Undanfarið hefur Morgunblaðið staðið fyrir rætinni rógsherferð gegn Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og sakað hana um að segja ósatt frá samtölum sínum við forsætisráðherra Hollands. Meinfýsnar ásakanir Morgunblaðsins eru algerlega innistæðulausar vegna þess að Þorgerður Katrín hefur upplýst að hún hafi ekki átt samtöl við hollenska forsætisráðherrann.
Blaðamenn Morgunblaðsins byggðu árásir sínar á hendur Þorgerði Katrínu á frétt á Vísi, sem nú hefur verið leiðrétt. Blaðamaður Vísis lagði Þorgerði Katrínu orð í munn og sagði hana hafa talað um samtal sitt við hollenska forsætisráðherrann. Þarna gerði blaðamaðurinn mistök og dró ályktanir sem orð Þorgerðar Katrínar gáfu ekki tilefni til. Virðingarvert er að Vísir og blaðamaðurinn viðurkenni mistök sín nú, en betur hefði farið á því að það hefði verið gert um leið og ljóst var að Morgunblaðið notaði frétt Vísis til árása á utanríkisráðherra og byggði einmitt á því sem voru orð blaðamannsins en ekki ráðherrans.
Morgunblaðið dró ekki af sér í árásum á Þorgerði Katrínu og fékk fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, fleiri en einn með misköflóttan feril, til að fella dóma um orð ráðherrans, sem nú er ljóst að voru uppspuni blaðamanns. Gunnar Bragi Sveinsson, sem frægur er af endemum eftir næturbrölt á Klausturbar, kallaði eftir því að Þorgerður Katrín bæði forsætisráðherra Hollands afsökunar. Bjarni Benediktsson og Lilja Alfreðsdóttir hoppuðu líka á rógslest Moggans. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem hefur haft allt á hornum sér síðan hann missti ráðherrastólinn, lét sig ekki vanta.
Eftir að Þorgerður Katrín upplýsti að hún hefði aldrei vísað til neinna samtala við forsætisráðherra Hollands, heldur hefði hún vísað til samtala við kollega sína í Evrópu, bæði einstakra landa og Evrópusambandsins, hefðu einhverjir búist við því að Morgunblaðið drægi til baka fréttaflutning sinn og bæðist jafnvel afsökunar á honum. Það hefði vandaður fjölmiðill gert. Nei, þá var gefið í og dregnir upp á dekk aðilar á borð við Sigmund Davíð Gunnlaugsson til að áfellast utanríkisráðherra fyrir að hafa ekki sjálf leiðrétt hina röngu frétt Vísis um leið og hún birtist. Það átti sem sagt að gera Þorgerði Katrínu ábyrga fyrir árásum á hana sjálfa.
Orðið á götunni er að vandaður fjölmiðill hefði leitað álits Þorgerðar Katrínar áður en lagt var upp í herferð gegn henni, sem byggðist, ekki á beinni tilvitnun í hana sjálfa heldur útleggingu fréttamans annars miðils á orðum hennar. Morgunblaðið féll á því prófi.
Orðið á götunni er að málflutningur þeirra sem berjast gegn því að íslenska þjóðin fái að taka upplýsta ákvörðun um það hvort hagsmunum hennar sé betur farið innan eða utan Evrópusambandsins byggist á því að tilgangurinn helgi meðalið. Þar fer Morgunblaðið fremst í flokki. Staðreyndir skipta engu máli og óhikað er beitt ósannindum og blekkingum til að hræða fólk frá því að segja já í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Orðið á götunni er að málflutningur nei sinna, hvort sem þeir skipa sér undir fána Heimssýnar eða Áfram Ísland, sé ódýr eftirlíking á því sem MAGA-hreyfingin í Bandaríkjunum og Brexit-sinnar í Bretlandi ástunda. Ljúga bara nógu mikið og stórt og endurtaka lygina oft og mörgum sinnum út í hið óendanlega. Í Bandaríkjunum dugði þetta til að kjósendur kusu Trump, ekki einu sinni heldur tvisvar, og sitja nú uppi með hann, og Bretar gengu út úr ESB, sem hefur skaðað breskan efnahag og breskt þjóðlíf svo að mikil meirihluti Breta vill nú komast aftur inn í sambandið.
Orðið á götunni er að lykilþáttur í hinni neikvæðu baráttu sé að ráðast gegn mannorði og heiðri Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og reyna að grafa undan trúverðugleika hennar. Morgunblaðið hefur tekið að sér að leiða þá aðför.