Forspjall:
Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:
Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstaðavík er ekki auður blettur á korti og kvíabólið verður ekki sett niður í tómarúm. Hér mætast gamalt byggðarlandslag, háar fjallshlíðar, flóðaleiðir, strönd, sjávarbotn og aldagömul tengsl fólksins við sjóinn.
Selstaðavík í Seyðisfirði:
Selstaðavík er á norðurströnd Seyðisfjarðar. Þegar staðurinn er rannsakaður verður því rannsóknarsvæðið að ná frá fjallstindum og vatnaskilum ofan víkurinnar, niður hlíðarnar, yfir ströndina og áfram út fyrir allt fyrirhugað kvíaból með festingum og akkerum.
Það er þessi samfellda leið frá fjalli til fjarðarbotns sem skiptir máli. Ofanflóð stöðvast ekki við mörk á korti og hreyfing efnis stöðvast ekki sjálfkrafa þegar það nær sjávarmáli.
Selstaðir og Selstaðavík – land og sjór:
Selstaðavík er fjöruvík Selstaðajarðar og hefur frá ómunatíð verið sjávarhlið hennar. Þar var útræði jarðarinnar og lendingarstaður á smábátatímanum. Víkin var því hafnarsvæði Selstaða í eiginlegum skilningi – staðurinn þar sem heimilið og búskapurinn á landi tengdust sjósókninni til lífsbjargar sér og sínum. Þessi tengsl jarðar og víkur skipta máli þegar nú er rætt um afnot og hagsmuni við Selstaðavík. Víkin er ekki aðeins örnefni utan við ströndina heldur hluti af nytja- og byggðarsögu Selstaða.
Dvergasteinn, Selstaðir og byggðin með norðurströndinni:
Dvergasteinn er næsta jörð innan við Selstaði og landamerki jarðanna liggja saman. Dvergasteinn var prestssetur og kirkjustaður, Selstaðir voru um langt skeið tengdir Dvergasteinskirkju sem kirkjujörð. Milli Selstaða og Brimness voru jafnframt fleiri minni býli og búsetustaðir. Því verður ekki gerð rétt mynd af raunverulegum aðstæðum með því að líta á Selstaðavík sem einangraðan stað milli tveggja bæjarnafna.
Norðurströnd Seyðisfjarðar var byggðar- og nytjaland þar sem búskapur á landi og sjósókn úr víkum og lendingum mynduðu eina atvinnu- og búsetuheild.
Fjallahringurinn ofan Selstaðavíkur:
Fjallshlíðarnar ofan Selstaðavíkur eru háar. Grýtukollur er um 1.053 m og Sandhólatindur um 1.154 m. Frá þessum háu fjöllum hallar landinu niður að tiltölulega mjórri strandræmu við sjó. Í hlíðunum eru náttúrulegar leiðir vatns, snjóflóða, krapa, grjóts og jarðvegs til sjávar. Selstaðaáin er hluti þessa landslags og vatnaleiða þess. Gil, skorningar, laus jarðefni og ummerki fyrri flóða verða því að skoðast sem hlutar sömu heildar.
Lífið undir ofanflóðahlíðunum:
Á svæðinu frá Selstöðum að Brimnesi hafa í vinnugögnum mínum verið skráð 46 ofanflóð þar af 19 þeirra fallið beint ofan fyrirhugaðs kvíastæðis. Þar sem eru meðal annars nefnd snjóflóð og skriður en nokkur þeirra flóða hafa náð alla leið til sjávar.
Fólkið sem bjó og starfaði á þessari strönd bjó því undir ofanflóðahlíðum. Flóðin eru ekki ný fyrirbæri sem verða til vegna fiskeldisins. Nýjungin er sú að nú er fyrirhugað að setja stórt mannvirkjakerfi í sjóinn fyrir framan þessa sömu flóðströnd.
Landið endar ekki við sjávarmálið:
Ein meginforsenda þessarar rannsóknar er einföld: landið endar ekki í jarðfræðilegum skilningi við sjávarmálið.
Strandlínan er skil milli lofthjúps og sjávar en hún er ekki endilega skil í hreyfingu jarðefna. Fjallshlíðin heldur áfram niður fyrir yfirborð sjávar sem sjávarhlíð og hafsbotn. Ef snjór, krapi, vatn, grjót og jarðvegur koma niður hlíðina með miklum hraða hverfur orka og skriðþungi massans ekki við það eitt að efnið fer í sjó.
Hafsbotninn fyrir framan Selstaðavík:
Fjölgeislamælingar á hafsbotni Seyðisfjarðar gera kleift að skoða dýptarlínur, botnform og hallabreytingar undir yfirborðinu. Fyrir framan Selstaðavík hallar botninum mikið niður frá ströndinni og út í dýpri hluta fjarðarins.
Þetta skiptir máli í hamfarasviðsmyndinni vegna þess að þungur massi sem fer í sjó á þessum stað heldur áfram niður bratta sjávarhlíðina. Þá verður ekki aðeins til yfirborðsbylgja eða yfirborðsflóð; hreyfingin verður jafnframt neðan sjávaryfirborðs.
En nú á að breiða kvíabólið yfir allt þetta svæði og meira til:
Fyrirhugað kvíakerfi í Selstaðavík getur samkvæmt aðalteikningu EFLU verið allt að 14 kvíar í einni langri röð samsíða landi. Hver kví er um 50 m í þvermál. Heildarlengd alls bólsins með ca. 20 m. varúðar bili á milli kvía er þá ca. 940 m. = 1 km.
Kvíarnar eru staðsettar um 260–350 m frá landi. Landmegin akkeri þess hafa verið merkt inn á um 29–41 m dýpi en sjómegin á um 87–88 m dýpi. Festingakerfi bólsins breiðir sig því yfir mikinn botnhalla og verður þar með hluti þess svæðis sem þarf að skoða þegar möguleg hreyfing flóðmassa niður sjávarhlíðina er metin.
Það er ekki nóg að merkja aðeins hringina sem tákna kvíarnar á kort. Meta verður allt kerfið: landmegin, akkeri og festingar, festilínur, kvíaröðina, sjómegin, festingar og akkeri og botninn undir og niður fyrir kerfið.
Ein samfelld heild – frá fjallstindi niður á fjarðarbotn:
Þegar Selstaðavík er skoðuð með þessum hætti verða fjallið, hlíðin, Selstaðaáin og aðrar vatns- og flóðleiðir, ströndin, víkin, sjávarhlíðin, festingakerfið, kvíarnar og djúpi fjarðarbotninn ekki aðskildir heimar. Þau mynda eina samfellda landfræðilega og aflfræðilega heild. Það er á þessum grunni sem hamfarasviðsmyndin hér á eftir er byggð.
,,Hamfarasviðsmynd í Selstaðavík“ og forsenda þeirrar sviðsmyndar.
Slysasviðsmyndin miðast við að atburðurinn verði skömmu fyrir tæmingu kvíabólsins vegna slátrunar. Fiskurinn er því stór og kvíabólið nálægt mesta lífmassa. Sem vinnuforsenda er miðað við 3,5–4,5 kg lifandi þyngd á hvern fisk.
Í sviðsmyndinni er jafnframt miðað við að heildarlífmassi í kvíabólinu geti verið um 9.000–9.500 tonn þegar slysið verður en það er sá massi sem nefndur er í leifisveitingunni.
Flóðið kemur niður fjallshlíðina:
Efni sem fer af stað hátt í fjallinu getur farið býsna hratt niður og sá hraði margfaldast eftir því sem neðar dregur. Jafnframt tekur flóðið sífellt með sér nýtt efni svo magnið eykst samhliða hraðaaukningunni. Þegar flóðið nær sjónum skiptist atburðarásin í tvo hluta. Þyngsti hluti massans fer niður undir yfirborðið en léttari, vatnsríkari hluti hans heldur áfram í nokkuð láréttri línu út frá landi.
Botnskriðan:
Þyngsti hluti flóðsins fer aðra leið. Grjót, jarðvegur og þéttur vatns mettaður massi fer niður undir yfirborðið og skríður niður þá bröttu sjávarhlíð sem fjölgeislamælirinn sýnir okkur á myndunum. Þessi þyngri hluti hefur mikinn skriðþunga þegar hann kemur í sjóinn. Viðnámið eykst, en þyngdaraflið heldur áfram að draga hann niður sjávarhlíðina. Á leiðinni getur þessi þétti massi svo rifið upp laus setlög, grjót og annað efni af botninum tekið það með sér og aukist ennþá meir að magni, rúmfangi og þyngd.
Eitt eða fleiri akkeri eða festingar landmegin geta verið í vegi botnskriðunnar. Skriðan þarf ekki að rífa akkeri alveg upp til þess að skaðinn verði alvarlegur. Hún getur fært það, grafið undan því, hlaðið efni að því eða laskað festilínu. Þannig getur fyrsta bilunin hafist neðan sjávar áður en yfirborðshluti flóðsins nær kvínni.
Sjórinn fyrir framan botnskriðuna:
Þegar þungi flóðmassinn skríður niður sjávarhlíðina ryður hann sjónum frá sér. Hluti sjávarins þrýstist fram og til hliðanna en hluti leitar upp á við.
Öflug vatnshreyfing neðan frá getur þrýst pokabotninum upp. Þegar pokabotninn lyftist minnkar rýmið inni í kvínni og fiskurinn þjappast saman. Í fullri kvínni eru hundruð tonna af lifandi stór fiski sem leitast nú æðisgengin af ótta við að forðast þessa óvæntu hættu með þeim afleiðingum að snerting við netpokavegginn og hvert annað veldur misjafnlega miklum áverkum vegna nudds, skraps og högga sem fylgja troðningnum.
Pokinn fellur aftur:
Botnskriðan heldur áfram niður sjávarhlíðina meðfram innri hlið pokans undir hann og áfram niður frá svæðinu undir kvínni. Sog myndast þegar sjórinn fyllir aftur rýmið sem hinn þungi flóðmassi ruddi frá sér. Sogið dregur pokabotninn hratt til baka niður aftur.
Fiskurinn inni í kvínni stöðvast hins vegar ekki á meðan. Hann hefur sinn eigin massa, hraða og skriðþunga og er enn í óðagoti eftir fyrra höggið. Þegar pokinn dregst niður aftur lendir fiskurinn því aftur í sömu árekstrunum hver við annan og netpokann.
Yfirborðshluti flóðsins kemur:
Á meðan botnskriðan heldur áfram niður sjávarhlíðina hefur léttari hluti flóðsins flotið hratt áfram ofan á seltu lagi sjávarins í átt að kvíunum eða kvínni.
Þetta er ekki venjuleg sjóbylgja. Þarna er á ferð blanda af ferskvatni, snjó, blautum krapa, ís og öðru efni sem flóðið hefur tekið með sér niður hlíðina. Jafnframt ýtir þessi massi sjónum á undan sér og setur sjóinn umhverfis sig á hreyfingu.
Fráspyrnukraftar flóðsins þrýsta á landhlið kvíarinnar og leitast jafnframt við að lyfta henni upp á við. Krapi, snjór og sjór geta farið yfir flothringinn og aukið þunga og ójafnvægi landmegin.
Lyftimunur og þrýstingsmunur:
Við eðlilegar aðstæður heldur sjórinn flothringnum uppi. Í hamfarasviðsmyndinni getur flóðmassinn aukið þrýsting og lyftingu landmegin á sama tíma og kraftar sjómegin toga hringinn niður.
Landmegin leitast flóðið við að lyfta kvínni. Sjómegin toga festingarnar hana niður. Þannig myndast bæði niðurdráttar kraftur og lyftikraftur á sama tíma milli hliða kvíarinnar. Þetta má sjá fyrir sér eins og þegar ýtt er upp undir annan enda á þungum hlut en hinn endinn er togaður niður: hluturinn færist ekki aðeins til, hann byrjar að velta.
Landmegin festingarnar gefa sig:
Flóðmassinn reynir að færa kvíina lárétt út í fjörðinn. Landmegin festingarnar taka við meginálaginu, en ein eða fleiri þeirra kunna þegar að hafa laskast vegna botnskriðunnar.
Ef ein festing gefur sig færist álag hennar yfir á þær sem eftir eru. Ef sú næsta gefur sig eykst álagið enn. Fyrsta bilunin getur þannig orðið upphaf keðjubilunar.
Kvíin fer af stað út í fjörðinn:
Þegar landmegin festingar gefa sig færist kvíin út í fjörðinn undan flóðmassanum. Sjómegin festingarnar stöðva hreyfinguna ekki strax. Þegar kvíin færist í átt að akkerum þeirra slaknar fyrst á tengilínunum sem eru á milli.
Flothringurinn færist, netpokinn aflagast og fisk- og vatnsmassinn inni í honum heldur áfram með eigin tregðu og skriðþunga.
Þegar slaka sjómegin festinganna lýkur:
Þegar slaka sjómegin festinganna endanlega lýkur, gerist það frekar snögglega.
Sjómegin akkerin eru enn á sínum upphaflega stað en kvíin hefur færst út í fjörðinn. Festingarnar eru því komnar undir kvíina. Þær toga í kvíina mjög ofarlega, en togstefnan liggur niður og inn undir hana að akkerunum á botninum.
Á sama augnabliki heldur flóðmassinn áfram að þrýsta á landhliðina og leitast við að lyfta henni. Sjómegin hliðin er því toguð niður á meðan landhliðinni er lyft upp.
Þessir kraftar vinna saman að því að sporðreisa kvínni – velta henni yfir.
Netpokinn og massinn í honum fylgja ekki þessari breytingu samstundis. Þannig verða snögga veltihreyfingin og skriðþungi farms hennar mismunandi ólíkir hlutar af sama atburðinum.
Fiskmassinn er lifandi farmur:
Fiskurinn er ekki fastur við kvíina. Þegar kvíin fer að sporðreisast byrjar fiskmassinn ekki að snúast með henni á sama augnabliki. Hann fylgir tregðu lögmálinu.
Ef hundruð tonna af fiski eru í kvínni þarf gríðar mikinn kraft til að breyta hreyfingu alls þessa massa . Því sneggri sem breytingin er, þeim mun meiri verður orkan sem til þess þarf að vera. Krafturinn flyst eftir leiðinni: akkeri → festilína → flothringur og burðarkerfi → netpoki → vatn og fiskmassi. Gagnkrafturinn berst sömu leið til baka. Þegar sjómegin festingarnar taka upp slakan geta þær því á sama augnabliki verið að stöðva færslu kvíarinnar, toga sjómegin hlið hennar niður og taka við hluta tregðukraftanna frá fisk- og vatnsmassanum.
Líf massinn færist og eykur veltuna:
Þegar landhliðin rís og sjómegin hliðin sígur leita fiskurinn og vatnið niður í lægri hluta netpokans. Staðsetning þungans breytist og þyngdarpunktur fiskhlutans færist í átt að þeirri hlið sem þegar er að síga.
Þannig getur fiskmassinn sjálfur aukið veltivægið: kvíin hallar → fiskmassinn færist → þyngdarpunkturinn færist → veltivægið eykst → kvíin hallar meira.
Skyndileg þrenging rýmisins og súrefnisskortur:
Þéttleikaaukning fisksins stafar ekki aðeins af því að fiskurinn færist saman. Sjálfur netpokinn er jafnframt að aflagast mjög hratt.
Hlutar pokans geta þrýstst inn, lagst saman eða færst upp. Þá minnkar raunverulegt lífrými fisksins á sama tíma og fiskurinn pakkast þéttar saman. Þarna koma saman þrír þættir á sama augnabliki: mikil þétting fiskhlutans → snögg minnkun á vatnsrými → aukin súrefnisþörf fisks í óðagoti. Afleiðingin getur orðið mjög hraður og staðbundinn súrefnisskortur. Fiskdauði getur því hafist áður en kvíin brotnar, veltur alveg eða fiskurinn nær að sleppa.
Fiskheldnin getur tapast áður en kvíin brotnar:
Kvíin þarf ekki að velta alveg til þess að fiskheldni tapist. Þegar sjómegin hliðin sígur getur efri brún netpokans farið niður að eða undir sjávarborð.
Þá getur fiskur farið yfir netbrúnina þótt flothringurinn sé enn heill og netið órifið. Við erum nefnilega hér að tala um laxinn sem bæði kann og getur stokkið töluvert hátt upp og ekki síst þegar hann telur sig vera að flýja bráða lífshættu.
Hvað getur rúmast mikið af fiski í einni kví?
Slysasviðsmyndin miðast við fisk skömmu fyrir slátrun, 3,5–4,5 kg lifandi þyngd á fisk. Nákvæma meðalþyngd verður vonandi hægt að staðfesta með sláturgögnum Kaldvíkur/Fiskeldis Austfjarða.
Ef dæmigerð fullhlaðin kví bæri til dæmis 600–700 tonn af fiski, samsvarar það við 3,5–4,5 kg meðalþyngd eða um 133.000–200.000 fiskum í einni kví. Endanlegt dæmi verður reiknað þegar staðfest dreifing lífmassa milli kvía liggur fyrir.
Ef slík kví sporðreisist og hellir úr sér getur mjög mikill fjöldi stórra sláturfiska farið út á skömmum tíma. Fiskurinn er þá líklega meira og minna skaddaður eftir þéttingu, árekstra, aflögun netpokans og súrefnisskort.
Dómínóáhrifin:
Kvíarnar eru hlutar af stærra festikerfi. Ef ein kví færist, sporðreisist eða veltur breytist rúmfræði festikerfisins og álag getur færst yfir á næstu kví.
Fyrsta festingin gefur sig → fyrsta kvíin færist → álag færist til → næsta festing fær þá aukið álag → önnur kví byrjar að hreyfast → rúmfræði festikerfisins breytist enn frekar.
Þar með eru dómínóáhrifin komin á fulla ferð.
Sjómegin festingar mismunandi kvía geta tekið upp slakan á mismunandi augnablikum. Ein kví getur verið farin að sporðreisast á meðan sú næsta heldur áfram út í fjörðinn. Þá geta tog, þrýstingur, lyfting, niðurdráttur, hliðarátak og veltivægi verkað samtímis.
Heildarmagn kvíabólsins:
Við 9.000–9.500 tonna heildarlífmassa og 3,5–4,5 kg lifandi þyngd á fiskinum. Er stærðargráðan í öllu kvíabólinu um 2,0–2,7 milljónir fiska. Nánar: 9.000 tonn samsvara um 2,00 milljónum fiska við 4,5 kg og um 2,71 milljónum við 3,5 kg.
Afleiðingar slysa sleppingarinnar:
Kvíin þarf ekki að brotna til þess að fiskurinn sleppi.
Við sporðreisn, mikla aflögun netpokans eða skyndilega breytingu á lögun kvíarinnar getur fiskheldni tapast áður en flothringur, net eða festingar brotna í venjulegum skilningi.
Kví getur því misst fiskheldni löngu áður en hægt er að segja að hún hafi „brotnað“.
Í þeirri slysasviðsmynd sem hér er rakin verður þetta sérstaklega alvarlegt vegna þess að slysið er látið verða skömmu fyrir tæmingu kvíabólsins vegna slátrunar. Fiskurinn er þá orðinn stór, um 3,5–4,5 kg að lifandi þyngd, og heildarlífmassi kvíabólsins getur verið 9.000–9.500 tonn. Við þann lífmassa er fiskafjöldinn í öllu kvíabólinu af stærðargráðunni 2,0–2,7 milljónir fiska.
Þetta breytir eðli slyssins.
Hér er ekki lengur aðeins verið að spyrja hvort nokkur hundruð eða nokkur þúsund laxar geti sloppið. Ef fullhlaðin kví sporðreisist, aflagast verulega eða hellir úr sér hluta fisksins getur fjöldinn úr þeirri einu kví orðið mjög mikill. Ef bilunin færist síðan milli kvía með dómínóáhrifum getur slysasleppingin farið úr því að teljast slys í einni kví yfir í stórfellda losun úr verulegum hluta kvíabólsins. Sem þýðir í stuttu máli umhverfis slys af hingað til óþekktri stærðargráðu við landið okkar.
Fiskurinn sem kemur úr kvínni:
Áður en fiskheldnin tapast er mjög líklegt að fiskurinn hafi orðið fyrir mikilli og skyndilegri þéttingu inni í netpokanum, árekstrum við annan fisk, höggum á net og burðarhluta kvíarinnar, þrýstingi þegar netpokinn aflagast, súrefnisskorti þegar virkt vatnsrými minnkar og miklu óðagoti af hinu skyndilega áfalli þegar örugga heimilið skyndilega kippist til, hallar eða sporðreisist.
Því getur fiskurinn sem sleppur verið allt frá tiltölulega ósködduðum fiski yfir í marinn, hreisturskemmdan eða særðan fisk. Hluti getur verið svo illa farinn að hann drepst skömmu síðar en annar hluti getur lifað af og synt frá slysstaðnum.
Það þýðir að afleiðingarnar skiptast strax í tvo meginhluta: annars vegar dauður og skaddaður fiskur í og við Seyðisfjörð, hins vegar lifandi strokulax sem getur yfirgefið fjörðinn.
Skaðinn einangrast ekki við Selstaðavík:
Selstaðavík er ekki lokað vistkerfi. Lax sem sleppur úr kvíunum er ekki bundinn við slysstaðinn og ekki heldur við Seyðisfjörð. Lifandi fiskur getur dreifst frá slysstaðnum, út eftir firðinum og út á hafsvæðið fyrir utan.
Þar með breytist landfræðilegt umfang slyssins. Atburður sem hefst á örfáum sekúndum ofarlega í fjallshlíðinni við Selstaðavík getur haft afleiðingar langt frá þeim stað þar sem flóðið féll í sjóinn.
Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar litið er til þess að leyfiskerfið sjálft gerir greinarmun á frjóum og ófrjóum laxi. Af þeim 10.000 tonnum sem leyfið heimilar í Seyðisfirði mega 6.500 tonn vera frjór lax en 3.500 tonn ófrjór lax. Mörkin fyrir frjóa laxinn tengjast áhættumati Hafrannsóknastofnunar á erfðablöndun eldislax við villta laxastofna.
Áhættan af slysasleppingu verður ekki aðeins mæld í tonnum eða verðmæti fisks sem rekstraraðilinn missir. Hún verður einnig að mælast í fjölda lifandi frjórra eldislaxa sem geta komist út úr kvíakerfinu og hvert þeir geta farið eftir það.
Þegar stór lax sleppur skömmu fyrir slátrun:
Slys skömmu fyrir slátrun er að þessu leyti allt annars eðlis en strok mjög smárra seiða. Hér er verið að vinna með stóran eldislax, um 3,5–4,5 kg að lifandi þyngd. Fiskurinn hefur þegar lifað lengi í sjó og sá hluti hans sem lifir sjálft slysið af kemur út í náttúruna sem stór fiskur.
Ef frjór fiskur úr þessum hópi lifir af verður því að skoða möguleika hans á að leita í ferskvatn og ganga í ár. Þá er ekki lengur nóg að spyrja: Hve margir fiskar sluppu úr Selstaðavík? Spurningin verður einnig að vera: Hve margir þeirra voru frjóir, hve margir lifðu af, hvert dreifðust þeir og í hvað margar ár geta þeir gengið?
Villtir laxastofnar og erfðablöndun:
Ástæðan fyrir því að þetta verður landsmál liggur meðal annars hér. Áhættumat erfðablöndunar væri óþarft ef frjór eldislax gæti ekki sloppið, gengið í ár og blandast villtum stofnum. Leyfiskerfið sjálft viðurkennir þessa áhættu með því að takmarka magn frjós lax í Seyðisfirði.
Stór slysaslepping verður því að skoðast í samhengi við nákvæmlega þá áhættu sem 6.500 tonninn eiga að halda hlutunum, samkvæmt leyfisveitingunni innan ásættanlegra marka.
Ef slysasleppingin er lítil getur áhættan verið ein stærðargráða. Ef tugir þúsunda fiska sleppa er hún önnur. Ef hundruð þúsunda stórra laxa sleppa samtímis er hún en allt önnur.
Og ef dómínóbilun í kvíabólinu opnar leið fyrir verulegan hluta þeirra 2,0–2,7 milljóna fiska sem geta verið í bólinu við þessa slysaforsendu er komið upp atvik sem verður að meta sem sérstaka stórslysasviðsmynd. Þar verður að reikna fjölda frjórra fiska, ekki aðeins heildarfjölda strokufiska.
Áhrifin geta borist í ár langt frá Seyðisfirði:
Strokulax virðir hvorki sveitarfélagamörk né mörk þess fjarðar sem er uppeldis stöð hans. Þess vegna nægir ekki að meta afleiðingar slíkrar slysasleppingar eingöngu út frá Seyðisfirði. Ef lifandi frjór eldislax dreifist frá slysstaðnum og gengur síðar í laxveiðiár geta tjónþolarnir verið langt frá upprunastað slyssins. Þar geta komið til villtir laxastofnar, veiðiréttarhafar, eigendur jarða með veiðihlunnindi, veiðifélög, rekstraraðilar í stangveiði og samfélög þar sem verðmæti laxveiði byggist á heilbrigðum villtum stofnum.
Þess vegna getur ekki verið fullnægjandi að reikna eingöngu verðmæti þess eldisfisks sem rekstraraðilinn tapar.
Dauður og særður fiskur er annar hluti sama slyss:
Ekki má heldur horfa aðeins á þann fisk sem syndir lifandi frá Selstaðavík. Ef mikið magn stórs fisks drepst eða er svo illa skaddað að hann drepst skömmu síðar skapast annað vandamál.
Hundruð eða þúsundir tonna af lífrænum massa hverfa ekki þótt fiskurinn sé dauður. Hluti getur sokkið. Hluti getur rekið. Hluti verður étinn af fuglum, fiskum og öðrum hræætum. Niðurbrot dauðs fisks getur jafnframt aukið staðbundið lífrænt álag meðal annars með því að nota og eyða upp öllu súrefni í umhverfi sínu.
Því verður stórslysagreiningin að greina á milli að minnsta kosti þriggja hópa: fiskur sem verður eftir í laskaðri kví, fiskur sem sleppur lifandi og fiskur sem sleppur eða fellur úr kvínni en drepst vegna áverka eða súrefnisskorts. Allir þrír hóparnir hafa mismunandi afleiðingar.
Björgun getur verið bæði sein og hættuleg:
Strax eftir slysið getur staðan við kvíabólið verið mjög erfið. Festilínur geta legið lausar eða strekktar undir yfirborði. Kvíar geta verið hálfsokknar eða afmyndaðar. Akkeri geta hafa færst. Ein kví getur enn verið á hreyfingu meðan önnur heldur. Fiskur getur verið lifandi, særður eða dauður í sömu kví.
Ofan við þetta allt er fjallshlíð þar sem nýtt flóð getur enn fallið. Það er því ekki sjálfgefið að hægt sé að senda báta og fólk samstundis inn í kvíabólið til að loka neti, festa kví eða hefja endurheimt fisks. Fyrstu mínúturnar og klukkustundirnar geta einmitt verið sá tími þegar mestur fiskur sleppur.
Tjónið nær langt út fyrir verðmæti eldisfisksins:
Við stórfellda slysasleppingu þarf að horfa samtímis á tap rekstraraðila vegna fisks og mannvirkja; skemmdir á kvíum, netum, festingum og akkerum; mögulegt tjón á öðrum mannvirkjum; kostnað við björgun, hreinsun og endurheimt strokufisks; umhverfistjón; tjón eigenda sjávarjarða; tjón veiðiréttarhafa; mögulegt tjón laxveiðiáa og þeirra sem byggja atvinnu á þeim; kostnað sveitarfélags og ríkis; og tjón sem kann að koma fram löngu eftir sjálft slysið.
En þá vaknar óhjákvæmilega ábyrgðarspurningin:
Hver ber tjónið ef stórslys sem hægt var að sjá fyrir verður að veruleika?
Er það eingöngu rekstraraðili eldisins? Hvað með leyfisveitendur og önnur stjórnvöld ef þekkt ofanflóðahætta var fyrir hendi en samfelld bilanagreining frá fjalli, niður í sjó, í festikerfið, kvíarnar og áfram til slysasleppingarinnar var ekki gerð?
Og hvað með sveitarfélagið? Ef það hafði möguleika á að koma í veg fyrir áhættuna með því að hafna Selstaðavík sem staðsetningu fyrir opið sjókvíaeldi?
Kjarni málsins:
Hamfarasviðsmyndin endar því ekki þegar kví sporðreisist. Hún endar ekki heldur þegar fiskurinn fer úr netpokanum. Þar hefst annar hluti slyssins.
Ofanflóðið getur staðið yfir í mjög stuttan tíma. En afleiðingar slysasleppingarinnar geta mælst í árum og komið fram hundruð kílómetra frá Selstaðavík.
Ofanflóð → botnskriða og yfirborðsflóð → festingar bila → kví færist → sjómegin festingar strekkjast → kví sporðreisist → fiskheldni tapast → stór lax sleppur → fiskurinn dreifist → frjór strokulax gengur í ár → hætta skapast fyrir villta laxastofna og veiðihlunnindi.
Þetta er ein samfelld slysasviðsmynd.
Var þessi heildaratburðarás reiknuð og teiknuð áður en ákveðið var að Selstaðavík væri ásættanleg staðsetning fyrir opið sjókvíaeldi?
Spurningar sem nauðsynlegt er að fá hreinskilin og rækileg svör við:
Var reiknað út hvað gerist þegar botnskriða laskaði eitt eða fleiri landmegin akkeri eða festingar áður en yfirborðsflóðið nær kvínni?
Voru reiknuð út áhrif vatnshreyfingar neðan frá á netpokann, fiskrýmið og fiskmassann?
Var reiknað út hvort þrýstings- og lyftimunur af völdum flóðsins, ásamt skyndilegu niðurátaki sjómegin festinganna, geti myndað nægilegt veltivægi til að sporðreisa kvínni eða velta henni?
Var reiknað með tregðu, tilfærslu og skriðþunga fisk- og vatnsmassans þegar kvíin breytir skyndilega um hraða og stefnu?
Var reiknað hve mikið virkt vatnsrúmmál netpokans getur minnkað og hve hratt súrefnisstyrkur getur fallið við skyndilega þéttingu fisks?
Var reiknað hvort fiskheldni geti tapast áður en flothringur, net eða festing nær uppgefnum brotstyrk?
Hvar hefur verið sýnt fram á að dómínóáhrif stöðvist ef fyrsta fullhlaðna kvíin fer af stað út í fjörðinn?
Var reiknað umfang mögulegrar slysasleppingar miðað við raunverulegan lífmassa og fiskafjölda skömmu fyrir slátrun?
Niðurlag – hver ber skaðann?
Ef slík slysakeðja verður að veruleika nær tjónið langt út fyrir verðmæti eldisfisks og búnaðar. Það getur náð til umhverfis, villtra fiskstofna, sjávarjarða, veiðiréttinda, annarra mannvirkja og opinberra aðila, auk kostnaðar við björgun, hreinsun og endurheimt strokufisks. Þá skiptir máli að greina á milli þess hvort eldisfyrirtækið sé tryggt fyrir eigin kostnaði og þess hvort þeir sem verða fyrir afleiðingunum fái sitt tjón bætt. Kví og festikerfi hafa verð sem hægt er að reikna; Mun erfiðara er að verðleggja glataðar nytjar, skaða á villtum fiskstofni eða afleiðingar sem koma fram árum síðar.
Þarna koma eigendur sjávarjarða og veiðiréttarhafar aftur inn myndina. Ef hagsmunir þeirra voru taldir of litlir á sínum tíma, til að veita þeim aðild að ákvörðunum um mannvirkin. Eru þeir engu að síður á meðal þeirra sem bera langvarandi skaða af atburðinum þegar mannvirkin bila.
Hver ber ábyrgð á afleiðingunum? Hvað er tryggt? Hver greiðir það sem tryggingar bæta ekki? Og hver ber kostnaðinn ef áhrifin vara árum saman?
Lokaorð:
Hvar liggja ásættanleg áhættumörk að áliti ábyrgra opinberra aðila ? Gagnvart þessari sviðsmynd hér fyrir ofan. Hver er sú prósentu tala? Er það 1 % - 5 % 7 %. Eða á kannski að miða við þá % sem talin er ásættanleg í Kauphöllinni ?
Persónulega tel ég.
Að þó áhættan á að þessi sviðsmynd mín í sinni verstu mynd raungerðist aðeins í prósentutölunni 0,01 þá er hún samt of mikil. Til að halda þessu stórfurðulega máli áfram.
Hagsmunir hverra eiga að vega þyngst í þessu furðulega og langdregna máli?
Hagsmunir Íslands með einni sívakandi samfellu í framtíð og lífi þegna sinna?
Eða hagsmunir þeirra sem hugsa og lifa öllu sínu lífi eingöngu í %
Á hræðsla opinbera kerfisins:
Við að viðurkenna að þar geta gerst mistök alveg eins og hjá öðrum þegnum okkar og tilhugsunin um hugsanlega greiðslu skaðabóta. Virkilega að ráða ferðinni í þessu máli öllu saman? Fyrir Seyðfirðinga snýst þetta ekki aðeins um leyfi, tonnatölur og reglugerðir. Þetta snýst um fjörðinn þeirra, umhverfið, atvinnulífið, samfélagið og það sem verður skilið eftir fyrir komandi kynslóðir. Þetta eru lífshagsmunir fólksins sem byggir samfélagið
Á móti koma fjárhagslegir hagsmunir tiltölulega lítils hóps innlendra og erlendra fjárfesta. Þeir hagsmunir eru eðlilegur hluti atvinnulífs allra landa og áhætta í því sambandi er hið daglega umhverfi þar. Svo auðvitað berjast þeir eins og grimmir hundar fyrir sínum einka hagsmunum og eru ekkert sérstaklega að taka tillit til almennings.
En hamfarasviðsmyndin í Selstaðavík knýr fram grundvallarspurninguna:
Hver fær ávinninginn – og hver ber áhættuna? Hve stór hluti verðmætasköpunarinnar rennur til eigenda og hluthafa fyrirtækisins Kaldvíkur? Hverjir geta hins vegar misst nytjar, veiðiréttindi eða verðmæti sjávarjarða, borið umhverfistjón eða setið uppi með langtímaskaða sem kemur fram árum síðar? Spurningin er als ekki um hvort fjárhagslegir hagsmunir fyrirtækis og hluthafa þess séu lögmætir. Spurningin snýst um hvaða vægi þeir eiga að hafa. Þegar á móti standa hagsmunir almennings, náttúrunnar, byggðarlagsins, eigenda sjávarjarða, veiðiréttarhafa og komandi kynslóða. Þar sem hluti áhættunnar getur fallið á aðra en þá sem fá fjárhagslegan ávinning af starfseminni.
Hvar er rannsóknin sem sýnir hver hinn raunverulegi samfélagslegi ávinningur er, hverjir njóta hans og hvernig hann vegur á móti þeim náttúru, nytja, eignar og samfélagshagsmunum sem kunna að skerðast?
Hvora hagsmunina eiga stjórnvöld að láta vega þyngra þegar þau ákveða hvort þessi áhætta skuli tekin? Hagsmuni fjöldans eða einkahagsmuni:
Skrifað á Selfossi 5/10 2026
Reynir Valgeirsson
Heimildaskrá
Heimildirnar hér að neðan styðja staðreyndir, staðsetningar, leyfisforsendur og þekkta áhættuþætti sem hamfarasviðsmyndin byggir á. Sjálf samfellda hamfarasviðsmyndin, bilanakeðjan og þær afleiðingar sem þar eru dregnar upp eru sviðsmynd og túlkun höfundar nema annað sé sérstaklega tekið fram.
1. Fiskeldi Austfjarða hf. / EFLA – Matsskýrsla vegna 10.000 tonna eldis á laxi í Seyðisfirði, 16. júní 2021.
Meginheimild um framkvæmdina, eldissvæðin í Seyðisfirði, kvíar og tengdan búnað, umferð og rekstur, slysasleppingar, erfðablöndun, samfélag, nytjar og aðra umhverfisþætti sem metnir voru í leyfisferlinu.
2. Matvælastofnun – Tillaga að rekstrarleyfi FE-1135b, Kaldvík hf., Seyðisfjörður.
Styður 10.000 tonna samanlagðan hámarkslífmassa í Seyðisfirði, staðsetningu og hnit nýtingarreitsins í Selstaðavík (SN2) og að leyfið byggist á burðarþols- og erfðablöndunaráhættumati Hafrannsóknastofnunar. Leyfisgögnin gera jafnframt grein fyrir kynslóðaskiptu sjókvíaeldi frjós og ófrjós lax.
Bein heimild: https://www.mast.is/static/files/Fiskeldi/Kaldvik/tar_kaldvik-hf.-seydisfirdi-fe1135b.pdf
3. Hafrannsóknastofnun – Áhætta erfðablöndunar, ráðgjöf 2020, 11. maí 2020.
Styður að ráðlagt hámark fyrir frjóan lax í Seyðisfirði sé 6.500 tonna hámarkslífmassi og að þetta magn sé ákvarðað með hliðsjón af áhættu erfðablöndunar eldislax við náttúrulega laxastofna.
Bein heimild: https://www.hafogvatn.is/static/extras/images/endurskodud_radgjof_ahaettumat20201206808.pdf
4. Hafrannsóknastofnun – Áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi, HV 2017-027.
Grunnheimild um þá áhættu að eldislax sleppi úr sjókvíum, gangi í ár og blandist náttúrulegum laxastofnum og um þá aðferðafræði sem íslenskt áhættumat erfðablöndunar byggist á.
5. Hafrannsóknastofnun – Erfðablöndun villts íslensks lax og eldislax af norskum uppruna, HV 2023-25.
Rannsókn á 6.348 laxaseiðum úr 89 ám. Þar greindust fyrstu kynslóðar blendingar eldislax og villts lax í 17 ám. Heimildin styður að erfðablöndun er ekki aðeins fræðilegur möguleiki heldur hefur hún greinst í íslenskum ám.
6. Veðurstofa Íslands – Ofanflóðahættumat og rannsóknargögn fyrir Seyðisfjörð.
Yfirlitsheimild um ofanflóðasögu, hættumat, kort og rannsóknir á snjóflóðum og skriðuföllum á Seyðisfirði. Heimildin styður almennt að ofanflóð eru þekktur og rannsakaður náttúruváþáttur í Seyðisfirði. Nákvæm talning flóða við Selstaðavík í greininni byggist hins vegar á sérstökum vinnugögnum höfundar og þarf að rekja hana sérstaklega að þeim gögnum.
Bein heimild: https://www.vedur.is/ofanflod/haettumat/seydisfjordur/
7. Fjölgeislamælingar og dýptargögn fyrir Seyðisfjörð – gögn notuð við rannsókn höfundar á Selstaðavík.
Styðja lýsingu á dýptarlínum, sjávarhlíð og miklum botnhalla út frá Selstaðavík. Í þessari lokagerð þarf að halda upprunalegum kortum/uppdráttum eða nákvæmri útgáfuheimild með greininni ef hún er birt með tölulegum dýptum og hallalýsingum.
8. Aðalteikning / uppdráttur EFLU af kvíafyrirkomulagi í Selstaðavík – vinnugagn sem höfundur byggir mælingar sínar á.
Úr uppdrættinum eru í greininni lesin staðsetning kvíaraðar, um 50 m þvermál kvía, fjarlægð frá landi og dýpi við land- og sjómegin festingar. Tölurnar um allt að 14 kvíar, um 940 m heildarlengd og 260–350 m fjarlægð frá landi eru því mælingar/túlkun höfundar af uppdrættinum og eiga að sannreynast við upprunalega teikningu áður en greinin er birt.
Um túlkun og ábyrgð höfundar
Heimildirnar hér að framan eru lagðar fram til stuðnings þeim staðreyndum og upplýsingum sem til þeirra er vísað. Fullyrðingar, ályktanir, túlkanir og mat sem ég dreg af efninu, en verða ekki beinlínis rakin til tilgreindra heimilda, eru mín eigin túlkun og mitt álit. Ég ber sjálfur ábyrgð á þeim hluta efnisins.