Eyjan

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa

Mynd
Mynd/Stjórnarráðið
Mynd

Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, hingað til lands hefði átt að kalla á jákvæð viðbrögð hjá fólkinu yst til hægri í íslenskum stjórnmálum. Svo varð þó ekki. Fýlan lak af sumum þeirra. Hver bar ábyrgð á því? Jú, enn eina ferðina tókst Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að koma þessum einstaklingum úr jafnvægi og skapa verulegan óróa í sálarlífi þeirra. Þeim finnst röng manneskja gegna starfi utanríkisráðherra Íslands. Það fór berlega óstjórnlega í taugarnar á þeim að það skyldi koma í hlut Þorgerðar Katrínar að taka á móti Rubio. Þeim finnst hún alls ekki verðug þess að ræða við svo merkilegan mann. 

Æsta hægri fólkið – þar á meðal eru þingmenn stjórnarandstöðunnar, pistlahöfundar og þekktir sjálfskipaðir álitsgjafar – hefur haft mörg og stór orð um að Þorgerður Katrín sé sek um að reyna að skaða samskipti þessara tveggja þjóða, Bandaríkjanna og Íslands. Ekki var að sjá á Rubio að hann teldi Þorgerði Katrínu sitja á svikráðum. Það lá virkilega vel á Rubio á fundi þeirra en tuðararnir flokka það trúlega sem uppgerð. Telja óhugsandi að hann kunni bara ágætlega við Þorgerði Katrínu.

Þrátt fyrir einstaklega erfiðan forseta í Hvíta húsinu hefur ekkert breyst á áberandi hátt í samskiptum Bandaríkjanna og Íslands. Þau eru í góðu lagi, svona eins og getur verið þegar maður eins og Donald Trump er í Hvíta húsinu. Vera hans þar hefur haft áhrif á samskipti Bandaríkjanna við fjölmörg lönd og gjörðir hans hafa skiljanlega valdið uppnámi. Einhverjir ráðamenn heims telja auðveldustu leiðina til að eiga samskipti við Trump að smjaðra sem mest fyrir honum. Svo eru aðrir sem leggja sig fram við að láta samskiptin ganga án þess að bugta sig og beygja fyrir dyntóttum, hégómlegum og ráðríkum forseta. Það er þakkarvert að íslenskir ráðamenn hafa ekki kosið hina aumkunarverðu smjaðursleið.

Krónísk fýla valdalausa ysta hægrisins sýndi sig þegar Þorgerður Katrín tók á móti Rubio og ræddi við hann á vinsamlegum nótum. Auðvitað eru tuðararnir líka æfir vegna stórgóðrar ræðu sem Þorgerður Katrín hélt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Æstustu hægri menn rifu hár sín og klæði vegna ræðunnar og veinuðu ógurlega. Það gerðu þeir þrátt fyrir að það ætti að blasa við að orðin sem vöktu svo mikla athygli í ræðu Þorgerðar Katrínar eru bæði sönn og rétt. Hún sagði: „Fyrir mér eru siðferðislegir hugleysingjar þeir leiðtogar heims sem neita að setjast niður og semja um sanngjarnan og varanlegan frið. Þeir sem neita fólki um aðgengi að mannúðaraðstoð sem svo sárlega þarfnast þess. Og þeir leiðtogar eru siðferðislegir hugleysingjar sem fara ítrekað gegn og gera lítið úr alþjóðalögum.“

Þetta er bæði vel og djarflega mælt. Fleiri ráðamenn mættu sannarlega tala á þennan hátt og minna á mikilvægi friðar og mannúðar.

Það sem fór víst svona óskaplega í taugarnar á ysta hægrinu hér á landi var að Þorgerður Katrín vísaði þarna til Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. Á allsherjarþinginu kusu margir fulltrúar mjög skiljanlega að ganga úr salnum þegar hann hóf ræðu sína. Netanjahú kallaði þá siðferðilega hugleysingja.

Sá sem heldur því fram að Netanjahú sé sómamaður hlýtur að vera haldinn veruleikablekkingu á háu stigi. Umheimurinn mun dæma Netanjahú sem stríðsglæpamann. Framferði Ísraelsmanna á Gasa hefur verið viðbjóðslegt og á engan hátt réttlætanlegt. Þeir sem benda á svo augljósa staðreynd eru ekki haldnir gyðingaandúð, þótt verjendur ísraelska forsætisráðherrans geti ekki hætt að tönglast á því. Sá sem bendir á hryllinginn á Gasa á ekki skilið að vera stimplaður sem stuðningsmaður Hamas. Hann á heldur ekki skilið að vera sakaður um að vera að réttlæta hryllilegar gjörðir hryðjuverkasamtakanna 7. október 2023 þegar þau réðust á Ísrael og stráfelldu saklaust fólk eða námu það á brott. 

Af hverju er svona óskaplega erfitt fyrir suma að skilja þegar verið er að tala málstað mannúðar, eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gerði svo skörulega? 

Það er sannarlega viðamikið og erfitt verkefni að skilja þankagang og fullyrðingar æstu hægri mannanna.