koma í veg fyrir stríð, í stað þess að bregðast fyrst við þegar afleiðingar stríðsins eru orðnar að veruleika?
Höfðafundurinn – þegar leiðtogar þorðu að hugsa öðruvísi
Fyrir fjörutíu árum, dagana 11. og 12. október 1986, hittust Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, í Höfða í Reykjavík.
Heimurinn var þá í skugga kalda stríðsins. Stórveldin höfðu safnað kjarnorkuvopnum sem gátu valdið ólýsanlegri eyðileggingu.
Þessir tveir leiðtogar voru andstæðingar. Þeir höfðu ólíka hugmyndafræði, ólíka hagsmuni og djúpstætt vantraust ríkti milli ríkja þeirra. Samt settust þeir niður og ræddu möguleika á stórfelldri fækkun kjarnorkuvopna, jafnvel útrýmingu þeirra.
Þeir náðu ekki samkomulagi í Reykjavík. En samtalið varð mikilvægur áfangi í þeirri þróun sem leiddi til sögulegra afvopnunarsamninga og síðar loka kalda stríðsins.
Höfðafundurinn kennir okkur að það er hægt að breyta stefnu sögunnar þegar leiðtogar hafa hugrekki til að ræða við andstæðinga sína og setja sameiginlega framtíð ofar skammtímahagsmunum.
Við getum dregið þrjá mikilvæga lærdóma af fundinum.
Í fyrsta lagi verður að halda samtalinu opnu, jafnvel þegar ágreiningurinn er mikill. Samtal við andstæðing þýðir ekki að við samþykkjum gjörðir hans.
Í öðru lagi þurfa leiðtogar að hafa skýra framtíðarsýn og hugrekki til að breyta um stefnu þegar þess gerist þörf.
Í þriðja lagi þurfa góð áform að leiða til raunverulegra samninga, skuldbindinga og árangurs.
Við megum þó ekki vera barnaleg. Varanlegur friður verður að byggjast á virðingu fyrir fullveldi þjóða, alþjóðalögum og mannréttindum. Hann verður ekki tryggður með því að láta undan yfirgangi eða svipta þjóðir rétti sínum til sjálfsvarnar. En öflugar varnir og markviss friðarstefna þurfa ekki að vera andstæður. Þvert á móti eiga þær að styðja hvor aðra.
Erum við að fyrirbyggja stríð eða aðeins bregðast við þeim?
Í dag verja ríki heims gríðarlegum fjármunum til hermála. Hluti þess er nauðsynlegur til að tryggja sjálfstæði og öryggi þjóða. En við hljótum jafnframt að spyrja hvort nægilega miklum fjármunum, þekkingu og pólitískri orku sé varið til að koma í veg fyrir að stríð hefjist.
Hér finnst mér skorta meiri langtímahugsun og markvissa stefnumótun.
Í vel reknum fyrirtækjum og opinberum stofnunum er lögð áhersla á áhættugreiningu, forvarnir, skýr markmið og árangursmat. Við reynum að greina vandann áður en hann verður að áfalli.
Hvers vegna ættum við ekki að gera sambærilegar kröfur til alþjóðlegs friðarstarfs?
Við þurfum að efla samskipti milli stórvelda, styrkja alþjóðlega sáttamiðlun, greina hættu á átökum fyrr og endurvekja viðræður um takmörkun kjarnorkuvopna.
Við þurfum einnig að horfast í augu við nýjar hættur sem fylgja gervigreind, sjálfvirkum vopnakerfum og vaxandi samkeppni stórveldanna.
Við þurfum einnig að mæla árangurinn. Ekki aðeins telja fundi og yfirlýsingar, heldur meta hvort tekist hafi að koma í veg fyrir átök, vernda mannslíf og byggja upp traust.
Friðarstarf á að vera eitt mikilvægasta forgangsverkefni alþjóðasamfélagsins, ekki aðeins viðbragð þegar stríð er hafið.
Ísland getur lagt meira af mörkum – en hver ætlar að taka frumkvæðið?
Við Íslendingar höfum ástæðu til að vera stolt af því að Höfðafundurinn fór fram hér á landi. En við megum ekki láta nægja að minnast hans á merkisafmælum. Við eigum að spyrja hvernig við getum nýtt þessa sögulegu reynslu til framtíðar.
Ísland er lítið land án eigin hers. Við ráðum ekki ákvörðunum stórveldanna. En við höfum ýmsa styrkleika sem geta nýst í alþjóðlegu friðarstarfi.
Við höfum sterka lýðræðishefð, reynslu af alþjóðlegu samstarfi, þekkingu á jafnréttismálum og sögulega sérstöðu sem vettvangur mikilvægra viðræðna.
Við höfum líka öflugt háskólasamfélag og Höfða friðarsetur, sem þegar vinnur að því að efla þekkingu og umræðu um frið og alþjóðlegt öryggi.
Í tilefni af 40 ára afmæli Höfðafundarins hefur Halla Tómasdóttir forseti Íslands jafnframt lagt áherslu á mikilvægi samtals, trausts og ábyrgðar í forystu. Hún hefur bent á að öryggi snúist ekki eingöngu um hernaðarmátt heldur einnig um mannlega innviði og traust innan samfélaga.
Halla býr yfir víðtækri alþjóðlegri reynslu og tengslaneti sem gæti nýst Íslandi vel í slíku verkefni.
En það er ekki forseta Íslands að ákveða nýja utanríkisstefnu fyrir þjóðina. Sú ábyrgð liggur hjá ríkisstjórninni og Alþingi.
Það eru stjórnvöld sem þurfa að taka frumkvæðið, móta framtíðarsýnina og ákveða hvort Ísland eigi að leggja aukna áherslu á alþjóðlegt friðarstarf.
Telji stjórnvöld slíkt verkefni mikilvægt væri eðlilegt að þau leituðu samstarfs við forseta Íslands og nýttu þá reynslu, tengsl og möguleika sem forsetaembættið getur lagt til.
Þarna liggur tækifæri sem við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara.
Höfði 2035 – íslenskt frumkvæði að friði
Ég legg til að ríkisstjórn Íslands taki frumkvæði að því að móti langtímaverkefni sem mætti nefna Höfði 2035 – íslenskt frumkvæði til friðar og öryggis.
Markmiðið væri að nýta arfleifð höfðafundarins til að efla raunhæft alþjóðlegt samstarf um frið, sáttamiðlun og forvarnir gegn átökum.
Við þurfum ekki að byrja á því að stofna nýja stofnun eða byggja upp umfangsmikið stjórnkerfi. Við eigum fyrst að nýta þá þekkingu og starfsemi sem þegar er til staðar og efla samstarf við alþjóðlega aðila.
Ég tel að verkefnið ætti að hafa þrjú meginmarkmið.
- Í fyrsta lagi að efla Reykjavík sem alþjóðlegan vettvang samtals og sáttamiðlunar. Ísland gæti boðið upp á aðstöðu og stuðning við óformlegar viðræður þegar aðilar í deilum vilja kanna möguleika á lausnum.
- Í öðru lagi að efla rannsóknir, þekkingu og samstarf um forvarnir gegn stríði. Þar gætu háskólarnir, Höfði friðarsetur og erlendir samstarfsaðilar gegnt lykilhlutverki.
- Í þriðja lagi að nýta íslenska reynslu af jafnrétti, lýðræði og samfélagslegu trausti til að efla þátttöku kvenna og ungs fólks í friðaruppbyggingu.
Þetta þarf að vera raunhæft verkefni með skýrri ábyrgð, afmarkaðri fjármögnun og mælanlegum markmiðum.
Við gætum sett okkur það markmið að fyrir árið 2030 hefðu fyrstu áþreifanlegu niðurstöðurnar náðst, til dæmis með nýjum alþjóðlegum samstarfsverkefnum, virkri þátttöku Íslands í sáttamiðlun og þróun aðferða til að fyrirbyggja átök.
Höfði gæti þannig orðið meira en sögulegt tákn. Hann gæti orðið lifandi vettvangur framtíðarstarfs.
Áskorun til ríkisstjórnar og Alþingis
Nú þegar fjörutíu ár eru liðin frá Höfðafundinum vil ég beina skýrri áskorun til ríkisstjórnar Íslands og Alþingis.
Hvers vegna setjum við okkur ekki það markmið að Ísland verði á næstu tíu árum einn af öflugasti alþjóðlegi vettvangur friðarsamtals og sáttamiðlunar?
Ég legg til að ríkisstjórnin feli utanríkisráðuneytinu að leiða undirbúning slíks verkefnis í samstarfi við Alþingi, forsetaembættið, Reykjavíkurborg, háskólana og aðra lykilaðila.
Fyrstu tillögur gætu legið fyrir innan sex mánaða.
Þar yrði lagt mat á hvar Ísland getur raunverulega skipt máli, hvaða samstarfsaðilar gætu tekið þátt, hver kostnaðurinn yrði og hvernig mæla mætti árangurinn.
Slíkt frumkvæði ætti að njóta sem víðtækastrar samstöðu á Alþingi. Friður og öryggi komandi kynslóða eiga ekki að vera flokkapólitískt bitbein.
Hér er ekki verið að kalla eftir stórum fjárútlátum án undirbúnings. Þvert á móti er verið að kalla eftir faglegri stefnumótun, forgangsröðun og skýrri ákvörðun um hvað Ísland vill leggja af mörkum.
Það er hlutverk stjórnmálaleiðtoga að hafa framtíðarsýn, taka ákvarðanir og skapa forsendur fyrir árangri.
Við eigum ekki aðeins að spyrja hvað stórveldin geti gert fyrir heimsfriðinn. Við eigum líka að spyrja hvað við Íslendingar getum gert.
Friðurinn byrjar líka hjá okkur sjálfum
Þótt ábyrgð þjóðarleiðtoga sé mikil berum við öll ábyrgð á þeirri friðarmenningu sem við sköpum. Friðurinn verður ekki aðeins til á fundum þjóðarleiðtoga. Hann byrjar líka í samskiptum okkar hvert við annað.
Hvernig tölum við saman þegar við erum ósammála? Kennum við börnunum okkar að leysa ágreining með virðingu og án þess að farið sé í manninn? Ræktum við góðvild, umburðarlyndi og skilning á ábyrgð okkar á að skapa gott samfélag?
Við þurfum öll að leggja okkar af mörkum.
Friður felur ekki í sér að allir séu sammála. Hann felur í sér að við getum verið ósammála án þess að grípa til óvildar eða ofbeldis. Þannig tengist friðurinn líka því hvernig við ræktum eigið líf, fjölskyldur okkar og samfélagið allt.
Við getum ekki ein og sér stöðvað stríð heimsins. En við getum hvert og eitt stuðlað að meiri friði í okkar eigin umhverfi og stutt við þá sem vinna að friði milli þjóða.
Hvað ætlum við að skilja eftir fyrir næstu kynslóðir?
Fyrir fjörutíu árum sýndu Reagan og Gorbatsjov að jafnvel andstæðingar sem höfðu safnað ógnvænlegum vopnabúrum gátu sest niður og rætt nýja framtíð. Þeir sýndu að breytingar eru mögulegar, jafnvel þegar staðan virðist vonlaus.
Í dag þurfum við aftur leiðtoga sem þora að horfa lengra en til næstu átaka, næstu kosninga eða næstu hernaðaráætlunar.
Við þurfum leiðtoga sem skilja að ein mikilvægasta skylda stjórnmálanna er að tryggja fólki öryggi, frelsi og möguleika á góðu og hamingjuríku lífi.
Við eigum ekki að sætta okkur við að stríð og mannlegar hörmungar séu óhjákvæmilegur hluti framtíðarinnar. Við Íslendingar eigum ekki að vanmeta möguleika okkar til að hafa áhrif.
Friðurinn er grunnurinn að hamingju. Hann er forsenda þess að börn geti alist upp við öryggi, fjölskyldur dafnað og samfélög skapað betri framtíð.
Þess vegna eigum við öll að gera það sem í okkar valdi stendur til að stuðla að friði.
En við eigum líka að gera kröfur til þeirra sem fara með völdin.
Látum 40 ára afmæli Höfðafundarins verða meira en hátíðlega upprifjun. Látum það verða upphaf aðgerða.
Þá erum við að gera okkar til að auka líkur á hamingju barna okkar og komandi kynslóða.
Höfundur er formaður Öldungaráðs Viðreisnar, viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um að friður ríki og kennir Qigong – lifsraekt.is