Eyjan

Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum

Mynd

Forspjall: 

Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir

Þegar haldið er út með sunnanverðum Seyðisfirði er landið upp af ströndinni bæði hrikalegt og viðkvæmt. Fjöllin rísa yfir og úti við fjarðarmynnið. Að sunnan verðu er Skálanes aldagömul bújörð þar sem stundað var útræði og sjósókn úr Skálanesbótinni. Þar horfir landið til hafs, en sjórinn við ströndina er jafnframt hluti af daglegu lífi manna, sjávardýra og fugla. Dýr og fuglar þekkja ekki mörk milli fjalls, fjöru og sjávar allt er þetta ein heildræn samstæða í þeirra huga. Annað er með mannfólkið sumir standa með dýrunum og náttúrunni. Aðrir standa með peningum og skyndigróða. Það eru þeir síðarnefndu sem hafa barist fyrir að Skálanesbótinni yrði gerð að lax eldissvæði.

Skálanes yst við sunnanverðan Seyðisfjörð:

Áður en við förum að fylgja æðarkollunum og ungunum þeirra út að fyrirhuguðum sjókvíum í Skálanesbót þurfum við að sjá Skálanes sjálft fyrir okkur. Þar er ekki aðeins eitthvað ókunnugt og ómerkilegt umhverfi fjöll, fjara og sjór sem hægt er að skoða á landakorti inni á skrifstofum. Taka síðan upp reglustikuna og merkja inn á kortið hóflegt svæði til að leggja undir nýja atvinnustarfsemi. Þar er merkileg sjávarjörð með langa og samfellda sögu. Í dag er þar fólk sem hefur unnið hörðum höndum við að framfylgja fallegri hugsjón sem tekin var í arf frá fyrri eigendum. Það er að hlúa að og byggja upp náttúrulegt, upprunalegt lífríki á sem eðlilegustum forsendum þess sem fyrir er. Árangurinn hefur farið fram úr öllum vonum en erfiðleikarnir líka verið gríðarlegir því að þrátt fyrir ómælda sjálfboðaliða vinnu hugsjóna fólks víðs vegar úr veröldinni. 

Hefur fjármögnunarhlið fyrirtækisins alltaf verið hrein þrautaganga. Nú er þó svo komið eftir áratuga basl og erfiði að í dag er komin verulega sterkur grunnur að fallegri, vist og umhverfisvænni Paradís fyrir ferðamenn og útivistarfólk. Þetta mikilfenglega hugsjóna verk hefur dregið að sér vísindafólk og áhugafólk um fugla langt að. 

Í dag laðar þetta svæði að sér þúsundir ferðamanna. Íslendinga sem koma á Seyðisfjörð annaðhvort til að heimsækja vini og ættingja, skoða bæjarlífið og fjörðinn eða eru á leið með Norrænu út í heim. Mörg af þeim skemmtiferðaskipum sem koma reglulega á Seyðisfjörð eru með skipulegar hópferðir um fjörðinn og ekki síst í Skálanes. Náttúran ásamt merkilegri sambúð manna við fuglalíf og gróður staðarins laðar til sín ferðamenn Ekki síst þá sem í stórborgum búa Hafandi sjaldan kynnst svona mikilli nánd við villta náttúru né andrúmsloft og útsýni ómengað af mistri og vélareyk.

Norræna skipuleggur einnig ferðir í Skálanes og þar um borð eru menn ósparir á að benda erlendum farþegum sínum, sem eru á eigin farartækjum á þennan ótrúlega stað. Það er nákvæmlega hérna sem fólkið með reglustikurnar ákvað að setja niður kvíaból fyrir 10.000 tonna opið sjókvíaeldi. Eftir að hafa verið hrakið af svæðinu fram af Háubökkum. Skálanesbjarg er ein þeirra sjófuglabyggða sem gera þennan hluta fjarðarins sérstakan. Í gögnum um fuglalíf þar hefur verið talað um um 11.500 fýlspör. En fýllinn í bjarginu er aðeins hluti myndarinnar. Á nesi niðri við sjóinn eru Æðarkollur með hreiður sín og unga. Í Bótinni og fjörunum beggja megin við hana eru fæðuslóðirnar. Það er einmitt þar sem fyrirhugað opið sjókvíaeldi Kaldvíkur kemur inn í þessa sögu. Fyrir ferðamann sem kemur á Skálanes er þetta ekki röð aðskilinna staða. Bjargið, fuglarnir, fjaran og víkin mynda eitt landslag. Það sama gildir um fuglana sjálfa. Þeir nýta land og sjó eftir þörfum sínum, ekki eftir því hvernig við skiptum svæðinu upp á teikningu.

Fólkið sem hefur byggt upp Skálanes: 

Á Skálanesi hefur verið unnið merkilegt starf við að gera jörðina að vettvangi náttúruverndar, rannsókna, fræðslu og ferðaþjónustu. Í þeirri uppbyggingu hafa Ólafur Örn Pétursson og Rannveig Þórhallsdóttir komið við sögu í upphafi en síðan tóku aðrir við þeirra kefli. Hér hefur ekki verið byggt á þeirri hugmynd að fæla náttúruna frá fólkinu, heldur að kenna fólkinu að nálgast náttúruna á hennar eigin forsendum. Á Skálanesi hefur verið byggt upp og sinnt æðarvarpi. Þeir sem hafa fylgst með slíku starfi vita að það er ekki gert í einni svipan. Það þarf ár eftir ár að hlúa að varpinu, verja fuglana fyrir ónæði og gefa kollunum tækifæri til að finna öryggi á staðnum. Traustið verður ekki keypt tilbúið. Það verður til við endurtekna reynslu fuglanna af því að hér fá þeir að vera í friði. Þegar gestir koma er þeim leiðbeint um hvernig þeir eigi að ganga um. Þar er fuglunum ekki kennt að víkja fyrir ferðamönnunum. Ferðamönnunum er kennt að taka tillit til fuglanna. Þarna liggur eitt af stóru verðmætunum. Fólkið sem kemur að Skálanesi fær að sjá fuglalíf í návígi vegna þess að einhver hefur lagt á sig vinnu við að skapa fuglunum frið. Og fuglarnir geta í fullu öryggi haldið áfram sínu lífi vegna þess að gestirnir eru ekki látnir vaða um  eins og þeir eigi staðinn.

Gestirnir, rannsóknirnar og atvinnan sem fyrir er:

Á Skálanes koma ekki aðeins ferðamenn sem eiga leið um Seyðisfjörð í örfáar klukkustundir. Þangað sækir fólk sem hefur áhuga á fuglum, landslagi og náttúru. Þar er einnig rannsóknir og fræðslustarfsemi sem byggjast á því að hægt sé að fylgjast með náttúrunni í hennar eigin umhverfi.  Þessi starfsemi er ekki aukaatriði sem hægt er að ýta til hliðar þegar nýr rekstraraðili fær áhuga á sjónum fyrir utan. Hún er fyrir. Hún hefur verið byggð upp með vinnu, þekkingu og þolinmæði. Náttúran er ekki aðeins það sem gestirnir koma til að skoða. Hún er undirstaða þeirrar atvinnu og þeirrar fræðslu sem þarna hefur orðið til. Það skiptir því máli hvernig hljóð frá bátum berast að landi, hvernig vinnu og fælinga ljós kunna að sjást frá Skálanesi, hvernig ásýnd víkurinnar breytist og hvort fuglarnir halda áfram að nýta svæðið með sama hætti. Þetta snýst ekki aðeins um það sem gerist inni í einni kví. Þetta snýst um það sem gerist í allri víkinni.

Frá Skálanesi yfir í Skálanesbót:

Þegar við höfum séð landið og kynnst fólkinu er kominn tími til að horfa út á sjóinn. Þar er Skálanesbót. Hún er ekki tómt hafsvæði sem bíður eftir að fá hlutverk. Þar hafa fuglar leitað sér fæðu, þar eru leiðir þeirra meðfram ströndinni og þangað munu kollur  koma með unga sína frá varpstöðvum í næsta firði. Þess vegna verður að skoða og setja sig inn í heim fuglanna sem fyrir eru. Áður en við ákveðum að standa með kvíunum. Við þurfum að vita hvaðan fuglarnir koma, hvað þeir eru að læra, hvar þeir leita sér ætis og hvað getur gerst þegar stór þjónustubátur Kaldvíkur kemur óvænt utan af firðinum með ljósagangi, hávaða og ölduókyrrð að netvegg sem ungarnir hafa lært að sækja fæðu á. Þar hefst næsti hluti frásagnarinnar.

Og þá er rétt að muna eitt: Fuglarnir voru þarna á undan kvíunum.

Mæðurnar koma með ungana:

Hinum megin við fjallgarðinn er Loðmundarfjörður, næsti fjörður norðan við Seyðisfjörð. Þar hefur við Sævarenda verið byggt upp eitt stærsta æðarvarp landsins. Talað hefur verið um um sex þúsund hreiður. Það þýðir sex þúsund verpandi kollur, ekki þrjú þúsund. Síðan koma ungarnir. Ólafur Aðalsteinsson á Sævarenda hefur lýst því að eftir klak haldi kollurnar með ungana yfir til Seyðisfjarðar, að Skálanesi og í Skálanesbót. Það er ekki smáatriði í þessari sögu. Það tengir varpið í Loðmundarfirði beint við sjóinn þar sem fyrirhugað er að koma fyrir opnum eldiskvíum. Ungarnir fæðast ekki með þá kunnáttu sem þeir þurfa til að komast af í vetrarveðrum á hafi úti. Fyrstu vikurnar eru þeim eins konar skóli. Móðirin leiðir þá um fæðusvæðin, heldur hópnum saman og ver hann. En hún tínir ekki fæðuna í gogginn á þeim. Það verða ungarnir sjálfir að læra. Fyrst er það flæðarmálið. Litli unginn veður um grynningarnar og tínir upp í sig marflær og önnur smádýr. Og þegar hann verður þreyttur, honum kólnar eða eitthvað hræðir hann, getur hann farið upp á þurrt land og skriðið undir væng æðarinnar.

Þar er öryggið. Þar er skjólið. Þar er mamma. Svo stækkar heimurinn. Unginn byrjar að synda, lærir að kafa og afla sér fæðu á dýpra vatni. Þessi kennsla stendur ekki endalaust. Hann þarf á fáum vikum að öðlast allan þann styrk sem til þarf svo hægt sé að takast á við veturinn, brimið og veðrin.

Fyrsta ferðalagið:

Samkvæmt sögn Æðarbænda í Loðmundarfirði leggja kollurnar á stað með unga sína yfir til Seyðisfjarðar með þá allt niður í tveggja daga gamla. Þetta er fleiri tuga kílómetra sund en farið er grunnt með ströndinni og hvílt sig í fjöruborðinu eftir þörfum. Að lokum er þó synt þvert yfir mynni Seyðisfjarðar og komið með kúguppgefna ungana á lokastaðinn framtíðar heimilið næstu vikurnar Skálanesbót. Þar sem friðurinn, öryggið og óbreytan leikinn hefur varað alla lífstíð fullorðnu mæðranna. 

Nýtt hlaðborð í sjónum:

En nú birtist nýtt mannvirki á fæðusvæðinu kvíanetið. Á netum í sjó setjast smádýr og aðrar ásætur. Fyrir fugl sem er að læra að finna sér æti getur slíkur netveggur orðið að eins konar hlaðborði. Æðarkollan kemur syndandi, kafar frá yfirborðinu og ungarnir læra smám saman að gera slíkt hið sama. Þeir steypa sér ekki úr lofti eins og fuglar sem veiða með dýfu úr flugi þeir koma að netinu frá yfirborði sjávarins. Þarna er einmitt mótsögnin sem mér finnst svo alvarleg. Mannvirkið getur laðað fuglana að sér með fæðu, en á sama stað bíða net, festingar, bátar og þjónustustarfsemi sem fuglarnir þekkja ekki og hafa ekki áður þurft að glíma við. Í rannsókn Náttúrustofu Austurlands í Reyðarfirði sáust fleiri æðarfuglar við eldiskvíar en á samanburðarsvæðum. Vöktunaráætlun fyrir Seyðisfjörð fjallar líka um að aukin næringarefni og fæða geti laðað fugla að. Það er því ekki nóg að segja að fuglarnir geti haldið sig annars staðar. Hvað ef sjálfar kvíarnar kalla þá til sín? Og hvað gerist þegar netið sem unginn hefur lært að sækja sér æti á verður skyndilega hindrun á leið hans?

Þegar tröllið kemur æðandi utan af firðinum:

Við Skálanes er fuglinn vanur því að fólk fari varlega. Gestirnir lækka róminn, hægja á sér og gæta þess að styggja ekki kolluna. En þjónustubátur við opið sjókvíaeldi er allt annars eðlis. Þjónustubátarnir koma utan af firðinum að kvíunum með vélarskellum. ljósa og öldugangi. Þeir koma ekki frá landi Skálaness. Þeir koma að kvíunum sjómegin, einmitt þar sem kollur og ungar eru að tína æti við netvegginn. Þar geta verið margir fuglar saman, jafnvel hundruð, ef aðstæður og fæðuframboð leiða þá þangað. Þekkt ógn er hætta sem reynslan hefur kennt fuglinum að bregðast við. Óþekkt ógn getur verið enn skelfilegri, því þá skortir hann reynsluna sem segir honum hvaðan hættan kemur, hvernig hún hegðar sér og hvert hann eigi að flýja. Fullorðnir fuglar geta brugðist við skyndilegri hættu með því að forða sér í ýmsar áttir jafnvel flogið í lágflugi stuttan spöl í burtu.

En litli æðarunginn á sér aðra reynslu. Hann hefur ekki enn öðlast flughæfni honum hefur eingöngu verið kennt að flýja ógnir á einn veg. Með því að kafa og synda í kafi sem allra hraðast í burtu frá ógninni.  Hann er nýkominn frá landinu. Þar steig hann sín fyrstu skref út í heiminn. Þar lærði hann að vaða um flæðarmálið, tína sér marflær og skríða síðan undir hlýjan væng móður sinnar uppi á þurru landi. Í óttaáfallinu sækir hann því í átt að því öryggi sem hann þekkir best. Í átt að landinu sem hann er nýkominn frá. En á milli hans og landsins er netveggurinn. Hann er ekki að synda að netveggnum til að leita þar skjóls. Hann er að reyna að komast heim.

Fyrsta höggið:

Sjáið nú fyrir ykkur að unginn sé að tína æti af kvíabúnaðinum svo nærri netinu að aðeins stutt bil skilur hann frá því. Báturinn kemur utan frá. Skelfingin dynur yfir. Unginn reynir samstundis að flýja til lands. Í kafsundinu verður netið ekki hindrun sem hann sér langt fram undan og getur sveigt frá. Hann er komið að net poka veggnum áður en hann nær að átta sig. Fyrsta, snögga flóttahreyfingin veldur því sjálfum árekstrinum sem getur verið býsna harður fyrir lítinn fugl. Þetta er sú atvikalýsing sem ég vil að menn skoði í Skálanesbót. Ekki almennar fullyrðingar um að fuglar geti synt í burtu. Ekki aðeins spurning um hvort netið sé sterkt. Heldur hvað gerist þegar ófleygur ungi, sem var að tína sér æti upp við netvegginn sjómegin, reynir að komast til lands á sama augnabliki og óþekkt, skelfileg ógn birtist fyrir aftan hann.

Og móðirin? Hún getur sjálf orðið skelkuð. Hópurinn hennar tvístrast. Hún getur ekki verið hjá öllum ungunum í einu. Þegar slík óþekkt ógn birtist skyndilega getur jafnvel reynslumikil móðir orðið ráðþrota. Og ungarnir, sem treysta á leiðsögn hennar, eru þá enn berskjaldaðri.

Gildran undir yfirborðinu:

Það er auðvelt að horfa yfir sléttan sjó og sjá ekki það sem gerist undir yfirborðinu. Æðarfuglinn stingur sér af yfirborði sjávar. Hann er ekki fiskur. Hann hefur ekki tálkn. Hann hefur lungu eins og við. Hvert einasta kaf verður því að enda á sama hátt: fuglinn verður að komast aftur upp á yfirborðið til að draga andann. Það þarf ekki allan fuglinn til að festast í netveggnum. Goggurinn einn getur lent inn í möskva. Þegar fuglinn reynir að draga hann aftur út getur hann skekkst og krækst. Fuglinn togar, snýr sér, ber vængjunum og spyrnir með fótunum en ekkert hjálpar sjórinn lætur undan það er enga viðspyrnu að fá. En ef goggurinn situr fastur er yfirborðið, og næsti andardráttur, skyndilega utan seilingar. Einn örlítill möskvi utan um gogg eða fót getur því orðið til að drekkja fuglinum.  Þess vegna er ekki nóg að segja að höfuð fuglsins komist ekki í gegnum netið. Hvað með gogginn? Hvað með netþráðinn? Hvað með fugl sem kafar eftir æti og verður hræddur á sama augnabliki? Hefur verið sýnt fram á að sú netagerð sem á að nota í Seyðisfirði komi í veg fyrir slysadauða kafandi sjófugla af völdum drukknunar?

 Þegar skelfingin er liðin hjá:

Það sem gerist á fyrstu sekúndunum er aðeins hluti sögunnar. Ungahópurinn getur tvístrast. Ungar geta orðið viðskila við kolluna. Fæðuöflunin stöðvast. Og mávar og aðrir afræningjar sem sífellt vaka yfir svæðinu hverfa ekki þótt þjónustubáturinn sigli aftur á burt. Þannig geta áhrif einnar skyndilegrar truflunar náð lengra en sjálfur hávaðinn frá bátnum. Fuglar sem hafa komið saman að fæðunni þurfa að finna hver annan aftur, ná ró og halda áfram því sem þeir voru að gera. En báturinn og það sem honum fylgir kemur aftur og aftur . Þjónustuumferð við opið sjókvíaeldi er ekki einstök heimsókn eins og ferðamaður sem kemur til að skoða fuglana. Hún er hluti af daglegum rekstri. Þess vegna verður að skoða áhrif endurtekinna truflana á sama uppeldissvæðinu.

Hvað verður um hlaðborðið?:

Net sem liggur í sjó safnar ásætum. Það þarf að þrífa. En hvað verður þá um fæðuna sem fuglarnir kunna að hafa vanist að tína af netinu? Við hreinsun losna ásætur og agnir út í sjóinn. Fuglar sem hafa verið að afla sér fæðu við netið geta orðið fyrir truflun einmitt þar sem þeir hafa lært að leita ætis. Við þurfum líka að vita hvaða varnar og hreinsi efni verði notuð á netin eða við aðra meðhöndlun eldisins og hvaða áhrif þau geti haft á smádýrin sem fuglarnir lifa á. Miðað við mínar upplýsingar eru flest þessara efna verulega óholl nánast öllu dýra og plöntu lífi, sum  jafnvel mjög  eitruð svo sem, þau sem notuð eru við útrýmingu laxalúsarinnar. Ásætur kvíanna hljóta að taka upp þessi efni í mismiklum mæli og geta því verið sýkt eða banvæn fæða fyrir litla fugla á þroska skeiði. Benda má á að laxalúsin er krabbadýr og því líklega eitt af þeim smádýrum sem ungarnir éta af græðgi þegar þeir ná í hana.

Óæskileg efni ásamt eiturefnum úr þessum hluta fæðu fuglanna veldur síðan veikindum og dauða unganna og þar með bætast þeir við á hlaðborð afræningjana sem voka sífellt eftir meira og minna löskuðum og ósjálfbjarga ungum sem fljóta eða reka á yfirborðinu við kvíarnar eftir árekstra slysin áður nefndu. Þetta eru ekki spurningar sem svarast með því að telja fljúgandi fugla eða þá sem sitja á syllunum í bjarginu og synda í sjónum undir því. Þær snúast um lífið á netveggnum sjálfum, sjóinn í kringum hann og ungana sem læra að afla sér fæðu þar.

Hvor á að víkja?

Skálanes er ekki aðeins fuglabyggð. Þar hefur fólk byggt upp starfsemi sem byggist á því að náttúran fái að vera náttúra. Þar koma íslenskir ferðamenn, fólk sem ferðast til landsins með Norrænu og aðrir erlendir gestir. Þar eru rannsóknir, fræðsla og umgengni sem tekur mið af fuglunum. Opnar sjókvíar eru ekki aðeins hringir sem liggja hreyfingarlausir á sjónum. Þeim fylgja festingar, net, ljós, fóðrun, netþvottur, viðhald og þjónustubátar. Þær breyta bæði ásýnd og starfsemi staðarins. Þegar þessi nýja starfsemi kemur inn á svæði þar sem fuglarnir hafa verið verndaðir og fólk hefur byggt upp heilan atvinnuveg á þeirri vernd, verður að spyrja: Hvor á að víkja fyrir hverjum? Á Skálanesi hefur maðurinn lært að víkja fyrir fuglinum. 

Er það nú ætlunin að fuglinn víki fyrir mannvirkjunum?

Tíu þúsund tonnin:

Í vöktunaráætlun vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði frá október 2024 stendur: „Ekki hafa farið fram sérstakar grunnrannsóknir á fuglum vegna fiskeldis í Seyðisfirði.“ Þetta var ekki skrifað áður en menn vissu af fuglunum. Skálanesbjarg var þekkt, æðarvarpið við Skálanes var þekkt, stóra æðarvarpið í Loðmundarfirði var þekkt, bent hafði verið á ferðir kollana með unga sína til Skálanesbótar. 

Og undirbúningur að opnu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hafði staðið árum saman. Á þeim tíma breyttust staðsetningar eldissvæðanna. Sum svæði hurfu úr áformunum, önnur komu inn. Taka þurfti tillit til siglingaleiða, sæstrengja og annarra takmarkana. En ein tala virtist þó alltaf halda sér eins og jarðfastur klettur í annars sléttu og fallegu túni: 10.000 tonn. Vöktunaráætlunin gerir ráð fyrir allt að 9.500 tonna hámarkslífmassa á einstöku eldissvæði innan 10.000 tonna heildarheimildarinnar. Þarna er ekki aðeins um nokkra hringi á sjó að ræða. Þarna er um stórfellda atvinnustarfsemi að ræða, með fjárhagslegu verðmæti sem hefur verið rakið rækilega í fyrri greinum mínum með aðstoð úr opinberum rekstrar gögnum. En hinum megin eru líka verðmæti. Æðarvarpið, ungarnir, fuglarnir í bjarginu, rannsóknirnar, ferðaþjónustan, kyrrðin og traustið sem hefur byggst upp milli manns og fugls. Af hverju var ekki minnkað umfang eldisins þegar staðsetningarkostirnir þrengdust? 

Hvers vegna var þess í stað leitað nýrra staða innan Seyðisfjarðar, þar á meðal við Skálanesbót?

Spurningin sem situr eftir:

Ég er ekki að biðja um að menn trúi hverri þeirri slysasviðsmynd sem ég hef dregið upp. Ég er að biðja um að þeir svari því hvort þeir hafi rannsakað hana. Hver kannaði ferðir kollanna með ungana? Hver kannaði fæðuna á netunum? Hver skoðaði hvað gerist þegar þjónustubátur kemur utan af firðinum og ungi við netvegginn reynir að komast aftur til lands? Hver reiknaði með hættunni á að fugl festi gogginn í möskva? Hver kannaði hvort netþvottur, ljós og endurtekin umferð breyttu uppeldissvæðinu? 

Og hver gætti hagsmuna fólksins sem hafði byggt upp náttúruvernd og ferðaþjónustu á Skálanesi áður en eldiskvíarnar komu til sögunnar?

Það er auðvelt að teikna afmarkaðan reit á kort af firði og kalla hann eldissvæði. En Skálanesbót var ekki auður blettur á kortinu. Fuglarnir voru þar á undan kvíunum.

Skrifað á Selfossi 9/10  2026

Reynir Valgeirsson

Heimildir

  • Umhverfisstofnun / Kaldvík. Vöktunaráætlun fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði, október 2024.
  • Skipulagsstofnun. Mat á umhverfisáhrifum opins sjókvíaeldis í Seyðisfirði og tengdar umsagnir.
  • Náttúrustofa Austurlands. Rannsóknir á fuglum við sjókvíar í Reyðarfirði.
  • Varennes o.fl. Rannsóknir á hegðun æðarfugla við útilokunarnet og áhrifum netagerðar.
  • Ólafur Aðalsteinsson, Sævarenda. Frásagnir um æðarvarpið í Loðmundarfirði og ferðir fuglanna til Seyðisfjarðar.
  • INTERACT og heimildir um náttúru-, rannsóknar- og fræðslustarfsemi á Skálanesi.
  • Fyrirtækjagögn Fiskeldis Austfjarða, Ice Fish Farm og Kaldvíkur um eldisheimildir og fjárhagslegt verðmæti þeirra.

Heimildirnar hér að framan eru lagðar fram til stuðnings þeim staðreyndum og upplýsingum sem til þeirra er vísað. Fullyrðingar, ályktanir, túlkanir og mat sem ég dreg af efninu, en verða ekki beinlínis rakin til tilgreindra heimilda, eru mín eigin túlkun og mitt álit. Ég ber sjálfur ábyrgð á þeim hluta efnisins.