Í gær var birt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í hinu þekkta og vinsæla hlaðvarpi The Rest is Politics. Hlaðvarpinu stýra eins og kunnugt er tveir Bretar þeir Alastair Campell, fyrrum spunameistari Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og Rory Stewart fyrrum þingmaður Íhaldsflokksins þar í landi.
Tilefni viðtalsins var komandi þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið en fleiri mál voru einnig til umræðu.
Í viðtalinu ræddi hún um afstöðu atvinnurekenda og segist hún skilja hvers vegna fulltrúar meðalstórra fyrirtækja séu mótfallnir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það hafi verið annað mál þegar gjaldeyrishöftin voru við lýði.
„Þeim gengur ágætlega í lokuðu kerfi. Þeim getur vegnað vel þegar verðbólga eykst því það er takmörkuð samkeppni,“ sagði Kristrún. Mörg fyrirtæki hér á landi geti gengið að sinni markaðshlutdeild vísri.
„Ef þau fá utanaðkomandi samkeppni, þá er það kannski ekki svo frábært fyrir þau.“