Eyjan

Thomas Möller skrifar: ESB – næstu skref

Mynd
Mynd

Evrópusinnar á Íslandi eru að sleikja sárin eftir að hafa orðið undir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Margir líta þó á það sem mikinn sigur að hafa náð að sannfæra 105.339 kjósendur um að taka upp viðræður við ESB.

Mikil umræða er meðal Evrópusinna um hvaða skref eru möguleg til að tengja landið betur við ESB og ná samningi sem væri betri en EES samningurinn án þess að fara í fulla aðild.

Skoðum þetta nánar.

Um 70% rangt og villandi

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar voru Já og Nei hreyfingarnar ósammála um flest.

Meðan Já-hópurinn benti hvað mest á skaðsemi krónunnar og það vaxtaokur sem henni fylgir, sögðu Nei liðar að of mikið fullveldisafsal fælist í aðildinni.

Fullyrt var að „landhelgin færi aftur í 12 mílur“, að „Brussel yfirtæki auðlindirnar“. „Segjum nei við framsali íslenskra orkuauðlinda“ var fullyrt í auglýsingum Nei-sins.

Einnig var fullyrt af hreyfingunni „Til vinstri við ESB“ að „Evrópskur her er handan við hornið“ og að íslenskir unglingar yrðu að „þjóna undir vopnum evrópsks herveldis“.

Ég spurði gervigreindina hvað stór hluti 30 helstu fullyrðinga Nei hreyfingarinnar væru rangar og villandi eða verulega óstuddar og aðeins að hluta til réttar.

Svarið er að um 70% fullyrðinganna flokkast undir þetta og er það þungur dómur yfir forsvarsmönnum Nei-hreyfingarinnar.

Sammála um EES

Það athyglisverðasta við kosningabaráttuna var að báðar hreyfingar voru algjörlega sammála um kosti EES samningsins fyrir Ísland og að hann hefði fært okkur betri lífskjör. Báðar hreyfingarnar töldu að EES samningurinn væri mikilvægasti alþjóðasamningur landsins.

Þetta er athyglisvert þegar haft er í huga að EES samningurinn þýðir að Ísland er um það bil 75% komið inn í ESB. Þannig studdi Nei hreyfingin óvart aðild Íslands að ESB!

Full aðild eflir fullveldi landsins enda hefur það sýnt sig að með aukinni samvinnu þjóða eflist fullveldi þeirra.

Bankarán á hverjum degi

Eitt mikilvægasta mál Já hópsins var að með upptöku evru væri auðveldara að ná vöxtum niður á Íslandi. Við erum í dag með um þrisvar sinnum hærri vexti á húsnæðislánum til heimilanna en evrulöndin í Norður Evrópu. Rekstrarlán til fyrirtækja og fjármögnun ríkissjóðs er einnig á okurvöxtum krónunnar.

Það er athyglisvert að milljónir íbúa Spánar fara nú í mótmælagöngur vegna hás húsnæðiskostnaðar meðan meirihluti Íslendinga samþykkir í þjóðaratkvæðagreiðslu að sætta sig áfram við þrefalda húsnæðisvexti miðað við evrulöndin – mótmælalaust!

Það má segja að íslenskir bankar fremji „bankarán“ á hverjum degi með samþykki meirihluta þjóðarinnar og í skjóli krónunnar sem verndar þá gegn erlendri samkeppni.

Nýlega kom fram að íslenska ríkið borgar um 155 milljarða króna í vexti á næsta ári. Ef lán ríkisins væru í evrum væri um 100 milljarða afgangur á ríkisrekstrinum eða að ríkissjóður gæti veitt 100 milljörðum meira í velferðarmál, samgöngumál og menntamál þar sem stöðugt er kallað á aukið fjármagn.

Plan BÍNK fyrir Ísland

Nú liggur fyrir að ekki verður sótt um aðild að ESB næstu árin. En hvað er þá í stöðunni fyrir Ísland? Skoðum hvaða tækifæri gætu verið í núverandi stöðu fyrir okkur.

Fjöldi landa í Suð-austur Evrópu er að sækja um aðild að ESB. Þau eru flest með minni þjóðarframleiðslu og lélegri innviði en löndin í Vestur Evrópu.

En Vestur Evrópuríkin sem eru nú utan við ESB (Bretland, Ísland og Noregur) eru bæði efnahagslega og öryggislega mikilvæg fyrir Evrópusambandið.

Leiðtogar ESB hafa lýst yfir áhuga á því að Kanada komi inn í ESB sem aukameðlimur (e. associate member).

Það væri mikill akkur fyrir ESB að fá þessi fjögur lönd inn í Evrópusamvinnuna og stækka þannig sambandið í norð-vesturátt.

Það væri áhugavert fyrir þessi lönd að ná samningi við ESB um aukaaðild sem myndi uppfylla þarfir þeirra allra og gengi lengra en EES samningurinn án fullrar aðildar.

Skoðum það nánar:

·       Bretland vill draga úr viðskiptahindrunum sem komu eftir Brexit. Unga fólkið í landinu er mjög fylgjandi aukinni Evrópusamvinnu vegna betri starfs- ferða-og námstækifæra. Mikill stuðningur er í Bretlandi við „enduraðild“ (e. rejoin) og fylgi Verkamannaflokksins hefur stóraukist eftir að forsætisráðherrann fór að tala um að landið ætti að skoða ESB aðild aftur.

·       Ísland hefði mestan hag af þátttöku í tollabandalagi ESB og gjaldmiðlasamstarfinu. Ef við fengjum að taka upp evru og fella niður tolla án fullrar aðildar næðum við hvað mestum árangri í tveimur af okkar mikilvægustu málum sem varða ESB samstarfið.

·       Norðmenn hafa þegar lýst áhuga á að fá „betra“ sæti við borðið í Brussel enda er Noregur að taka upp reglur og lög ESB án atkvæðisréttar í Brussel. Norsk fyrirtæki hafa sýnt áhuga á auknu ESB samstarfi og hefur fylgi við aðild Noregs að ESB aukist að undanförnu meðal ungu kynslóðarinnar.

·       Kanada hefur lýst áhuga á auknu samstarfi við ESB. Um 70% Kanadamanna vilja að landið sæki um aukaaðild og um 81% íbúanna vilja aukna samþættingu við ESB varðandi viðskipti, ferðalög, atvinnu- og námstækifæri svo og í öryggismálum.

Ég vil kalla þessi lönd BÍNK-löndin.

Öll þessi lönd vilja nánari tengsl við Evrópusambandið. Rætt hefur verið um „mildari aðildarleið“, sumir tala um „ESB-light“- aðild.

Öll þessi lönd hafa áhuga á að styrkja stöðu sína í öryggismálum en ESB hefur haft frumkvæði í að styðja við Úkraínu í stríðinu við Rússland auk þess að vera í forystu í Evrópu í baráttunni við fjölþáttaógnanir eins og árásir Rússa á fjarskiptainnviði Evrópuríkja.

Evrópusambandið er í stöðugri þróun. Þar er verið að draga úr reglugerðarþunganum, auka eftirlit á landamærum og efla nýsköpun og frumkvöðlastarf. ESB leiðtogar gætu verið jákvæðir fyrir „létt-aðild“ þessara ríkja. Ef ekki er spurt er svarið alltaf nei.

Það gæti verið mikill ávinningur fyrir ESB að fá fjögur ný öflug lönd við vesturkant Evrópu og vestursvæði Atlantshafsins inn í samstarfið.

Samningsstaða BÍNK landanna er mjög sterk einmitt núna. Þess má geta til gamans að Bink þýðir sigur í póker!

Grípum því tækifærið og hefjum viðræður við ESB um öflugri tengingu þessarra landa við ESB undir forystu og með frumkvæði Íslands.