Eyjan

Svarthöfði skrifar: Engin ábyrgð tekin á eigin gjörðum – boltinn sendur á ríkið

Mynd

Það hefur ekki farið fram hjá Svarthöfða að nú lítur út fyrir að uppsagnarákvæði kjarasamninga virkist og hægt sé að segja upp kjarasamningum í september, byggt á verðbólgumælingum Hagstofunnar í ágúst. Þetta er auðvitað slæmt en þetta er enginn heimsendir. Þetta er úrlausnarefni.

Nú kalla ýmsir foringjar verkalýðshreyfingarinnar á það að ríkisstjórnin verði að stíga inn til að höggva á einhvern hnút. Það er kallað á peninga frá skattgreiðendum til að leysa málið. 

En hvað hefur gerst frá síðustu kjarasamningum? Jú, verðbólgan er meiri en að var stefnt, en það stafar að miklu leyti út af verðhækkunum sem orðið hafa út af stríðsrekstri annara þjóða í útlöndum, ekki síst Íransstríði Trumps Bandaríkjaforseta.

Svarthöfði hefur hins vegar tekið eftir því að þrátt fyrir of mikla verðbólgu hefur kaupmátturinn, sem samið var um í síðustu kjarasamningum ,orðið enn meiri en gert var ráð fyrir í kjarasamningunum. Árangur verkalýðshreyfingarinnar hefur sem sagt orðið enn meiri en að var stefnt. Samt er hótað því að kjarasamningum verði sagt upp! Ríkisstjórnin á að koma með einhvern pakka sem bætir upp verðbólguna. Það er krafan frá verkalýðshreyfingunni og atvinnurekendum.

Í þessu samhengi er vert að hafa í huga að ríkisstjórnin gerði ekki síðustu kjarasamninga. Síðustu kjarasamninga gerðu samtök atvinnurekenda og verkalýðshreyfingin. Ef eitthvað þarf að laga þá verða samningsaðilarnir að græja það milli sín. Ríkið er ekki stuðpúði fyrir aðila atvinnulífsins nema samið sé um það hverju sinni. Engir slíkir samningar liggja fyrir.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR hrópar stöðugt á ríkisvaldið um að leysa málin og talar um að sofið sé á verðinum. Þetta er rangt og það veit Halla vel. En henni er alveg sama. Hún er langt, langt til vinstri og sættir sig ekki við miðju/hægri ríkisstjórn eins og þá sem nú situr og vill skemma fyrir ríkisstjórninni sem mest hún má.

Kjarni máls er þessi:

Samið var um kaupmáttaraukningu og þá talað um rauð strik í verðbólgu, 4,7% í ágúst 2026. Nú liggur það fyrir að KAUPMÁTTUR HEFUR AUKIST TVÖ PRÓSENT UMFRAM ÞAÐ SEM AÐ VAR STEFNT OG MIÐAÐ VIÐ.

Burt séð frá verðbólguprósentu hefur kaupmátturinn náðst – og 2% betur – og því ekki um neinar brostnar forsendur að ræða.

Málflutningur Höllu er marklaus og ekkert nema prívatpólitík hennar sem últravinstri manneskju sem er á móti ríkisstjórninni. Hún var náttúrlega aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG og forsætisráðherra vinstri stjórnarinnar sem sat hér í sjö ár í boði Bjarna Benediktssonar, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Samtök atvinnulífsins taka þátt í að hrópa á hjálp ríkisstjórnarinnar. Bjarni Benediktsson er genginn aftur í pólitík og kominn með nýtt gjallarhorn til að hrópa að pólitískum andstæðingum sínum. Ráðning hans sem framkvæmdastjóra SA var í besta falli kjánalegt – en öllu heldur hneyksli. Hann sýnir það líka að hann er enn í sömu stellingum og hann var í 16 ár sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann er ekki kominn yfir það og því engan veginn hæfur til að gegna stöðu framkvæmdastjóra SA.

Svarthöfði man ekki betur en að í síðustu kjarasamningum hafi fyrirtæki innan SA heitið því að fara HÓFLEGA í verðbreytingar, einkum í neysluvöru. Það hefur tæpast gengið eftir.

Bjarni sér sóma sinn í því að gala á ríkisstjórnina en lætur vera að benda á fílinn í herbergi verðbólgunnar sem eru umframverðhækkanir fyrirtækja innan SA og svo íslenskra bænda og afurðastöðva, en íslenskar landbúnaðarafurðir hafa hækkað mest allra neysluvara í landinu. Bjarni virðist ekki hafa miklar áhyggjur af tregðu olíufélaganna til að lækka verð á eldsneyti og gerir engar athugasemdir við það þegar þeir hækka skyndilega verð á eldsneyti. Heildsalar hækka álagningu á innfluttri matvöru og stórmarkaðir auka álagningu sína án þess að Bjarni Benediktsson skori á þá að fara gegn verðbólgunni með lækkun vöruverðs. Hann hefur heldur engar áhyggjur af auknum vaxtamun bankanna og vaxandi ofurhagnaði þeirra.

Svarthöfði er á því að í flokkspólitíska hreiðri SA ættu menn að byrja á því að taka til heima hjá sér áður en spjótum er beint að stjórnvöldum.