Jónas Hallgrímsson er óumdeilt þjóðskáld Íslendinga. Mynd af honum prýðir tíuþúsundkallinn. Stytta í Hljómskálagarðinum. Fleiri ævisögur hafa verið skrifaðar um hann en sjálfan Bubba Morthens. Jónas lifði öll sín fullorðinsár úti í Kaupmannahöfn drekkandi Gammel Dansk og Elefant. Hann gagnrýndi harðlega deyfð og vesaldóm landa sinna á Íslandi. Í fjölda kvæða og greina gerir hann sér tíðrætt um sofandahátt þjóðarinnar.
Svefndrukknir vinnumenn hlusta á rímnastagl á síðkvöldum. Hann talar um „hnípna þjóð í vanda,“ og „svartrar svefnhettu, síruglað mók.“ Jónas og aðrir Fjölnismenn hvöttu þjóðina til að vakna og sinna landbúnaðarstörfum og æðri listum af alúð og dugnaði. Æ síðan hafa stjórnmálamenn og skáld reynt að vekja fólk til dáða með misjöfnum árangri.
Það er mikið gleðiefni að nú gengur yfir landið gustmikill faraldur af ADHD. Um síðustu aldamót var ADHD hjá fullorðnum næsta sjaldséð ástand. Börn og unglingar fengu greiningu og meðferð en fullorðnir ekki. Á næstu árum varð mikil sprenging í greiningum og nú er svo komið að Íslendingar eiga heimsmet í tíðni ADHD-greininga. Fullorðið fólk uppgötvar að það hafi brýna þörf fyrir amfetamín vegna óljósra einkenna. Samkvæmt opinberum tölum fengu 9,4% karla og 11% kvenna á aldrinum 18-44 lyf vegna ADHD á síðustu árum og fer stöðugt fjölgandi. Fjöldi fólks bíður eftir greiningu og amfetamínlyfseðlum um allt land. Þessi lyfjaneysla er þrefalt meiri en í Noregi, Danmörku og Svíþjóð og bætist ofan á ólöglegu notkunina. Segja má að búið sé að amfetamínvæða allt samfélagið.
Ég hitti Jónas Hallgrímsson í apóteki á dögunum. „Nú fer þjóðin að vakna til dáða,“ sagði hann kampakátur. „Loksins lýkur þessum margra alda sofandahætti þegar allir eru farnir að taka örvandi. Þetta má kalla „þjóðarvakningu.“ Nú eru bjartir dagar fram undan þar sem útúrspíttaðar hetjur ríða um héruð. Nú er hægt að skunda á Þingvöll og slá upp stóru spíttpartíi. En betur má ef duga skal! Markmiðið er, allir á amfetamín fyrir 200 ára ártíð mína 2045! Eða eins og ég segi sjálfur í frægu kvæði: Þannig vaknar sá, er í villu svaf.“
Afgreiðslustúlkan kallaði upp nafnið hans og hann flýtti sér að afgreiðsluborðinu veifandi gömlu dönsku vegabréfi. Ég beið áfram eftir hjartalyfjunum mínum og kastaði kveðju á skáldið. Hann hraðaði sér út með poka í hönd og svaraði mér engu.