Hvað kostar óstöðugleikinn – og hversu margir milljarðar tapast?
Nýlega ræddi ég við forstjóra íslensks fyrirtækis sem var að gera tilboð í þriggja ára verk við nýjan Landspítala. Tilboðið átti að vera í evrum.
Hann nefndi vandamál sem segir mikið um íslenskt efnahagsumhverfi: Hvernig á að áætla launakostnað þrjú ár fram í tímann á Íslandi? Hvernig þróast gengið og verðbólgan? Hvernig þróast launin og vextirnir?
Íslensk fyrirtæki erum með fleiri áhættuþætti en fyrirtæki í samkeppnislöndunum.
Óvissan fær verðmiða. Hver greiðir hana að lokum?
Þegar ríkið er verkkaupinn lenda áhrifin að lokum hjá skattgreiðendum.
Sama fyrirtæki starfar einnig í verslun.
Þar birtist vandinn með öðrum hætti. Ísland er lítill markaður og samkeppni er takmörkuð á sumum stigum virðiskeðjunnar. Við bætast hár fjármagnskostnaður, gengisáhætta, flutningar og birgðahald.
Að lokum birtist kostnaðurinn í verðbólgu og verðinu sem við neytendur greiðum.
En hvað með tækifærin?
Við eigum ekki aðeins að spyrja hvað óstöðugleikinn kostar okkur.
Hverju erum við að missa af?
Íslensk fyrirtæki hafa byggt upp mikla þekkingu í sjávarútvegi, orku, hugbúnaði, matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, fjármálatækni, verslun og fjölmörgum öðrum greinum.
Af hverju eigum við alltaf að hugsa um Ísland sem 400 þúsund manna markað?
Við höfum þegar víðtækan aðgang að innri markaði Evrópu í gegnum EES. En full aðild myndi færa okkur inn í tollabandalagið og að borðinu þar sem reglurnar eru mótaðar. Síðar gæti möguleg upptaka evru jafnframt eytt gengisáhættu gagnvart okkar stærsta markaðssvæði.
Spyrjum: Hvað gæti stöðugra og fyrirsjáanlegra umhverfi gert fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja vaxa?
Næsta skref íslensks fyrirtækis þarf ekki að vera annað útibú á Íslandi. Það getur verið í Kaupmannahöfn, Hamborg eða Amsterdam.
Sjávarútvegurinn þarf ekki aðeins að selja fisk. Við getum selt tæknina, hugbúnaðinn, vinnslulausnirnar og sérþekkinguna sem við höfum þróað í kringum hann.
Við eigum að fullvinna meira hér heima og skapa verðmætari störf.
Kostnaðurinn sem sést ekki
Við getum mælt vextina. Við getum mælt verðbólguna og gengið. Miklu erfiðara er að mæla það sem óvissan kemur í veg fyrir:
- Fjárfestinguna sem var frestað.
- Fyrirtækið sem stækkaði ekki.
- Verksmiðjuna sem var byggð annars staðar.
- Útibúið sem var aldrei opnað.
- Störfin sem urðu aldrei til á Íslandi.
Þetta er líka fórnarkostnaður íslenska efnahagsumhverfisins.
Umræðan um framtíð Íslands má því ekki aðeins snúast um hvað við óttumst að missa.
Hún þarf líka að snúast um hvað við getum unnið. Við eigum auðlindir, hreina orku, vel menntað fólk, reynslu og hugvit. Við eigum ekki aðeins að verja það sem við höfum.
Við eigum að skapa það sem við höfum ekki enn.
Er ekki kominn tími til að kanna af fullri alvöru hvernig Ísland getur orðið stöðugra, opnara og samkeppnishæfara?
Umhverfi okkar allt mun breytast á næstu 30 árum hvort sem okkur líkar betur eða verr. Hverju munum við tapa með því að einangra okkur og viðhalda óvissunni?
Höfundur er viðskiptafræðingur og fv. stjórnandi. Kennari og fyrirlesari um leiðtogamenningu og Qigong lífsorku – lifsraekt.is