Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Úrval Útsýn. Hún mun leiða starfsemi félagsins áfram með skýra áherslu á vöxt, öflugt vöruframboð og góða þjónustu við viðskiptavini. Ingibjörg ber ábyrgð á framleiðslu og sölu ferða á vegum vörumerkjanna Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða.
Samhliða því tekur Tómas J. Gestsson við sem forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands. Hann mun gegna starfinu samhliða því að stýra Heimsferðum, en Tómas hefur verið við stjórnvölinn þar í rúm 20 ár.
„Ferðaskrifstofa Íslands er eitt öflugasta fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi og býr að sterkum vörumerkjum, mikilli reynslu og öflugu starfsfólki. Fram undan eru spennandi tækifæri til að styrkja reksturinn enn frekar og þróa fjölbreytt framboð félagsins. Ég hlakka til að vinna með Ingibjörgu og starfsfólkinu að næsta kafla í sögu félagsins,“ segir Tómas J. Gestsson.
Ingibjörg hefur víðtæka reynslu af íslenskri ferðaþjónustu og af stjórnun, framleiðslu og sölu ferða.
„Það er mikil tilhlökkun að takast á við þetta verkefni. Vörumerki Ferðaskrifstofu Íslands eiga sér sterka stöðu og langa sögu. Við ætlum að byggja áfram á þeim grunni, efla vöruframboðið og sækja fram með þarfir og upplifun viðskiptavina að leiðarljósi,“ segir Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir.