Eyjan

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Á 10-15 árum gjörbreyttist staðan – fyrrverandi ríkisstjórn lét reka á reiðanum

Mynd

Við erum að herða tökin á innflytjendamálum og afnema séríslenskar reglur sem hafa verið miklu linari en reglur í nágrannalöndum okkar. Við erum ekki með kröfu um að fólk sem fær dvalarleyfi hér á landi geti séð sér farborða eins og krafist er í öllum nágrannalöndum okkar. Þetta gengur ekki lengur. Verið er að endurskoða allt regluverkið og herða mjög reglur. Herða reglur bæði varðandi kvers er krafist til að fólk geti fengið dvalarleyfi hér en einnig til okkar sjálfra hvernig við tökum á móti því fólki sem fær dvalarleyfi. Au-pair hafa fram að þessu að langstærstum hluta komið frá Filippseyjum. Réttarstaða þeirra hefur verið mjög ótraust og þær mjög háðar vinnuveitendum sínum. Framvegis verður lokað á au-pair leyfi til fólks utan EES. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þú ert að gera tillögur núna um að herða mjög reglur varðandi innflytjendur. Ertu til í að fara aðeins yfir það?

„Já, og heiðarlegt svar þar er: Við erum að herða tökin. Og það helst í sjálfu sér alveg í hendur við, leiðarstefið strax í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að afnema séríslenskar reglur í innflytjenda- og útlendingamálum. Og fyrstu frumvörpin voru varðandi fólk sem er hér á grundvelli alþjóðlegrar verndar, til dæmis um það að það sé hægt að afturkalla alþjóðlega vernd í tengslum við það ef menn eru gerast sekir um brot. Næsti fasi er þá frumvarp sem ég kem fram með og var að fara inn í samráðsgátt en mun mæla fyrir á þingi eftir tvær vikur eða svo. Um heildarendurskoðun á öllu okkar regluverki hvað varðar dvalarleyfi og svo ætla ég að taka þetta í þriðja fasa og skoða þá reglur okkar um ríkisborgararétt.

En ég lét greina fyrir mig og það kom út skýrsla sem heitir „Ísland í örum vexti“ þar sem íslenska regluverkið var borið saman við reglur á Norðurlöndunum og það fundust tugir frávika, mjög stór frávik, um það hvað þurfti að búa lengi hér á landi til þess að fá varanlegt dvalarleyfi. Við vorum með miklu, miklu rýmri reglur um fjölskyldusameiningar, engar kröfur um það að þú sækir um dvalarleyfi eða þú getir sýnt fram á það að þú getir séð fyrir þér, framfærslukröfur. Þær eru á öllum hinum Norðurlöndunum.“

Það er eðlileg krafa.

„Það er eðlileg krafa og krafa er kannski, eða kröfur er leiðarstefið í vinnunni allri í þessu frumvarpi, það er að segja, við gerum kröfu til fólks sem kemur til Íslands. Við gerum kröfu til fólks um að það verði virkir þátttakendur í samfélaginu, brjóti ekki af sér, geti séð sjálfu sér farborða og allt þetta. En í þessu frumvarpi erum við líka að gera kröfur til íslensks samfélags um móttökur, það er að segja skýrari reglur, skýrari vernd til dæmis fyrir þá sem að verða fyrir vinnumarkaðsbrotum.

Betri réttarvernd fyrir þolendur vinnumansals. Ég er að leggja til norsku leiðina varðandi þessi au pair-leyfi, að loka fyrir það fyrir aðra og aðrar en innan EES. Ég held að það séu um 80% allra au pair-leyfa sem fara í dag til stelpna frá Filippseyjum og verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir breytingum hvað þetta varðar. Við eigum bara því miður of margar ljótar sögur af meðferð stelpna sem hingað koma til lands, fjarri sínum heimahögum, í viðkvæmri stöðu, náttúrlega, þú bókstaflega býrð heima hjá vinnuveitanda þínum. Litlir burðir í íslensku samfélagi til að hafa eftirlit með þessu þannig að við segjum einfaldlega: Við tökum ekki á móti umsóknum frá ríkjum utan EES. Þetta hafa Norðmenn gert eftir að reynsla þeirra var nákvæmlega hin sama.“

Já. Og aftur að lögreglunni í þessu breytta umhverfi. Samsetning þjóðarinnar hefur breyst mikið. Þetta er orðin miklu vandfarnari slóð að sinna löggæslu á Íslandi í dag en fyrir 50 árum til dæmis.

„Já og veistu, ég myndi segja að þetta sé breyting á 10 til 15 ára tímabili og það þarf að horfa til þess líka að þetta spilar allt saman. Eins og með dvalarleyfin, þá fannst mér ég einhvern veginn sjá að það hefði verið algjört stefnuleysi. Okkur fjölgar hérna um 50.000 manns frá 2017. Við erum Evrópumeistarar í fólksfjölgun og þetta gerðist ekki vegna þess að þáverandi stjórnvöld voru með einhverja stefnu um þetta. Heldur bara vegna þess að þau létu reka á reiðanum.

Afleiðingarnar birtast okkur á húsnæðismarkaði. Þær birtast í þyngri verkefnum, einfaldlega í krafti fólksfjölda, í heilbrigðiskerfinu okkar. Kennarar töluðu um þetta þegar maður fór í vinnustaðaheimsóknir í kosningabaráttunni. Auðvitað er annað mál að kenna bekk í grunnskóla þegar að kannski sex af 25 nemendum eru með annað móðurmál en íslensku. Það er í sjálfu sér ekkert vandamál að þeir séu með annað móðurmál en þetta er auðvitað flóknari kennsla og ef þessu fylgir enginn stuðningur inn í skólann þá erum við í vanda stödd.

Og á sama tíma er ferðaþjónustan hérna að springa út þannig að allt í einu verður bara ágjöf á okkar innviði. En með afbrotin að þá gerist það auðvitað líka þannig að þetta er svo langtum, langtum alþjóðlegra en var. Við erum með fulltrúa í dag, Ísland, hjá Europol úti í Haag og hjá Eurojust sem er svona saksóknarahlutinn í því og við sjáum það mjög skýrt að t.d. Schengen-samstarfið, af því nú er tískan að tala illa um það. Þetta er, þetta er algjört kjarnaelement í því að ná árangri gagnvart svona sterkum glæpahópum sem starfa landa á milli, láta bæði upplýsingar og fjármagn og fólk ferðast landa á milli, að við séum skýr um það að við ræktum þessi alþjóðlegu tengsl, fjárfestum í þeim og sýnum það ekki bara með orðum heldur í verkum að við ætlum að fara fastar í þessa hópa.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.