Eftir að hafa setið um tveggja ára skeið í tveimur nefndum Alþingis, annars vegar Efnahags- og viðskiptanefnd og hins vegar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, er það niðurstaða þess sem þetta skrifar að íslensk stjórnvöld og embættismannakerfi þess fylgist langtum betur með fyrirtækjum en farsæld barna. Kíki eftirlitsstofnana er fyrst og síðast beint að atvinnulífi landsmanna með allskyns athugasemdum og stjórnvaldssektum ef ekki er farið að lögum og reglum, en augunum er aftur á móti lokað þegar kvartað er undan margra ára biðlistum og alla vega þjónustuskorti gagnvart börnum í viðkvæmri stöðu.
Nýleg úttekt Ríkisendurskoðunar um framkvæmd farsældarlaganna á síðasta kjörtímabili sýnir þetta svart á hvítu. Hún var kölluð svört skýrsla í fjölmiðlum – og það með réttu. Þar segir enda að innleiðing laganna hafi ekki verið nægilega vel undirbúin, enda hafi ekkert stöðumat eða þarfagreining farið fram áður en ákveðið var að leggja fjármuni í verkefnið. Lögin sjálf séu eiginlega samin fyrir kerfið sjálft, en fjölgi ekki úrræðum eða stytti biðlista á eigin spýtur. Langir biðlistar eftir greiningu og meðferð hamli því enn að markmið laganna náist.
Fyrir vikið sitji veiklaðir hópar eftir – og það bitni sérstaklega á viðkvæmum hópum á borð við börn með vímuefnavanda, fötluðum börnum og krökkum í fósturkerfinu, svo og flóttabörnum.
Það er því svo komið að þegar aldarfjórðungur er liðinn af nýrri öld – og átti sú gamla vísast að kenna okkur eitthvað í þessum efnum – að yfirsýn málaflokksins er enn í molum, og gráu svæðin á milli ráðuneytanna, og það ekki tveggja, heldur að minnsta kosti fjögurra, eru jafn móskuleg og þau hafa löngum verið. Fyrir vikið tala stofnanakerfin ekki saman, sem leiðir til sömu niðurstöðunnar og löngum áður; lítið sem ekkert er vitað um þjónustuþörfina, og hvað þá fjárþörfina.
Og til að bæta gráu ofan á svart eru kerfin ekki sammála um leiðir til úrbóta. Það ríkir fagleg spenna um það hvernig leysa eigi úr vandanum.
Á meðan týnast börnin í kerfinu. Eða í skásta falli, bíða, í eitt ár, tvö ár, og stundum þrjú.
„Einna raunalegast var þetta um árið þegar stjórnkerfið treysti ekki lengur íslenskum húsmæðrum til að selja nýbakaðar kleinur á almannafæri svo safna mætti fjármunum fyrir samfélagslega mikilvægt málefni.“
Öðru máli gegnir um fyrirtæki landsmanna. Þau týnast ekki svo glatt. Eftirlitsstofnanir eru í essinu sínu þegar kemur að því að fylgjast með því að þau fari að settum reglum samfélagsins. Af samtölum þess sem þetta ritar við fjölda forsvarsmanna í atvinnulífinu á löngum fréttamannsferli verður ekki annað ráðið en að blessað kerfið hér á landi hamli einkarekstri fremur en glæði hann. Það er líkast því að það sé hvað eftirsóknarverðast að hafa skriffinnskuna eins flókna og tafsama og kostur er, fremur en auðskilda og greiðvikna. Kerfið óttist með öðrum orðum einfaldleikann, sem kunni að virðast heimskulegri heldur en gáfulegt flækjustigið, jafn tyrfið og torskiljanlegt sem það nú er.
Afleiðingar rata reglulega í fréttir þar sem úrvinda athafnamenn segja farir sínar ekki sléttar við að opna veitingastaði og verslanir því sýstemið kalli í sífellu á að útfyllt séu fleiri eyðublöð áður en leyfi fáist fyrir framtakinu.
Einna raunalegast var þetta um árið þegar stjórnkerfið treysti ekki lengur íslenskum húsmæðrum til að selja nýbakaðar kleinur á almannafæri svo safna mætti fjármunum fyrir samfélagslega mikilvægt málefni. Þar kom að því. Kleinubaksturinn – og hvað þá sala á afurðinni, yrði að vera leyfisskyldur, og gilti einu þótt þessar sömu konur og formæður þeirra og áar væru búnar að öðlast þjálfun í þessum eina og sama bakstri og bera hann á borð um aldir alda.
Þúsund ára kruðerí var nú orðið jafn grunsamlegt og það var eftirlitsskylt.
Og sama gildir um fiskverkamennina okkar sem hafa staðið við bekkinn frá þjóðveldisöld og brugðið hnífi sínum á sjávaraflann. Jafnvel hákarlaverkun er að líða undir lok vegna þess að gæðahandbókin sem karlarnir verða að fara eftir er orðin þykkari en svo að þeir ráði fram úr henni. Því þarf nú ekki bara bæði heitt og kalt vatn til verksins, heldur tvo vaska hlið við hlið, annan fyrir hendur og hinn fyrir hnífa, og svo afstúkaðan búningsklefa með sturtu sem uppfylli gæðastaðla.
Þúsund ára fagmennsku fiskverkakarlanna eru nú settir afarkostir. Annars sé hjallanum lokað.
Það er sumsé sitthvað viðkvæmt barn eða vinnandi hendur – og hrein spurning hvort ekki væri manneskjulegra að snúa áherslunum við.