Einni mínútu áður en kjarasamningar brustu tókst samkomulag sem framlengir kjarasamninga VR og fagfélaganna við SA um heila fimmtán mánuði, fram til ársloka 2027. Þar með var því afstýrt að meira og minna allir kjarasamningar bæði á almennum vinnumarkaði og einnig opinberra starfsmanna brystu og fullkomin upplausn ríkti á vinnumarkaði.
Orðið á götunni er að þessi niðurstaða hafi verið fyrirsjáanleg en engan veginn sjálfsögð. Engin stemning var meðal félagsmanna neinna verkalýðsfélaga fyrir því að segja upp kjarasamningum og setja vinnumarkaðinn í uppnám. Engu að síður var Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, búin að mála sig út í horn með ákafri kröfugerð og búin að missa af því tækifæri að skrifa undir samninga í sameiningu með breiðfylkingunni sem samdi á þriðjudag.
Orðið á götunni er að Höllu og félögum hennar hafi vitaskuld verið ljóst að ekki væri minnsti möguleiki á því að VR og fagfélögin myndu sækja meira til SA en breiðfylkingin fékk á þriðjudag. SA gat ekki gefið meira eftir gagnvart þeim án þess að setja allan vinnumarkaðinn í fullkomið uppnám. En Halla var komin í sjálfheldu.
Samt endaði þetta með því að samkomulag náðist um að samningarnir skuli standa út árið 2027, eða í fimmtán mánuði í viðbót.
Inn steig Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Það féll í hennar hlut að höggva á hnútinn. Það var ekki auðvelt hlutskipti vegna þess að inngrip ríkisstjórnarinnar mátti alls ekki hygla einum hópi umfram aðra. Þá var alltaf ljóst að framlag ríkisins til að framlengja kjarasamninga mátti ekki ógna hallalausum fjárlögum.
Orðið á götunni er að það hafi verið snilldarlegt hjá ríkisstjórninni og Kristrúnu að spila út spili sem nýtist öllum launþegum, bæði VR-félögum og félögum í breiðfylkingunni, til jafns. Kröfum Höllu var mætt en hún fékk ekkert ofan á það sem aðrir fá.
Orðið á götunni er að ótvíræður sigurvegari þessarar lotu óvissu á vinnumarkaði sé ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og þá ekki síst Kristrún sjálf. Hún svaraði kallinu og hjó á hnútinn – tryggði áframhaldandi stöðugleika á íslenskum vinnumarkaði í 15 mánuði, fram til ársloka 2027. Forystumenn bæði VR og SA voru einróma í því að lýsa þeirri skoðun sinni að aðkoma forsætisráðherra hefði ráðið úrslitum um að ekki varð alvarleg krísa á íslenskum vinnumarkaði.
Orðið á götunni er að sterk aðkoma forsætisráðherra að því að afstýra upplausnarástandi á vinnumarkaði og tryggja frið í fimmtán mánuði gefi ríkisstjórninni færi á að fylgja nú eftir markvissri stefnu sinni um hallalaus fjárlög sem stuðla að lægri verðbólgu og lægri vöxtum.