Eyjan

Orðið á götunni: Kristrún slær í gegn á alþjóðasviðinu

Mynd

Kristrún Frostadóttir sló á dögunum í gegn í hlaðvarpinu „The Rest is Politics“ sem Bretarnir Alaster Campbell, fyrrum spunameistari Tony Blair, og Rory Stewart, fyrrverandi þingmaður Íhaldsflokksins, stjórna.  Eftir viðtalið ræddu þáttastjórnendurnir saman og voru á einu máli um að Kristrún væri stjórnmálaleiðtogi á heimsmælikvarða og eldklár.

Efni viðtalsins var einkum komandi þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Kristrún lagði áherslu á að gætt yrði hófsemi í málflutningi bæði já- og nei-sinna. Hún svaraði spurningum um það hvort hún hefði engar áhyggjur af uppgangi hægri popúlista innan ríkja ESB og fram kom hjá henni að hún teldi sambandið þurfa að bregðast við þeim uppgangi.

Kristrún sagðist telja að uppgangur hægri öfgaafla sé m.a. til kominn vegna þess að stjórnvöld í einstökum ríkjum og ESB hafi hunsað að hlusta á raddir fólksins og því finnist það afskipt og vanrækt.

Mjög skýrt kom fram hjá henni hversu skaðlegur Donald Trump og stefna hans væri öllum ríkjum heims og að ásælni hans í Grænland og ótryggt ástand alþjóðamála hefði orðið til þess að ríkisstjórnin ákvað að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Orðið á götunni er að Kristrún hafi í þessu viðtali stimplað sig í sérflokk þjóðarleiðtoga og nokkuð er víst að aldrei hefur íslenskur forsætisráðherra flutt mál sitt jafn vel á alþjóðavettvangi og hún. Mátti heyra það á spjalli þáttastjórnenda í lok þáttarins að forsætisráðherrann okkar heillaði þá með leiftrandi snjöllum málflutningi sínum.

Campbell benti á að að Kristrún er rísandi stjarna á alþjóða vettvangi. Þegar hún fór á leiðtogafund NATO í Tyrklandi fyrr í sumar var hún með 19 þúsund fylgjendur á Instagram. Þegar fundinum lauk voru fylgjendurnir orðnir 275 þúsund. Þetta heitir að slá í gegn.

Orðið á götunni er að margir nei-sinnar mættu íhuga vel þau orð Kristrúnar að kjósendur séu ekki fífl og þeir muni ekki falla fyrir innihaldslausum hræðsluáróðri eða loforðum. Kristrún benti enn fremur á að stjórnmálamenn þurfi að gæta þess að tala ekki bara við kjósendur sína í gegnum samfélagsmiðla heldur þurfi að fara og hitta kjósendur og tala við þá augliti til auglitis.

Orðið á götunni er að orð Kristrúnar muni hafa mikil áhrif í aðdragandi þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Eins og hún benti á í hlaðvarpinu snýst þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst alls ekki um aðild að ESB heldur einungis um það hvort við viljum halda áfram viðræðum og fá upp á borðið nákvæmlega hvaða kjör bjóðast okkur við inngöngu í sambandið. Þá og fyrst þá, þegar við vitum nákvæmlega hvað felst í aðild Íslands, verða greidd atkvæði um það hvort við viljum gerast aðildarríki.