Eyjan

Nína Richter skrifar: „Boomerar“ sem hata ódýra bíla

Mynd
Mynd

Kannski voru það BuzzFeed-persónuleikaprófin, þessi sem voru svo vinsæl um 2010, sem vöktu fyrst athygli mína á því sem seinna varð „menningarlegu kynslóðastríðin“. Þetta var gróskumikið tímabil í nýmiðlun á milli poppmenningartímaritsins, bloggsins og samfélagsmiðlanna. Það var hægt að finna helling af vönduðum og skemmtilegum umfjöllunum um poppmenningu á Internetinu og öllu minna af leiðinlegum ljósmyndum og myndböndum. Svo snerist þetta hratt við og endaði að lokum með því að ritaða málið varð útlagi.

Í þessum afþreyingarfrumskógi millennial-kynslóðarinnar eða Y-kynslóðarinnar (þúsaldarkynslóðarinnar fyrir RÚV-fólkið) skapaðist kynslóðabundin sjálfsmynd. Síðan var hverri kynslóð úthlutað hverri klisjunni á fætur annarri, þangað til fólk fór nánast að gangast upp í því að passa inn í klisjuna eða gæta þess að falla utan hennar. Ristað brauð með avókadó varð skyndilega að táknmynd skammsýni Y-kynslóðarinnar, rétt eins og flatskjárinn hafði verið táknmynd óhófs á fyrsta áratug aldarinnar. Yngri kynslóðir voru merktar með samfélagsmiðlinum sem þær notuðu. Myspace-kynslóðin, Facebook-kynslóðin, YouTube-kynslóðin, Snapchat-kynslóðin, TikTok-kynslóðin. Allir áttu þessir miðlar sameiginlegt að hafa eyðilagt fullkomin börn fyrir vandvirkum foreldrum.

Þessi flokkun virtist í fyrstu vera saklaus afþreying, á borð við stjörnuspá. Síðan komu markaðsnornirnar askvaðandi með gröf og línurit sem sýndu svart á hvítu hvers konar neysluhegðun hver og einn hópur sýndi. Y-kynslóðin drap verslunarmiðstöðvarnar, demantaiðnaðinn, morgunkornið, servíettur og bílaiðnaðinn.

Markaðsfólk hafði skyndilega aðgang að öllum þessum nýju upplýsingum sem grunlausir neytendur mokuðu inn á Internetið í þeirri seiðandi Narkissosartjörn sem þessi sjálfspróf eru. Hröð þróun og vaxandi notkun samfélagsmiðla var eins og olía á eldinn. Upplýsingarnar voru óþrjótandi og markaðurinn fyrir þær óseðjandi.

Á einum og hálfum áratug hefur líf okkar orðið svo straumlínulagað að við getum móðgast ef auglýsingin sem birtist í símanum er ekki sérsniðin að okkur. „Heimski algóritmi. Ekki séns að ég myndi kaupa miða á Þjóðhátíð í Eyjum.“ Ég man þegar okkur fundust sérsniðnar auglýsingar eins og óhugnaður úr vísindaskáldsögu. Það eru ekki nema tvö gallabuxnatrend síðan.

Á dögunum var fjölskyldan, samsett af foreldrum af Y-kynslóð og tveimur börnum af alfa-kynslóð, að kaupa nýjan bíl. Þrátt fyrir að vera dóttir vélfræðings hef ég svo átakanlega lítinn áhuga á akstri að ég hef ekki einu sinni haft lyst á því að taka bílpróf og hjóla allar mínar ferðir eða nýti almenningssamgöngur eins og argasti hippi. Eiginmaðurinn er á svipaðri línu en þarf starfsins vegna að vera á bíl. Þegar Priusinn okkar gaf upp öndina í Hvalfjarðargöngunum fyrir nokkrum vikum þurftum við því að drattast á bílasölu og finna bifreið sem hentaði fjölskyldunni. Eldra fólkið í nærumhverfi okkar átti erfitt með að skilja hvers vegna við keyptum ekki dýrasta bílinn sem við mögulega höfðum efni á. Við völdum þess í stað ódýrasta og sparneytnasta bílinn sem við komumst upp með og höfðum hann temmilega nýjan og nokkuð lítið keyrðan. Ef hann kemur okkur frá A til B og bilar sjaldan, þá eru allir glaðir.

Þetta bílamál er kynslóðamál, engin spurning. En mér finnst þetta svo rosalega skrýtið. Okkur er nákvæmlega sama hvers konar bíl annað fólk keyrir. Aldrei hef ég hrifist af manni út af bílnum hans. Svo ég geri nákvæmlega það sem ég var að gagnrýna og nota bílakaupin sem tæki til kynslóðargreiningar. Við og hinir.

Kannski er þetta bara einstaklingsbundið. Kannski eru til boomerar á ódýrum bílum og kannski eru til konur af minni kynslóð sem myndu hrífast af manni á dýrum bíl. Kannski er kynslóðagreining bara stjörnuspá fyrir fólk sem treystir ekki stjörnumerkjum.