Eyjan

Nína Richter skrifar: Trump og grænlensku mörgæsirnar

Mynd
Mynd

Forseti Bandaríkjanna er duglegur að koma sér í fréttirnar með frumlegum hætti, enda hefur hann haft það að ævistarfi að láta á sér bera. Á dögunum birti hann gervigreindarmynd af sjálfum sér að heilsa mörgæsum sem áttu að vera grænlenskar. Þær voru klæddar peysum í bandarísku fánalitunum og virtust himinlifandi með heimsóknina.

Glöggir netverjar áttuðu sig á því að þarna væri ekki allt með felldu. Í fyrsta lagi hefði verið erfitt að klæða allar þessar mörgæsir í föt og fá þær til að stilla sér upp. Það sem þó vakti meiri athygli var að mörgæsir lifa ekki villtar á Grænlandi. Það þótti ástæða til að leiðrétta þetta sérstaklega í fjölmiðlum vestra, svo að enginn færi að halda að á eyjunni fögru byggju mörgæsir.

Heimildargildi ljósmynda hefur aldrei verið hafið yfir allan vafa. Hversu mikið við tökum mark á þeim fer meðal annars eftir því hver birtir þær og í hvaða tilgangi. Við sjáum ljósmyndir af tískufyrirsætum og vitum að þær kunna að vera fótósjoppaðar til tunglsins og til baka, enda getum við nú leikið þetta eftir í smáforriti í símanum. Fyrir tuttugu árum var ekki jafnauðvelt að prófa sjálf hversu langt væri hægt að ganga. Við gerum hins vegar aðrar kröfur til mynda í vísindatímaritum eða á vegum alþjóðastofnana. Það myndi hrikta í heimsmynd okkar margra ef í ljós kæmi að þjóðarleiðtogarnir á myndinni frá leiðtogafundinum hefðu aldrei hist.

En þegar Donald Trump birtir mynd af grænlenskum mörgæsum í peysum með fána vitum við flest að fundurinn fór ekki fram.

Einhvern tíma ákváðum við að láta ljósmyndir fylgja fréttum. Þetta hefur væntanlega þótt nokkuð snjallt þarna í upphafi: „Hér er mynd af því sem gerðist. Best að láta hana fylgja með svo að fólk sjái hvernig þetta var. Sönnun. Prentum þetta í fjölriti.“ Stundum er myndskreytingin af atburðinum sjálfum, stundum er mynd af manneskju að tala, í verstu tilfellum mynd af húsi þar sem einhver ræddi málið. Þá erum við kannski fyrst og fremst að myndskreyta. Þegar heimildargildi ljósmynda er jafn umdeilanlegt, má kannski taka til greina möguleika annarra listforma á þessum vettvangi. Í þessu samhengi verður mér hugsað til listgreinar sem mér er afskaplega kær og hefur staðið í ströngu undanfarinn áratug.

Hvað ef tónlist fylgdi frétt í stað ljósmyndar? Lesendur gætu jafnvel kosið hvaða tónlist ætti best við fréttina, gefið stig eða kosið upp eða niður. Eitthvað svona plug-in á fréttasíðunni. Tónlistarmenn gætu haft tekjur af þessu fyrirkomulagi og það gæti ljáð fréttunum aukna dýpt. Frétt um stýrivexti gæti loksins endurspeglað líðan okkar við lesturinn með tóndæmi. Eitthvað svona ... Myrkir músíkdagar-dæmi.

Fólk færi að semja tónlist fyrir sérstaka fréttatónlistarbanka, til að eiga á lager ef hitt og þetta gerðist. Tónlist fyrir loftsteinaregn. Tónlist fyrir fyrstu geimverurnar á jörðinni. Tónlist fyrir opnun nýrrar mathallar. Tónlist fyrir enn eitt helvítis baðlónið. Ritstjórnir gætu keypt áskrift og haft aðgang að öllum tilfinningaskalanum, frá vægri óánægju með sorphirðu upp í stjórnarslit. Fréttaljósmynd ársins myndi breytast í Fréttatónsmíð ársins. Það yrðu léttar veitingar og viðburður í Perlunni þegar einhver uppskafningur dressaður í Henrik Vibskov tæki við verðlaunagrip úr bronsi fyrir framúrskarandi tónskreytingu við ákaflega flata frétt sem var samt mest lesin vegna þess að tónlistin var bara geðveik.

Ég vil sjá þetta gerast. Við erum svo mikil menningarþjóð og nýjungasjúk að auki. Er ekki eitthvað ráðuneyti til í að fjármagna þetta framtak?