Mikill fengur hefur jafnan verið í heimsóknum bandarískra ráðamanna. Þrátt fyrir breyttar forsendur má segja það sama um komu Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna fyrr í vikunni. Hún svaraði sumum spurningum en skildi menn eftir í lausu lofti með aðrar.
- Megin breytingin frá fyrri heimsóknum felst í því að þetta er í fyrsta skipti, sem slíkur fundur á sér stað hér á landi eftir að Bandaríkin hættu að líta á Ísland og önnur Evrópuríki sem bandalagsþjóðir um vestræn gildi og frjáls viðskipti. Enda var á hvorugt minnst. Sú þögn markar þáttaskil.
- Mestu tíðindin fólust í hinu að Rubio stútaði nýju utanríkisstefnu Miðflokksins og hinna flokkanna í stjórnarandstöðu um fríverslunarsamning við Bandaríkin í stað baktryggingar í frekari tolla- og fríverslunarsamvinnu við bandalagsþjóðir í Evrópu.
- Þá upplýsti hann að Bandaríkin sækist helst eftir pólitískum viðskiptum um orku í samskiptum við Ísland í framtíðinni. Það hafa hvorki bandarísk né íslensk stjórnvöld staðfest fyrr.
- Tilvísun Rubios í hernaðarlega þýðingu Íslands er þekkt staðreynd, sem ein og sér eyðir ekki efasemdum um skuldbindingar Bandaríkjanna, hvorki gagnvart NATO né samkvæmt varnarsamningnum. Þvinganirnar gegn Grænlandi byggðust á svipuðum tilvísunum.
Það er munur á sagnfræði og nútíma
Ríkissjónvarpið var með tvo samtalsþætti síðastliðinn mánudag, sem snertu samskipti Íslands og Bandaríkjanna.
Í fyrri þættinum ræddi þáttastjórnandi við formann utanríkisnefndar og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni um væntanlega heimsókn Rubios. Stjórnandinn nálgaðist viðfangsefnið aldrei í ljósi nýrra aðstæðna og breyttrar hugmyndafræði Bandaríkjanna gagnvart öðrum ríkjum. Allt samtalið fór því fram á forsendum, sem nú heyra sögunni til.
Í beinu framhaldi átti Sigríður Hagalín Björnsdóttir viðtal við Anne Appelbaum, einn áhrifaríkasta og virtasta stjórnmálaskýranda á Vesturlöndum í dag.
Hún dró fram þá grundvallarbreytingu, sem orðið hefur á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Kjarninn í „Ameríka fyrst-stefnunni“ er einfaldur: Engin bandalög. Engin sameiginleg gildi. Engar alþjóðareglur. Bara samskipti þar sem Bandaríkin neyta aflsmunar. Þetta er nútíminn. Þessi stefna breyttist ekki í heimsókn Rubios.
Mikilvægi baktryggingar í Evrópu
Anne Appelbaum dró ekki dul á það mat sitt að Ísland ætti að styrkja samstarfið við Evrópuþjóðirnar. Ástæðan er sú að erfitt verður að eiga samskipti við Bandaríkin á grundvelli „Ameríka fyrst-stefnunnar“ án þess að hafa traustari baktryggingu í bandalagi þjóða, sem standa vörð um vestræn gildi og fríverslun.
Það er einmitt af þessum ástæðum, sem ekki er unnt að tala um samskiptin við Bandaríkin eingöngu á sögulegum forsendum.
Ósk utanríkisráðherra Bandaríkjanna um pólitísk samtöl um orkumál þarf að ræða í þessu ljósi. Hún kallar á að ríkisstjórnin upplýsi þjóðina fyrir fram um rauðar línur í slíkum samningum. Hér þarf ekki að vera hætta á ferðum en gæti verið það í ljósi þess sem annars staðar gerist.
En óskin sýnir að viðskipti við Bandaríkin byggja nú á pólitískum forsendum, sem eru andstæðan við frjáls viðskipti. Þetta er eins og viðskiptin við Sovétríkin á sínum tíma. Þau voru afar umfangsmikil og skiptu þjóðarbúið miklu. Þrátt fyrir aflsmun ríkjanna ógnuðu þau aldrei fullveldi landsins: Þar reið baktryggingin, sem Ísland hafði í NATO-aðildinni, baggamuninn.
Nú hefur blaðið snúist við. Baktrygging í Evrópusamstarfinu er forsenda fyrr nauðsynlegum og mikilvægum samskiptum við Bandaríkin, ef við ætlum að forðast hættuna á leppríkisstöðu. Fullveldi Grænlands og Danmerkur er til að mynda skert í nýjum samningi með því að hann er óuppsegjanlegur.
Rubio fleygði nýju utanríkisstefnu stjórnarandstöðunnar út í hafsauga
Miðflokkurinn og hinir tveir flokkarnir í stjórnarandstöðu kynntu nýja utanríkisviðskiptastefnu í sumar sem mótleik þeirra og atvinnulífsins gegn fullri aðild að Evrópusambandinu.
Mótleikurinn var fríverslunarsamningur við Bandaríkin. Síðustu vikur hafa flokkarnir þrír lagt aukna áherslu á þessa stefnubreytingu í staðinn fyrir samvinnu um tollabandalag og frjáls viðskipti við Evrópu.
Ábyrgðarleysi flokkanna þriggja gagnvart EES-samningnum hefur einnig verið réttlætt með þessari stefnubreytingu.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna var hins vegar alveg skýr með það að fríverslunar samningar eru ekki lengur á dagskrá í Washington. Þeir samræmast ekki nýju hugmyndafræðinni: „Ameríka fyrst.“
Mestu pólitísku áhrifin, sem heimsókn Rubios hafði fyrir Ísland, fólst í því að hann fleygði þessari hugmynd út í hafsauga. Afleiðingin er sú að stjórnarandstaðan og Samtök atvinnulífsins eru ekki með neina hugmyndafræðilega fótfestu í utanríkisviðskiptamálum. Þar er tómarúm. Það styrkir ríkisstjórnina.
Nýjar hugmyndir um víðtækara samstarf frjálsra þjóða
Þannig staðfestir heimsóknin mikilvægi þess að utanríkisráðherra ræði og móti frekar þær hugmyndir, sem hún setti lauslega fram í stefnuumræðunni á Alþingi fyrir mánuði um aukið samstarf við þær fríverslunarþjóðir, sem nú ræða markvisst um sterkari baktryggingu í Evrópusamstarfinu.
Forsætisráðherra Kanada hefur farið fyrir umræðu af þessu tagi. En hún á sér einnig stað í Noregi og í Bretlandi. Ýmsir tala jafnvel um kanadíska forsætisráðherrann sem hinn nýja leiðtoga frjálsra þjóða.
Ástæðan fyrir þessari nýju hreyfingu er sú hugmyndafræðilega grundvallarbreyting, sem orðið hefur á stefnu Bandaríkjanna gagnvart öðrum þjóðum og ekki breyttist í þessari heimsókn.
Ísland getur ekki fremur en önnur lýðræðisríki rætt viðskiptastöðu sína í heiminum án þess að taka þennan nýja veruleika með í reikninginn. Það væri einfaldlega ekki gæsla íslenskra hagsmuna.