Kona þarf á þjónustu sérgreinalæknis að halda. Læknar sömu sérgreinar hafa tilhneigingu til að hópa sig saman undir einu þaki, sem er í sjálfur sér skiljanlegt því þannig geta þeir samnýtt búnað og starfsfólk. Konan hringdi í eitt af þessum læknahúsum til að panta tíma. Þá var hún upplýst um það að tímapantanir væru aðeins afgreiddar síðasta miðvikudag hvers mánaðar. OK, konan settist við símann að morgni 30. september og þá er henni tilkynnt að hún sé númer 76 í röðinni! Konan ákveður að þrauka og tæpum klukkutíma síðar nær hún í gegn en er þá upplýst um að því miður sé allt uppbókað, en henni velkomið að reyna aftur síðasta miðvikudag í október varðandi mögulega lausa tíma í náinni framtíð.
Las nýverið pistil eftir Kolbrúnu Baldursdóttur, þingmann Flokks fólksins, þar sem hún ræðir langa bið eftir augnsteinaaðgerðum, meðalbiðtími 80 vikur. Las svo grein eftir Huldu Brá Magnadóttur, heila- og taugaskurðlækni, um biðlista eftir hryggjaraðgerðum. Hún telur að til að halda í horfinu þurfi að gera 30 slíkar aðgerðir á mánuði, en SÍ hefur ákveðið að greiða ekki fyrir nema 10 og biðlistinn bara lengist. Þar á bæ virðist enginn kunna ábatagreiningu. Var einhver að tala um örorkubætur? En þær eru hjá TR og koma SÍ því ekki við.
Bæði Kolbrún og Hulda Brá benda á þá augljósu staðreynd að aðstaða og geta er til staðar til að stytta þessa biðlista og aðra, en einhverra hluta vegna hafa heilbrigðisyfirvöld ekki séð ástæðu til að nýta sér hana til fulls, betra sé að stefna sem flestum á ríkissjúkrahúsið, sem annar engan veginn öllum þessum verkefnum. Maður fær það á tilfinninguna að sumir stjórnmálamenn haldi að aðgerðir á ríkissjúkrahúsinu kosti ekkert og depla ekki auga þegar sjúklingum er flogið utan til aðgerða, en sé aðgerð gerð hér á landi, úti í bæ, kosti hún himinháar fjárhæðir og einhverjir læknar kannski að maka krókinn. Geti einhver ekki beðið lengur eftir að fá bót meina sinna og treystir sér ekki í langa dvöl á erlendri sjúkrastofnun, þarf sá hinn sami að greiða fyrir þjónustu úti í bæ úr eigin vasa. Það er e.t.v. það sem að heilbrigðisyfirvöld eru að stíla inn á, þessi aðferðarfræði styttir biðlista án þess að til komi kostnaðarauki fyrir ríkissjóð?
Kona á tíræðisaldri óskar eftir að komast á hjúkrunarheimili. Eftir að hafa sent inn umsókn og beðið í nokkra mánuði kemur loks grænt ljós frá því furðulega fyrirbæri færni-og heilsumatsnefnd. Konan lendir á biðlista eftir plássi, en er ekki í röð, því samkvæmt þessari ágætu nefnd er henni úthlutaður sk. þyngdarstuðull, en komi annar gamlingi inn á biðlistann á eftir henni, með hærri þyngdarstuðul, fer sá fram fyrir konuna í röðinni. Eftir að hafa beðið á biðlistanum í ár verður gömlu konunni að orði: Eftir hverju er verið að bíða, að ég drepist?
Þessi biðlista kúltúr er okkur til vansa: valkvæðar aðgerðir, fráflæðisvandi, þyngdarstuðull, mannekla o.s.frv. Ef við beittum sömu hugmyndaauðgi og útsjónarsemi við að eyða biðlistunum eins og að gefa ástæðum og afleiðingum þeirra nafn, yrði þetta vandamál brátt úr sögunni. Það mætti e.t.v. byrja á að ákvarða þyngdarstuðul heilbrigðiskerfisins?
Bestu kveðjur úr óbærilegum léttleika tilverunnar.