SJÁUM SAMAN FRAMTÍÐ ÍSLANDS
Ísland – landið okkar.
Hafið, orkan, vatnið og moldin.
Tungumálið, menningin, hugvitið og fólkið.
Þetta eru ræturnar okkar.
STERKAR RÆTUR ÓTTAST EKKI AÐ OPNA DYR.
Við stöndum vel í dag.
En dagurinn í dag er ekki heimurinn eftir þrjátíu ár.
Nýir vindar munu blása – nýjar áskoranir rísa.
Við vitum ekki hverjar þær verða.
En við vitum fyrir hverja við undirbúum framtíðina.
Fyrir börnin okkar og barnabörnin.
Gefum unga fólkinu sömu tækifæri og Danir.
Til að eignast heimili, skapa, elska – og velja Ísland.
RÆTUR Á ÍSLANDI – VÆNGIR ÚT Í HEIM.
Látum hugmyndirnar vaxa hér.
Fullvinnum meira úr hafinu og ræktum landið.
Sköpum verðmæt störf og tryggjum fæðuöryggi.
Gefum bóndanum tækni, tíma og gæfuríkt líf.
RÆKTUM LANDIÐ. RÆKTUM HUGVITIÐ. RÆKTUM LÍFIÐ.
Jörðin mun aftur skjálfa. Eldurinn mun aftur rísa.
Við vitum ekki hvenær – né hversu mikið.
ÞÚ TRYGGIR EKKI EFTIR Á.
Sterk þjóð má eiga sterka vini.
Vinátta minnkar ekki sjálfstæði – hún eykur öryggi.
RÆTUR HEIMA – EIGUM VINI HANDAN HAFS.
Og dýrmætasta öryggið heitir FRIÐUR.
Friður leyfir barni að sofa og bónda að sá.
Sjómanni að róa og ungu fólki að elska.
Friðinn þarf að rækta með trausti, vináttu og samvinnu.
Ísland hefur margt að læra – og margt að gefa.
RÆKTUM FRIÐINN. RÆKTUM LÍFIÐ.
Við vitum ekki hvort samningurinn verður nógu góður.
ÞESS VEGNA SKULUM VIÐ SEMJA – OG SJÁ.
Semjum af festu. Verjum það sem okkur er dýrmætt.
Sjáum hvað við fáum – og hvað við gefum.
Síðan lesum við, metum og veljum sjálf.
Við þurfum ekki að óttast að vita meira.
Við þurfum hugrekki til að horfa lengra en til dagsins.
Því ábyrgð okkar er ekki aðeins Ísland dagsins í dag –
heldur Ísland sem börnin okkar erfa.
HUGREKKI ER AÐ ÞORA AÐ SJÁ ÁÐUR EN VIÐ VELJUM.
VERUM FORVITIN.
HÖLDUM DYRUNUM OPNUM.
SJÁUM SAMNINGINN.
SJÁUM SAMAN FRAMTÍÐ ÍSLANDS.
SEGJUM JÁ Í ÁGÚST.
Höfundur er viðskiptafræðingur og fv. stjórnandi. Kennari og fyrirlesari um leiðtogamenningu og Qigong lífsorku – lifsraekt.is