Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og franskir miðlar eru uppfullir af greiningum á ástandinu. Skrif Emmanuelle Hénin í Figaro í liðinni viku vöktu athygli mína en hún er prófessor í samanburðarbókmenntum við Sorbonne-háskóla í París. Að baki ruglingslegum vígorðum í mótmælum ungs fólks megi greina óróleika kynslóðar sem skynji óljóst að hún hafi verið svikin um menntun. Og það snúist ekkert um fjárveitingar til skólanna — sem aukist hafa stöðugt og nemi 64 milljörðum evra á þessu ári — heldur hinu að þrátt fyrir að nemendur verji tólf þúsund klukkustundum á skólabekk, frá leikskóla fram til stúdentsprófs, þá öðlist þeir ekki lengur nauðsynlega lágmarksþekkingu í tungumálinu, rökfræði og reikningi. PISA-kannanir hafi staðfest menntahrun og þess sjáist greinileg merki á illa stafsettum og klúðurslega orðuðum áletrunum á mótmælaskiltum. Hénin tilfærir dæmi um ýmis afkáraleg vígorð sem séu til merkis um alvarlegan skort á málfærni og skorti menn þekkingu á eigin móðurmáli séu þeir trauðla færir um að tjá flóknar tilfinningar. Þá er hætt við að þeir taki að líta á hvers kyns mótlæti sem árás á sig sem þurfi að bregðast við með ofbeldi og spellvirkjum.
Menntahnignunin
Hénin vísar í pistlinum til bókar Madeleine de Jessey L‘École des illettrés (eða Skólinn fyrir ólæsa) en Jessey er doktor í klassískum fræðum. Þar kemur fram að milli áranna 1968 og 2022 var kennslustundum í móðurmáli fækkað um 522 sem jafngildir heilum tveimur árum. Þá var ýmsum árangursríkum og þaulreyndum aðferðum við lestrar- og málfræðikennslu varpað fyrir róða, aðferðum sem gert höfðu milljónum ungra Frakka kleift að tileinka sér sameiginlega menningu þjóðarinnar og ná árangri í lífi og starfi.
Í staðinn var innleidd stefna sem kennd var við jafnrétti sem skyldi hafa það að markmiði að berjast gegn forréttindum á grundvelli „erfða“ eins og það var kallað (fr. „héritiers“). Þessi svokallaða jafnréttisstefna hefur að mati Hénin ekki aðeins stöðvað félagslegan hreyfanleika í Frakklandi heldur sömuleiðis gert þjóðina arflausa í menningarlegum skilningi.
Þá séu kennarar úrræðalausir gagnvart stórum hluta nemenda sem skorti með öllu félagsfærni. Hénin nefnir í greininni dæmi um unga konu sem lokið hafði nýverið prófi í klassískum bókmenntum með láði en á lokaprófi varð hún að geta þýtt Voltaire á hvort tveggja latínu og grísku. Þessi hámenntaða kona var skipaður menntaskólakennari og stendur í ströngu við það í kennslustundum að koma í veg fyrir að nemendur hennar rísi stöðugt á fætur, gyrði niður um sig buxurnar eða sláist hver við annan.
Hénin segir menntahnignunina hafa leitt af sér fáfræði sem næri lýðskrumara þar sem beitt sé slagorðum á borð við að útrýma verði kynþáttafordómum, feðraveldi og kapítalisma. En þetta sé í reynd allt innantómt orðagjálfur.
Þjóðfélag á fallanda fæti
Þá bendir hún á þær sláandi andstæður sem birst hafi á dögunum: annars vegar þegar ungir kaþólikkar fögnuðu Leó páfa XIV á Ódáinsvöllum og Stade de France og hins vegar þegar annarrar og þriðju kynslóðar innflytjendur lýstu almennri gremju sinni með því að kveikja í bifreiðum og mölva gler í búðargluggum. Skrílslætin og skemmdarverkin stafi þó ekki eingöngu ólæsi heldur einnig skorti á tilgangi. Þar sem þetta fólk geti ekki deilt ást á franskri ættjörð, menningararfi eða einhverjum helgum gildum, sameinist það í fyrirlitningu á frönsku samfélagi.
Unga fólkið geri sér grein fyrir því að það sé um margt óviðbúið að takast á við viðfangsefni framtíðar. Foreldrar hafi skirrst við að fræða börn sín, skólarnir svikist um að rækta með nemendum skilning á sameiginlegri arfleifð, stjórnmálamenn vanrækt þær skyldur að verja skólana fyrir ágangi markaðsafla og lýðskrum um jafnrétti komið í veg fyrir að ræktaðir yrðu afburðarmenn.
Hénin segir öfgafólk á vinstrivængnum sjá sér hag í að kynda undir upplausninni (þar er líka sú hugsun ráðandi að málvöndun og sameiginleg arfleifð Frakka megi sín einskis). Hún hvetur aftur á móti skynsama borgara til að íhuga í þessu sambandi orð skáldsins Charles Péguy sem benti í upphafi tuttugustu aldar á það ástand sem við sjáum nú komið fram af fullum þunga: þjóðfélag sem getur ekki menntað borgarana því það blygðast sín fyrir eigin arfleifð. Og þjóðfélag sem menntar ekki borgarana metur ekki sjálft sig mikils. Það er þjóðfélag á fallanda fæti.
Hugleysingjar við völd
Til þess að geta tekist á við hvers kyns vanda þarf nefnilega að horfast í augu við hann. Stundum var Péguy líkt við spámann — hann væri postuli sinnar samtíðar en hann lést í orrustunni við Marne í upphafi ófriðarins mikla. Hann lét eitt sinn þau ummæli falla að sá sem vissi hið sanna en þyldi það ekki upp hástöfum gerðist meðsekur lygurum og svikurum. Við getum rétt ímyndað okkur öll þau óhæfuverk sem menn hafa framið af eintómu hugleysi og gegn betri vitund því þeir óttuðust að þykja ekki nógu framsæknir og frjálslyndir í augum samborgara. Öld hugleysingjans þarf að renna sitt skeið.