Þótt skammt sé síðan tilkynnt var um starfslok Harðar Arnarsonar er fólk mikið farið að velta fyrir sér hugsanlegum eftirmönnum. Ýmsum virðist umhugað að fá konu til starfans á meðan aðrir eru þeirrar skoðunar að mest um vert sé að næsti forstjóri Landsvirkjunar búi yfir reynslu af rekstri og þekkingu sem nýtist til að reka þetta gríðarlega mikilvæga fyrirtæki líkt og Hörður hafði þegar hann tók við starfinu fyrir 17 árum.
Orðið á götunni er að Landsvirkjun sé langverðmætasta fyrirtæki landsins, sannkallað fjöregg þjóðarinnar, og að sumir séu þeirrar skoðunar að verðmat fyrirtækisins sé ekki undir 2.000 milljörðum króna. Því ríður að valið á nýjum forstjóra sé vandað. Undir forystu Harðar hefur fyrirtækið skilað ríkissjóði tugum milljarða í arðgreiðslur á ári hverju um margra ára bil.
Ýmsum nöfnum hefur verið hent á loft í umræðunni um val á næsta forstjóra. Tillögurnar eru misgáfulegar eins og gengur. Það eru hins vegar ekki margir Íslendingar sem hafa reynslu af rekstri jafn stórra og flókinna fyrirtækja og Landsvirkjun er og vitaskuld stendur vilji til þess að Íslendingur verði við stjórnvölinn á þessu flaggskipi íslenskra fyrirtækja.
Orðið á götunni er að tvö nöfn standi sérstaklega upp úr og að stjórn Landsvirkjunar og fjármálaráðherra hljóti að íhuga þau sérstaklega vandlega nú. Raunar megi með rökum halda því fram að þessir tveir menn séu í hópi örfárra Íslendinga sem hafi rækilega sannað sig sem hæfir leiðtogar yfir mjög umfangsmiklum og flóknum rekstri til lengri tíma.
Fyrstan skal nefna Dag B. Eggertsson, sem stýrði Reykjavíkurborg í áratug, en Reykjavíkurborg er með gríðarlega flókinn rekstur, en hjá borginni og stofnunum hennar starfa 11 þúsund manns. Borgin er stærsti vinnustaður landsins.
Þessum vinnustað stýrði Dagur styrkri hendi í áratug þrátt fyrir stöðugt ónæði og tilefnislausar árásir frá pólitískum andstæðingum og þá ekki síst Morgunblaðinu, sem virtist hafa og hefur enn sérstakt horn í síðu hans. Orðið á götunni er að það séu meðmæli með fólki sæti það árásum og skítkasti frá Morgunblaðinu eins og nú er komið fyrir stjórnmálaskrifum þess.
Orðið á götunni er að hitt nafnið sé óvæntara við fyrstu sýn en þegar hlutirnir eru skoðaðir betur er fullkomlega rökrétt að setja það fram. Þetta er Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marels, sem stýrði gríðarlegum vexti og uppbyggingu þess félags um árabil og gerði það að stærsta félaginu í íslensku kauphöllinni.
Marel er með mikinn og fjölbreyttan rekstur. Hér á landi starfa um 600 manns hjá fyrirtækinu en það er með starfsemi viða um heiminn og alls starfa um 6000 manns hjá samstæðu Marels.
Orðið á götunni er að þeir Dagur og Árni Oddur séu klárlega með þá reynslu og þekkingu sem næsti forstjóri Landsvirkjunar þarf að búa yfir og hljóti að koma sterklega til greina í starfið. Þeir eru báðir milli fimmtugs og sextugs, á besta aldri, fullir starfsorku og hoknir af reynslu sem nýtist næsta forstjóra Landsvirkjunar vel.