Eyjan

Dóra Sif Tynes: Það er engin undanþága frá bókun 35 – við verðum að innleiða hana rétt

Mynd

Á meðan við ekki innleiðum bókun 35 með réttum hætti verða íslenskir borgarar fyrir réttindamissi og eru ekki jafnsettir borgurum annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Allt tal um að Ísland hafi átt að fá undanþágu frá bókun 35 er byggt á misskilningi og stenst enga skoðun. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

„Hæstiréttur fer að verða íhaldssamari í hvernig þessari skýringarreglu er beitt og fer í raun og veru að segja í, ja, þó nokkrum dómum að skýringarregla 3. greinar nái ekki svo langt að hún geti átt við þegar þú sért með skýrt ótvírætt lagaákvæði og byggja það þá á í raun og veru kenningum um löggjafarviljann og Hæstiréttur er að segja: Við getum ekki útilokað að löggjafinn vilji brjóta gegn þjóðréttarskuldbindingum og þess vegna getum við ekki beitt þessari skýringarreglu. Þannig að það er það sem gerist og auðvitað í grunninn verðum við að muna þetta. Auðvitað er þetta kannski ekkert sérstaklega mörg mál.“

Nei, nei, en þau geta skipt miklu máli hvert og eitt þeirra.

„Já, þetta getur náttúrulega skipt fólk verulega miklu máli. Fólk getur átt réttindi samkvæmt EES-samningnum, hvort sem það er til fæðingarorlofs eða greiðslu úr Ábyrgðarsjóði launa eða réttindi vegna skaðsemisábyrgðar. Þetta eru réttindi og fyrirtæki geta átt réttindi á því t.d. að flytja inn ófryst kjöt. Og náttúrlega meðan við höfum ekki þá þessa forgangsreglu með skýrum hætti í íslenskum rétti, þá er náttúrlega hætta á því að það verði réttindamissir. Og þá er í raun og veru eina leið, hvort sem að það er einstaklingur eða fyrirtæki, eina leiðin til þess að leita réttar síns er að fara í skaðabótamál við ríkið. Og það er náttúrlega bæði tímafrekt og kostnaðarsamt.“

Ja, það er bara ekkert á allra færi að gera það.

„Nei, alls ekki og myndi efalaust sjaldnast falla undir gjafsóknarheimildir. Þannig að það er nú kannski það sem mér finnst svona skrýtnast í umræðunni, að þessi staða að það er mögulegur réttindamissir fólks sem Alþingi getur komið í veg fyrir, að það skuli ekki vera kannski meira svona central í umræðunni.“

Já, þetta er líka, þegar maður horfir á, um hvað snýst EES? Hann snýst náttúrlega um einn innri markað og til að raungera hann þá er sérstaklega kveðið á um þetta margumrædda fjórfrelsi. Og náttúrlega til að það sé raunverulega einn markaður þá þurfa að vera sömu forsendur alls staðar á markaðnum. Og bókun 35, ef ég skil þig rétt, hún er einmitt til þess að gæta þess að færa umhverfið, lagaumhverfi, réttindaumhverfið í EFTA-löndunum sem eru inni í EES á sama þannig að þau séu sambærileg við það sem er lögbundið í Evrópusambandinu.

„Já, það má eiginlega orða það kannski frekar þannig að tilgangurinn er að gera borgarana jafnstæða. Það er að segja að aðili á Íslandi njóti sama réttar og aðili í Þýskalandi eða Belgíu.“

Já. þetta hlýtur náttúrlega að vera bara einn hornsteinn EES að svo sé.

„Já, grunnmarkmið EES-samningsins er að búa til þetta einsleita efnahagssvæði. Það er að segja að það sé efnahagssvæði þar sem gildi sömu reglur og sömu samkeppnisskilyrði, sem er ekki síður mikilvægt. Og til þess að það séu sömu samkeppnisskilyrði þá þurfum við náttúrlega allir að lúta sömu reglum, ekki satt? Og þess vegna hefur mér þótt sérstakt að ég hef eitthvað heyrt því fleygt í umræðunni að Ísland hafi átt að hafa fengið einhvers konar undanþágu frá því að innleiða bókun 35. Það væri bara mjög sérstakt í ljósi þess að þetta eru nú grunnreglur samningsins og líka held ég að ef svo hefði verið þá hefði nú kannski einhver hripað einhver orð niður á blað og það hefði að minnsta kosti verið einhliða yfirlýsing frá Íslandi sem áréttaði þennan skilning, sem er náttúrlega ekki.

Þannig að ég held að við getum nú svo sem kannski alveg gefið okkur að svo hafi ekki verið. Kannski er þetta misskilningur á aðfararorðunum því aðfararorðin að þessari stöku grein bókunarinnar segja náttúrlega að menn eigi bara að ná þessum markmiðum eftir málsmeðferð í hverju landi fyrir sig. Þannig að í raun og veru, það er ekki skylda til þess að innleiða með lögum ef þú ert bara með dómaframkvæmd sem að nær þessu markmiði fram í reynd.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.