Eyjan

Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35

Mynd

Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér. Þess vegna er skortur á innleiðingu bókunar 35 samningsbrot gagnvart samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Hæstiréttur hefur í raun sent ákall á löggjafann um að bæta úr þessari stöðu. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þannig að framan af, meðan Hæstiréttur túlkaði þetta eins og þú lýstir hér áðan, að þetta væru sérlög sem gengu þá framar almennum lögum, þá má segja sem svo að þá var þetta í lagi hjá okkur en það hélt ekki þegar Hæstiréttur fór að breyta dómafordæmum?

„Já, sko í raun og veru svo lengi sem að dómstólar finna leið til þess að láta EES-regluna gilda. Hvernig svo sem að þeir fara að því, hvort þeir vísi í skýringarregluna í 3. grein EES-laganna, hvort þeir byggi á „special“ sjónarmiðum, einhverju öðru, svo lengi sem bara framkvæmdin er rétt að þá er ekkert vandamál. En ef framkvæmdin er ekki rétt og ef við erum með og núna sérstaklega nýlegustu dóma Hæstaréttar þar sem Hæstiréttur segir bara: Það er ekki búið að innleiða þessa forgangsreglu. Og það er svona nánast ákall á löggjafann eins og ég les það, um að laga það.“

Hæstiréttur er að segja við löggjafann að hann líti svo á að hendur Hæstaréttar séu bundnar, að hann verði að dæma eftir íslenskum lögum og þess vegna verði löggjafinn að innleiða þetta þannig að það haldi.

Já, hann telur sig ekki hafa þessa forgangsreglu nema löggjafinn mæli fyrir um hana. Og svo geta menn deilt um hvort að það sé rétt mat hjá dómstólnum eða ekki. Ég meina, allar lögskýringarreglur eru að einhverju marki …“

Túlkun?

„Já, leið til þess að ákveða hvaða reglur eigi að gilda um hvert tilvik og þær eru nú allar ólögfestar.“

Já, en þetta er athyglisvert og þó að menn séu ósammála þessari niðurstöðu Hæstaréttar eða þessu áliti Hæstaréttar, þá verður ekkert um það deilt að þetta er niðurstaða Hæstaréttar.

„Nei, mér hefur nú ekki þótt mikill bragur af því að tala niður niðurstöðu Hæstaréttar sem lögmaður. Þó ég geti verið kannski ósammála einhverju mati á einhverjum forsendum að þá er niðurstaða Hæstaréttar niðurstaða Hæstaréttar.“

Nákvæmlega. Þetta þýðir að við höfum í raun og veru, vitandi vits, verið með ófullkomna innleiðingu á bókun 35 í mörg ár, jafnvel áratugi.

„Ég ætla nú ekki að ganga svo langt. Ég ætla að segja að mér finnst eins og kannski hlutirnir hafi svona farið að breytast upp úr 2010 og ég held það sé fyrst 2012 þegar ESA skoðar málið og svona athugar hvað er að gerast og ég held það sé í raun og veru gaman.“

Þannig að það miðast við þann tíma svona?

„Já, en ég held það sé ekkert óeðlilegt að þetta taki sinn tíma vegna þess að þetta er í raun og veru skoðun á því hvernig dómstólar eru að beita lögskýringarreglum. Og það er ekkert óeðlilegt að þú bíðir og sjáir hvort að það sé sem sagt komin einhver staðfest dómaframkvæmd eða hvort þú sért með einhvern einn dóm og svo breyta menn um kúrs aftur. Þannig að mér finnst í raun og veru ekkert óeðlilegt að þetta hafi tekið sinn tíma.“

Hæstiréttur náttúrlega á tímabili eftir hrun þá má efast alveg um fordæmisgildi dóma Hæstaréttar vegna þess að flestir dómarnir voru kveðnir upp af þriggja manna dómi. En þar sátu níu manns.

„Já, ég hef nú ekki kannski sko litið svo á að það breyti miklu hversu margir sitja í dómnum.“

Það sem ég á við er að það var hægt að færa rök fyrir því að Hæstiréttur væri, þegar svo háttar að það er þriggja manna dómur í nær öllum málum. Ég kannski er að ganga of langt með því að segja nær öllum málum en í mjög mörgum málum og það eru bara ótal möguleikar á þriggja manna dómi úr níu dómara hópi. Og ég heyrði það á lögmönnum þá að þeim fannst orðið erfitt að festa hönd á fordæmisgildi hæstaréttardóma vegna þess að í næstu viku gat fallið dómur um svipað ágreiningsefni með allt annarri niðurstöðu og allt annarri röksemdafærslu.

„Já, ég hef svo sem ekki stúderað það í þaula en alla vega getum við sagt það að frá því að síðasta breyting á réttarfarslögum var gerð og Landsrétti komið á fót að við getum alla vega sagt með nokkurri vissu að frá þeim tíma hljóta dómar Hæstaréttar að hafa fordæmisgildi.“

Klárlega af því það er einn Hæstiréttur í landinu í dag.

„Og það er sá Hæstiréttur sem hefur í rauninni sagt: Heyrðu, við erum ekki með réttu tólin. Við erum ekki með þessa forgangsreglu skýra í íslenskum rétti af því að löggjöfin hefur ekki innleitt bókun 35. Þannig að það er þá hið minnsta alveg skýrt.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.