Eyjan

Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga

Mynd

Það er einkennilegt að þingmenn á Alþingi Íslendinga vilji taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum til að verja það að Íslendingar búi við skert réttindi samanborið við aðra íbúa á Evrópska efnahagssvæðinu. Auk þess liggur fyrir með dómum Hæstaréttar Íslands að Ísland hefur ekki innleitt bókun 35 með réttum hætti og hefur þannig brotið EES-samninginn. Málið sem ESA hefur höfðað gegn Íslandi vegna samningsbrots er því fyrir fram tapað. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

„Það var kannski eðlilegt að menn aðeins svona biðu og sæju hvernig málið myndi þróast en þó getur maður nú svo sem alveg sagt sér að frá því að rökstutt álit kemur frá ESA þá eiga menn svo sem alveg að vita hvernig staðan er og enda náttúrlega var frumvarpið fyrst lagt fram í tíð fyrri ríkisstjórnar, var fyrst lagt fram 2023.“

Jú, jú. Og nú náttúrlega, nú er þetta frumvarp komið aftur fram, búið að mæla fyrir því. Og fyrsta umræða heldur væntanlega áfram einhverja næstu daga. En það hefur líka gerst að ESA er búið að höfða mál gegn Íslandi vegna vanefnda eða vegna þess að við höfum ekki innleitt bókun 35 með réttum hætti.

„Já, þetta eru svokölluð samningsbrotamál sem ESA höfðar nú gegn Íslandi reglulega vegna þess að við erum mjög oft of sein í innleiðingum. Þá brjótum við gegn þessari fortakslausu skyldu um að innleiða hérna sem er, eins og ég nefndi áðan, okkar beinu réttaráhrif.

Þannig að það að ESA höfði mál í þessu tilviki er ósköp eðlilegt. ESA er búin að leggja fram rökstutt álit. Það er búið að bregðast við því með því að reyna að koma frumvarpi í gegnum þingið. Það hefur ekki tekist og þá er næsta skref að höfða mál. Hins vegar þá er náttúrlega betri bragur af því, finnst mér, að Alþingi bara klári þetta mál svo að það þurfi ekki að fjalla um það frekar í EFTA-dómstólnum.“

Já, ég verð nú að taka undir það með þér. Og þetta er náttúrlega grundvallarmál, þetta snýst einfaldlega um það að færa okkur sem hér búum sömu réttindi og aðrir á Evrópska efnahagssvæðinu ganga að vísum.

„Já og svo held ég sé líka kannski allt í lagi að nefna varðandi þessa málsókn ESA að ég hef aðeins tekið eftir því í umræðunni að menn séu pínulítið að misskilja hvað myndi koma út úr slíkum málarekstri. Það sem að kemur út úr slíkum málarekstri er: Hefur Ísland brotið gegn skuldbindingum sínum, já eða nei? Það kemur ekki hvernig á Ísland að innleiða þetta, með hvaða hætti og svo framvegis. Menn hafa verið að segja: Já, það er betra að taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum af því þá fáum við álit dómstólsins.

Álit dómstólsins er bara afmarkað við stefnuna eins og hún er sett fram. Þannig að EFTA-dómstóllinn er ekki að fara að segja: Heyrðu, það verður að gera þetta svona eða hinsegin, þetta er í lagi, ekki í lagi. Það er aldrei að fara að koma úr þessum málarekstri þannig að mér fyndist nú kannski svolítið vel í lagt að fara þessa leið, að fara með málið alla leið í gegnum EFTA-dómstólnum og standa svo bara í sömu sporum.“

Þú ert að segja, ef ég skil þig rétt, að það er nákvæmlega engin ástæða til þess að stoppa málið og bíða eftir niðurstöðu EFTA-dómstólsins.

„Nei, ég get ekki séð það og þá vísa ég bara til fjöldans alls af samningsbrotamálum sem að hafa komið til kasta EFTA-dómstólsins. Jú, jú, ugglaust getur dómstóllinn kannski sagt eitthvað í forsendum sínum en niðurstaðan er annaðhvort er stefna ESA samþykkt eða henni synjað. Og það er þá formúleringin hjá ESA sem er dómsorðið. Það er bara, Ísland hefur brotið í bága við skuldbindingar sínar með því að innleiða ekki bókun 35, það er ekkert meira.“

ESA þarf þá væntanlega ekki nema bara að leggja fram tvo, þrjá hæstaréttardóma frá Íslandi þar sem Hæstiréttur Íslands kveinkar sér undan því eða bendir á að það sé ekki búið að innleiða þessa forgangsreglu.

„Já, ég myndi ætla það ætti að duga og ég myndi líka ætla að það yrði mjög snúið fyrir ríkið að segja, heyrðu, nei, nei, þetta er bara rugl í Hæstarétti. Þannig að ég sé ekki alveg sko hvernig málsvörnin ætti að vera.

Ég verð að vera hreinskilin með það að það liggur fyrir að það er þessi bókun og hún var samþykkt í árdaga samningsins og hún gefur þér þetta svigrúm og skuldbindur þig til þess að setja, ef þörf krefur, lagaákvæði um þessa forgangsreglu. Svo ertu með dóma sem segja: Heyrðu, við erum ekki með þessa forgangsreglu. Getum þess vegna ekki veitt þennan forgang. Þannig að ég átta mig ekki alveg á þegar menn eru svona vígreifir að ætla að taka til fullra varna. Ég átta mig ekki alveg á í hverju ættu þær varnir að felast. Aftur, það sem er í raun og veru sko skrýtnast í þessu máli er að á endanum snýst þetta um réttindamissi. Og að það skuli vera einhver áköf krafa alþingismanna um að viðhalda réttindamissi, það á ég svolítið erfitt með að skilja.

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.