Eyjan

Carl Bildt: Svigrúm til málamiðlana í sjávarútvegi og landbúnaði – Aðildarviðræður myndu ganga hratt fyrir sig

Mynd
Carl Bildt, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Svíþjóðar. Mynd/Getty

Carl Bildt, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Svíþjóðar, telur að ef Ísland héldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið þá muni viðræðurnar taka skamman tíma og að lokaniðurstaða lægi fyrir innan tveggja ára, þá sé „svigrúm til málamiðlana“ þegar kemur að sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. 

Bildt var forsætisráðherra Svía frá 1991 til 1994 og svo utanríkisráðherra frá 2006 til 2014. Í grein sem hann skrifar í Tomorrow‘s Affairs fer hann yfir stöðu Íslands í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Má þess geta að Bildt var sá sem tók við aðildarumsókn Íslands þegar sótt var um árið 2009 en þá fór Svíþjóð með forsæti ráðs Evrópusambandsins.

Full aðild myndi styrkja fullveldi Íslands

Bildt segir að þegar Íslandi hafi sótt um árið 2009 hafi það verið gert í skugga fjármálahruns og margir á Íslandi hafi þá talið að best væri að tengja gjaldmiðilinn við evruna. Þeim viðræðum hafi svo verið slitið eftir að búið var að opna 27 kafla af 33 og loka 11 köflum. Hafi Íslendingar þá talið að efnahagurinn hafi tekið að vænkast mun betur en á horfðist. „Ísland, töldu margir, gæti staðið á eigin fótum,“ segir Bildt. 

Síðan þá hafi efnahagurinn staðið vel, ekki síst vegna ferðaþjónustunnar. „En óvissan í kringum sveiflukenndan gjaldmiðil Íslandi hefur haldið vöxtum, og þannig ýmsum kostnaði, hlutfallslega háum. Með vaxandi spennu í alþjóðamálum og alþjóðlega hagkerfinu hafa margir tekið að óttast að staða Íslands utan Evrópusambandsins sé orðin að veikleika,“ segir Bildt. 

„Af sögulegum ástæðum hefur umræða um fullveldi skipað stóran sess þegar rætt er um inngöngu Íslandi í Evrópusambandið. En þar sem Ísland er nú þegar í nánu efnahagslegu sambandi við ESB í gegnum EES-samninginn myndi full aðild í raun styrkja fullveldi landsins, þar sem Ísland fengi þá aðkomu að ákvörðunum sem því ber nú þegar að innleiða.“

Virðist svigrúm til málamiðlana

Segir hann að samningar um undanþágur í kringum sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins muni skapa stærstan sess í mögulegum viðræðum, þá sé svigrúm til málamiðlana. „En þar sem Bretland er ekki lengur í ESB og efnahagslögsaga Íslands liggur ekki að efnahagslögsögu neins aðildarríkis sambandsins virðist svigrúm vera til málamiðlana,“ segir Bildt. 

„Í ljósi þess að Svíþjóð og Finnland hafa þegar tryggt sér sérstakar undanþágur og fyrirkomulag varðandi landbúnað á norðlægum svæðum ætti að vera mögulegt fyrir Ísland að fá sambærilega hagstæða meðferð.“

Ferlið myndi ganga hratt fyrir sig

Beinir hann svo spjótum sínum að öryggismálum og bendir á að enginn geti séð fyrir hvað Donald Trump Bandaríkjaforseti ætli sér að gera varðandi Grænland, nýjustu ummæli hans benda til að hann vilji fá yfirráð yfir Grænlandi fyrir lok kjörtímabilsins. „En óstöðug og ófyrirsjáanleg stefna ríkisstjórnar hans í öryggismálum hefur án efa gert stöðu Íslands viðkvæmari,“ segir Bildt. Þar að auki geri staða Íslands utan tollabandalags á tímum viðskiptastríða það berskjaldað. 

„Ef Íslendingar greiða atkvæði með því að hefja aðildarviðræður að nýju myndi ferlið að öllum líkindum ganga hratt fyrir sig og endanleg ákvörðun um aðild gæti líklega legið fyrir innan tveggja ára,“ segir Bildt. „Engin ástæða er til að ætla að ESB – og þá sérstaklega aðildarríkin á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkin – myndu ekki taka Íslandi opnum örmum.“