Í góðæri ársins 1987 reis nokkur umræða um hvort rétt væri að heimila útlendingum vinnu hér í meira mæli enda vinnuaflsskortur tilfinnanlegur. Að ótöldum öðrum norrænum ríkisborgurum voru um 700 útlendingar með atvinnuleyfi hér á þeim tíma. Verkalýðshreyfingin tók illa hugmyndum um að greiða erlendum mönnum leið að íslenskum vinnumarkaði. Þröstur Ólafsson hjá Dagsbrún sagði til að mynda það hljóta að vera álitamál hvort jafn lítil þjóð gæti opnað land sitt fyrir margfalt stærri þjóðum án þess að það ógnaði menningu hennar og siðum. Íslenskur vinnumarkaður þyldi ekki ótakmarkað streymi vinnuafls án þess að fara úr skorðum sem myndi leiða af sér lækkun á kaupi „en eins hitt að hættur sem leiða af framandi menningu og ólíkum lífsviðhorfum geta orðið okkur skaðvænlegar og leitt til árekstra innanlands, eins og við verðum áhorfendur að daglega hjá sumum erlendum þjóðum“.
Þetta kom fram í umfjöllun Morgunblaðsins um málið, en einnig var rætt við Magnús L. Sveinsson, formann Verslunarmannafélags Reykjavíkur, sem tók í sama streng og sagði við blasa að stórfelldur innflutningur af fólki myndi líka hafa áhrif á húsnæðismarkaðinn, auka eftirspurn eftir íbúðum sem myndi leiða af sér hækkun íbúðaverðs. Draga yrði lærdóma af biturri reynslu annarra þjóða í þessum efnum og Íslendingar mættu ekki gleyma því að við værum „fámenn þjóð með okkar sérstöku menningu eins og tungumálið, sem við verðum að gæta vel að“.
Innri markaður að líta dagsins ljós
Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, tók annan pól í hæðina aðspurður um sama efni. Sagði hann Íslendinga verða að gæta að því að byggja ekki upp einangrunarstefnu gagnvart nágrannalöndum því slík stefna hlyti alltaf fyrr eða síðar að kalla á svipuð viðbrögð. Hann sagði grunnt á hleypidómum í þessari umræðu meðal annars með þeirri fullyrðingu að segja að með innflutningi vinnuafls væri verið að halda niðri launum: „Ef þessi fullyrðing er skoðuð betur þá hlýtur að felast í henni sú staðreynd að launakjör og tekjumöguleikar á Íslandi séu betri en í nágrannalöndunum.“ Sagði hann kaupmátt hafa aukist mikið á umliðnum misserum og þess vegna væri eftirsóknarvert fyrir ungt fólk í löndum þar sem atvinnuleysi herjaði að koma til starfa hér. Orðrétt sagði hann: „Við eigum að taka við þessu unga fólki opnum örmum og gefa því tækifæri til að starfa hér á landi þar sem fólk vantar til svo margvíslegra framleiðslustarfa.“
Þessi umræða tengdist áformum sem tólf ríki Evrópubandalagsins höfðu sett sér tveimur árum fyrr um að fyrir árslok 1992 yrði komið á fót sameiginlegum innri markaði, landamæri milli þeirra yrðu nánast þurrkuð út og flutningar á vörum, fjármagni og vinnuafli yrðu frjálsir og hindrunarlausir. EFTA-ríkin voru þá sex talsins, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Sviss og Austurríki — á útjaðri þessa varðandi efnahagsrisa. Eðlilega veltu Íslendindingar þessum málum mikið fyrir sér enda gríðarlega háðir útflutningsverslun við ríki Evrópubandalagsins.
Hérlendis voru það helst iðnrekendur sem töluðu máli aukinnar þátttöku Íslendinga í efnahagssamvinnu Evrópuríkja. Í maí 1988 efndi iðnaðarráðuneytið til ráðstefnu um þessi mál í samstarfi við Félag íslenskra iðnrekenda og fleiri samtök í iðnaði. Í erindi sínu á ráðstefnunni lét Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra þess getið að hætta væri á aukinni skriffinsku við innflutning á vörum frá ríkjum utan EB og að allt stefndi að því að tekinn yrði upp sameiginlegur Evrópugjaldmiðill. Slíkt væri umhugsunarefni fyrir Íslendinga. Ríki EB höfðu árið áður keypt 57% útflutnings Íslendinga og 53% innflutnings kæmi frá bandalaginu. Friðrik sagði Íslendinga augljóslega standa „frammi fyrir afar mikilvægri ákvörðun. Viljum við vera með í þróuninni, eða ætlum við að láta okkur hana engu skipta? Í mínum huga er það grundvallaratriði að Íslendingar eru Evrópuþjóð. Í fortíðinni höfum við átt pólitíska og efnahagslega samleið með Evrópu. Í framtíðinni eigum við að vera þátttakendur, en ekki áhorfendur. Spurningin er ekki hvort — heldur hvenær, og hvert hlutverk við ætlum okkur í Evrópu“.
Aðild eða tvíhliða samningur
Síðla árs 1989 féllu kommúnistastjórnirnar hver af annarri í austurhluta álfunnar en sama ár hafði Jaques Delor, framkvæmdastjóri Evrópubandalagsins, kallað eftir skipulögðu samstarfi EFTA og Evrópubandalagsins. Íslendingar höfðu forystu í EFTA-ráðinu um þær mundir og niðurstaðan varð sú að stofna til svokallaðs evrópsks efnahagssvæðis sem myndi tryggja að EFTA-ríkin fengju aðgang að innri markaði Evrópubandalagsins og EB-ríkin að markaði EFTA-ríkjanna án þess að til aðildar að EB þyrfti að koma.
Þá var enn óljóst hversu viðurhlutamikið hið nýja samstarf yrði og sömuleiðis voru aðrar hugmyndir uppi á borðum. François Mitterand Frakklandsforseti kom hingað í opinbera heimsókn í lok ágústmánaðar 1990. Hann lét svo um mælt á blaðamannafundi að hann teldi hagstæðast fyrir Íslendinga vegna sérstöðu sinnar sem útflytjanda sjávarafurða að leita eftir tvíhliða sérsamningi við Evrópubandalagið. Þetta vakti allnokkra athygli en Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sló slíkar hugmyndir út af borðinu og sagði þær óraunhæfar.
Hannes Jónsson lét af embætti sendiherra um þær mundir, eftir 35 ára starf í utanríkisþjónustunni, meðal annars svo hann gæti látið til sín taka í umræðunni um evrópskt efnahagssvæði. Hann sagði andstöðu Jóns Baldvins við hugmynd Mitterands byggða á „falsrökum“. Raunar var þetta sú leið sem Svisslendingar fóru en þeir höfnuðu aðild að Evrópska efnahagssvæðinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sagði Hannes síðar að Svisslendingar nytu þá ábata af fríversluninni án þess að taka á sig stórfelldan stofnanakostnað og framsal ríkisvalds.
Hannes greinir frá því í seinna bindi ævisögu sinnar að sér hefði fundist málflutningur utanríkisráðherra einkennast af þeirri nauðhyggju að Íslendingar yrðu að stökkva upp í „Evrópuhraðlestina“ eða ella einangrast og veslast upp á útkjálka svæðisins. Þótti honum sem umræðan byggðist á þröngsýni, ekki hefði verið hugað að fríverslunarmöguleikum á vegum EFTA meðal annars með fríverslunarsamningum við ríki í austurhluta álfunnar og í Suðurálfu og auknum viðskiptum við ríki vestanhafs og Austurlönd fjær. Hannes gagnrýndi aukinheldur það framsal ríkisvalds sem fylgt hefði aðildinni að EES en þar með hefði fullveldi þjóðarinnar verið skert. Þeir sem voru á öndverðum meiði sögðu þá gjarnan að í fullveldinu fælist líka heimild til að taka á sig alþjóðlegar skuldbindingar. Því mætti líkja við lögráða einstakling. Ef hann réði sig í vinnu væri hann ekki að skerða lögræði sitt heldur beita því.
Grundvallaratriðin enn hin sömu
Svo fór að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið var samþykktur á Alþingi með naumum meirihluta, 33 atkvæðum. Vigdís Finnbogadóttir forseti veitti lögunum samþykki sitt á ríkisráðsfundi daginn eftir en alls höfðu 35 þúsund manns ritað undir áskorun þess efnis að hún vísaði málinu til þjóðarinnar á grundvelli 26. gr. stjórnarskrár. Skoðanakannanir höfðu sýnt að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar var því fylgjandi að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um málið og í könnun sem DV birti 21. janúar 1993 kom fram að sextíu af hundraði aðspurðra var óánægður með afgreiðslu málsins. Meiri líkur en minni voru á að samningurinn yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hannes Jónsson hélt enn að skrifa um samninginn eftir að hann hafði öðlast gildi. Að hans viti ætti að gera kröfu um endurskoðun hans, þannig að stofnanakaflarnir yrðu felldir niður og þar hyrfi sá mikli kostnaður sem rekstri stofnana fylgdi og að auki yrði látið af forgangsrétti Evrópureglna. Réttara væri að gera tvíhliða fríverslunarsamning á grundvelli EES-samningsins. Vel mætti stunda frjáls milliríkjaviðskipti við lönd Evrópusambandsins án hinnar dýru stofnanaumgjarðar og afsals ríkisvalds til yfirþjóðlegra stofnana. Þessar röksemdir hafa raunar lítið heyrst í umræðunni hérlendis en mjög verið haldið á lofti af hálfu andstæðinga EES-samningsins í Noregi um langa hríð.
Friðrik Sophusson hafði sem iðnaðarráðherra spurt hvaða hlutverk Íslendingar ætluðu sér í Evrópu og sagði þá eiga að vera þátttakendur, en ekki áhorfendur. Niðurstaðan varð aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið sem fært hefur Íslendingum mikinn efnahagslegan ávinning, en honum fylgja líka vankantar. Og þó svo að 35 til 40 ára gömul ummæli um þessi mál verði ekki fyllilega heimfærð upp á álitaefni samtímans í ljósi þróunar Evrópusambandsins undangengna áratugi þá eru grundvallaratriðin í ýmsum skilningi enn hin sömu.