Eyjan

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina

Mynd

Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í ljósi þess hve mikla áherslu Miðflokkurinn leggur á útlendingamál í orði kom á óvart þegar þingmenn flokksins studdu ekki brottfararstöðina. Í dómsmálaráðuneytinu hafa verið unnin drög að frumvarpi sem leiðréttir atkvæðamisvægi að því marki sem hægt er að gera án þess að breyta stjórnarskrá. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Það er mikil samstaða í ríkisstjórninni um það sem þú ert að gera bæði í innflytjendamálum, dvalarleyfismálum, lögreglumálum og náttúrlega með sýslumannsembættið. Hvernig er það? Mættirðu mikilli andstöðu hjá stjórnarandstöðunni við eitthvað af þessum málum?

„Ein stóra breytingin í útlendingamálum, af því fólk talar um að viðhorfin hafi breyst, það er auðvitað líka mjög stór breyting að tilheyra ríkisstjórn þar sem að fólk vinnur saman og auðvitað er það þannig þegar við horfum á þessa þrjá flokka, þeir eru innbyrðis mjög ólíkir. Ég hef töluvert rætt þetta líka innan Viðreisnar. Af því við tölum um að við séum frjálslyndur flokkur, þýðir það að við ætlum að vera með einhvern losaraskap í útlendingamálum? Auðvitað ekki. Það er almannahagsmunamál að það sé skýrleiki í þessu, hvort sem það varðar væntingar, við höfum einhverja yfirsýn á það hvernig húsnæðismarkaðurinn okkar lítur út, öryggisbreyturnar og allt þetta. Þannig að þingflokkarnir hafa ekkert endilega verið sammála um allt sem að lagt hefur verið til upp á punkt og prik.

En við tölum okkur niður á niðurstöðu og við stöndum sem hópur saman um hana. Veruleiki minn sem dómsmálaráðherra er samt kannski í grundvallaratriðum ekkert ólíkur forvera minna um það að ég sé hvað er skrifað á netinu og það eru mótmælafundir á Austurvelli og hér hafa verið unnin skemmdarverk ráðuneytinu, það hefur verið spreyjað hérna. Og allt þetta. En með stuðning minnihlutans, jú, en það hefur verið aðeins misjafnt eftir flokkum. Ég meina, Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina, svo dæmi sé tekið. Það kom mér aðeins á óvart.“

Segir manni að þetta eru nú ekki einhverjar hugsjónir þeirra, þeir bara stunda þá pólitík sem að þeir telja að fari vel í vindáttina hverju sinni.

„Þarna erum við til dæmis bara sem land búin að vera, held ég, í meira en tíu ár ekki að uppfylla Schengen-skuldbindingar okkar. Öll Schengen-ríki eru með þetta úrræði. Ég skil mjög vel að þetta er umræða sem er tilfinningaþrungin af því þetta er erfitt en í mínum huga algjörlega augljóst mál að þetta þurfi að vera og þetta segja líka starfsbræður mínir og systur í Evrópuríkjunum hinum. Hluti af því líka að tempra umsóknir er að það liggi fyrir að við búum í samfélagi, við búum við kerfi þar sem við getum framfylgt ákvörðunum okkar.

Það gleymist stundum í umræðunni um brottfararstöðina að hún er hugsuð sem svona algjör endapunktur í samskiptum við þá einstaklinga sem hafa fengið nei, eiga ekki að vera hér á landinu, hafa sýnt það í verki eða lýst því yfir að þeir ætla ekki að virða niðurstöðu íslenskra stjórnvalda. Þá verðum við að vera í færi til þess að geta framfylgt þeim ákvörðunum og þeim tilgangi þjónar brottfararstöðin. Þannig að mér finnst mjög skrýtið hjá flokki sem að talar mjög mikið um útlendingamál að hafa ekki getað stutt þetta. En ég get auðvitað ekki svarað því hvers vegna það var.“

Nei, það er nú oft erfitt að átta sig á þeim. Við erum búin að fara yfir þessa stóru málaflokka. En það eru fleiri mál. Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt segja okkur frá?

„Eitthvað léttmeti?“

Já.

„Ja, ég veit ekki hvort það er léttmeti en hér var auðvitað hópur starfandi um það að skoða jafnt vægi atkvæða. Og, það liggja fyrir drög að frumvarpi um það. Það er hægt að gera innan kosningalaganna af því að kjördæmum er haldið óbreytt. Viðmið stjórnarskrárinnar segja þetta til um sex þingmenn í hverju kjördæmi. Venjan með breytingar á kosningalögum hefur verið sú þegar þetta er eitthvað annað en svona tæknilegar breytingar að og ég framfylgdi þeirri venju meðan ég sendi síðan forseta Alþingis erindi með þessu frumvarpi, bað forseta um að setja upp þingmannanefnd til þess að rýna þessar tillögur. Vonandi kemur frumvarp út úr því en þetta er eitt þeirra skemmtilegri mála sem hér er.“

Þetta er náttúrlega bara stórt mannréttindamál að vera ekki með þennan hrikalega misjafna kosningarétt á Íslandi.

„Það er það og það gleymist í umræðunni, finnst mér, meðan Ísland sætir ágjöf erlendra eftirlitsaðila fyrir það hvað atkvæðamunurinn er mikill. Hann er auðvitað alltaf einhver þegar að landinu er skipt upp í kjördæmi. Það leiðir af sjálfu sér en hann sé allt, allt of mikill. Og ég skil mjög vel byggðasjónarmiðin og áhyggjur þeirra sem að flagga þeim sjónarmiðum. Ég hef bara ekki trú á því að kosningalögin séu besta verkfærið til að tryggja lífsgæði í byggðum landsins. Ég sé ekki að það sé leiðin til þess. Það finnst mér vera samtal um það hvaða þjónustustig ætlum við að tryggja. Þetta er hluti af atvinnustefnu, byggðastefnu og svo víðar um.

En mér hefur fundist vanta upp á það í umræðunni að bæði sjónarmið fái að heyrast, að þetta er auðvitað eitthvert reiptog og einhver jafnvægislist milli mannréttindasjónarmiðanna um það. Hvernig getum við teiknað upp kosningalöggjöfina okkar með einhverju misvægi atkvæða án þess að ganga mjög grimmilega á þennan heilaga rétt kjósandans og grunnstefið um það að þetta eigi að vera einn maður, eitt atkvæði.

Síðan, hvernig mun okkur takast að tryggja byggð í landinu? Þá er alveg hægt að horfa til þess hvað önnur ríki hafa náð betri árangri í byggðamálum en við án þess þó að vera með kosningalögin sín svona teiknuð upp. En þetta er mjög eldfim umræða eins og reyndar flest mál eru í hérna innan dómsmálaráðuneytisins. 

Og það er kannski þess vegna sem ég er að reyna að horfa í svona málin. Ég hef líka aðeins skoðað bara lífaldur forvera minna í starfi. Menn stoppa ekkert allir hér í fjögur ár. Þannig að ég ákvað að fara bara inn bara með hérna skýr markmið í ákveðnum málaflokkum, til dæmis í útlendingamálum, í lögreglumálum, varðandi skipulagða brotastarfsemi og hérna í jafnréttismálum. Við erum líka að horfa svolítið á þau og þá í samhengi við ofbeldi gegn konum. en hérna, og reyna að nýta tímann bara sem best ég get.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.