Eyjan

Orðið á götunni: Klofin verkalýðshreyfing – Sólveig Anna tapsár

Mynd

Þær Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hafa löngum eldað grátt silfur saman. Þær eru formenn tveggja stærstu verkalýðsfélaga landsins, félaga sem saman eru með um helming allra þeirra sem eru félagsmenn í verkalýðsfélögum.

Orðið á götunni er að Sólveig Anna hafi komið nokkuð á óvart á þessu ári, þyki rólegri og yfirvegaðri en oft áður, en hún hefur gjarnan verið talin með herskáustu verkalýðsleiðtogum. Á þessu ári hefur hún hins vegar breytt nokkuð um stíl. Hún fór í „makeover“ og birtist sem glamúrgella í helgarviðtali hjá Morgunblaðinu. Næst birtist hún brosandi við hlið Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, og Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra SA og núverandi fasteignamógúls, á stofnfundi „Áfram Ísland“ sem barðist fyrir því að Íslendingar fengju alls ekki að sjá hvort aðildarsamningur að ESB gæti linað þjáningar íslensks launafólks sem býr við hæstu vexti á byggðu bóli þar sem ekki beinlínis geisar vopnað stríð.

Sólveig Anna sagði við það tækifæri að allt væri svo gott hér á Íslandi, þar með talin kjör skjólstæðinga hennar, að hrein fásinna væri að skoða hvað gæti falist í aðild að ESB. Já og amen sögðu Halldór Benjamín og Ólafur Ragnar.

Það næsta sem sást af Sólveigu Önnu var að hún tók skælbrosandi í hönd Bjarna Benediktssonar við það tækifæri að Efling og breiðfylkingin svonefnda sömdu um áframhaldandi kjarasamninga án kjarabóta við Samtök atvinnulífsins.

Orðið á götunni er að þetta sé allt önnur og friðsælli Sólveig Anna en hingað til hefur verið á ferli.

En viti menn. Gamla góða herskáa Sólveig Anna leyndist þarna undir yfirborðinu eftir allt saman.

VR og fagfélögin voru ekki til í að semja með Eflingu og breiðfylkingunni. Þau vildu fá ítarlegri útfærslur á hlutunum því oft getur það nú verið útfærslan sem ræður úrslitum frekar en almenna viljayfirlýsingin hver afraksturinn af tilteknum aðgerðum verður.

Á elleftu stundu var gengið frá samningum milli SA og VR og fagfélaganna og í tvo heila sólarhringa sat Halla ein að allri athygli fjölmiðla og hreinlega baðaði sig í sviðsljósinu, enda þykir henni það ekki leiðinlegt; gæti jafnvel verið sjálfstætt markmið í sjálfu sér.

Þetta var of mikið fyrir Sólveigu Önnu. Hún varð gersamlega tryllt yfir því að Halla vann keppni þeirra tveggja um athyglina. Enginn hrósaði Sólveigu Önnu fyrir að hafa verið þæg og góð og samið án þess að vera með stæla. Enginn talaði við hana á meðan myndir og viðtöl við Höllu Gunnarsdóttur lögðu undir sig fréttir og heilu fréttatímana.

Við þetta bættist svo vikunni verður kosinn nýr forseti ASÍ. Við blasir að frambjóðandi úr einu fagfélaganna sem var í samfloti með Höllu og VR í nýafstaðinni samningalotu er langsigurstranglegastur og frambjóðandi Sólveigar Önnu er ekki talinn eiga séns. Þetta er kornið sem fyllir mælinn hjá Sólveigu Önnu. Langhundur í Facebookfærslu frá henni úthúðar Höllu Gunnarsdóttur og ljóst er að verkalýðshreyfingin er klofin í herðar niður, ekki vegna mikils málefnaágreinings heldur vegna persónulegrar athygliskeppni þar sem einni þykir á sig hallað.

Orðið á götunni er að Sólveig Anna geti þó huggað sig við að þrátt fyrir mótbyr innan verkalýðshreyfingarinnar á hún ævarandi vináttu og hollustu Ólafs Ragnars Grímssonar og Halldórs Benjamíns Þorbergssonar vísa. Eins og allir vita eru þeir vinir vina sinna og láta eigin hagsmuni ekki standa þar í vegi.