Alkunna er að innmúraðir og innvígðir Sjálfstæðismenn fyllast gríðarlegum óróa og yfirþyrmandi depurð þegar flokkur þeirra er ekki í ríkisstjórn. Þeir virðast í hjartans einlægni trúa því að engum öðrum flokkum sé hægt að treysta fyrir landstjórninni. Stundum tala þeir eins og Sjálfstæðismenn séu réttbornir til valda. Um leið eru þeir alltaf nokkuð hissa á því að landsmenn skuli ekki almennt átta sig á því sem þeim finnst sjálfum svo augljóst, sem er að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að leiða þjóðina.
Þeir sjá mikla skekkju í því að landsmenn skuli í miklum mæli kjósa alls konar aðra flokka þegar þeirra eðalflokkur er í boði. Þessa skekkju finnst þeim brýnt að leiðrétta. Formaður Sjálfstæðisflokksins er því alltaf í heldur vondri stöðu sé flokkur hans ekki í ríkisstjórn. Það er ætlast til að hann rétti þennan slæma halla af og takist honum það ekki fljótlega er farið að svipast um eftir arftaka.
Vitneskjan um þetta kann að hafa átt þátt í því að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði nýlega á fundi í Vestmannaeyjum að alls ekki mætti gera ráð fyrir að ríkisstjórnin sæti út kjörtímabilið, stutt gæti verið í kosningar.
Þessi yfirlýsing formannsins um yfirvofandi fall ríkisstjórnarinnar var vægast sagt stórfurðuleg og úr takti við raunveruleikann. Stjórnarsamstarfið er traust. Beiskja og gagnkvæm tortryggni eru þar ekki við völd, eins og var í síðustu ríkisstjórn. Þjóðin fékk svo mikið ofnæmi fyrir þeirri ríkisstjórn að allir flokkarnir sem að henni stóðu fengu skell í síðustu alþingiskosningum. Slík andúð ríkir ekki í garð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Guðrún Hafsteinsdóttir getur ekki bent á voldug mótmæli almennings gegn ríkisstjórninni. Tilraun til mótmæla var gerð á Austurvelli fyrir örfáum vikum en var andvana fædd. Leita þurfti vandlega að fréttum um þau mótmæli, enda mættu þar um sjötíu manns.
Orðin um fall ríkisstjórnarinnar byggjast á óskhyggju formanns sem flokksmaskínan heimtar að komi flokknum í ríkisstjórn með góðu eða illu. Þrálátar sögusagnir eru á kreiki um að Guðrúnar Hafsteinsdóttur bíði mótframboð á næsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Ekki er upplífgandi fyrir formanninn að vita af því ráðabruggi.
Önnur nýleg orð Guðrúnar Hafsteinsdóttur vöktu einnig athygli pistlahöfundar. Ekki þarf að tíunda hér þann storm í vatnsglasi sem varð eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrum mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og sagði farir sínar ekki sléttar í samskiptum við Ingu Sæland formann Flokks fólksins. Hann var vitanlega sársvekktur yfir að hafa misst ráðherradóm til Ragnars Þórs Ingólfssonar. Guðmundur Ingi baðaði sig í fjölmiðlaljósi dögum saman en það sama varð ekki sagt um Ragnar Þór sem bar fyrir sig slappleika og tókst þannig að komast hjá því í einhverja daga að tala við fjölmiðla – en mætti þeim loks.
Af því tilefni – og kannski líka vegna þess að forsætisráðherra og utanríkisráðherra voru erlendis í embættiserindum og áttu erfitt með að veita viðtöl – sagði Guðrún: „Mér finnst þetta meira að segja farið að minna mig núna á stöðuna í Bandaríkjunum þar sem að forsetinn þar neitar að tala við ákveðna fjölmiðla.“
Það er vægast sagt kjánalegt að setja samasemmerki milli ráðherra í ríkisstjórn Íslands og hættulegs Bandaríkjaforseta sem leggur hatur á vissa fjölmiðla og vísar þeim á dyr.
Þó er ástæða til að minna ráðherra Flokks fólksins á að temja sér meiri aga. Þeir eiga ekki láta taka sig á taugum, eins og hefur gerst of oft. Þeir verða að átta sig á því að það virkar ekki traustvekjandi að fara í felur þegar fjölmiðlar leita eftir viðtali vegna viðkvæmra mála. Það er hins vegar galið að halda því fram að ríkisstjórn Íslands sé komin nokkurn veginn á sama stað og Donald Trump í viðhorfi sínu til fjölmiðla.
Forysta Sjálfstæðisflokksins er ráðþrota. Hún leitar allra leiða til að skaða ríkisstjórnina en kann engar aðrar leiðir til þess en að stunda innihaldslaus hróp og köll, sem ómögulegt er að taka mark á. Nýjasta upphlaupið kemur frá þingmanninum, Hildi Sverrisdóttur, sem kvartar sáran undan því að fjármálaráðherra landsins hafi kallað stjórnarandstöðuna „þetta lið“.
Við því á maður bara eitt svar: Þvílíkt væl!