Sjálfstæðisflokkurinn er mælist í fyrsta skipti í langan tíma stærsti flokkur landsins, í nýrri könnun Maskínu fyrir Sýn.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25% fylgi en Samfylkingin fylgir fast á eftir með 24,4% fylgi.
Miðflokkurinn, sem um tíma mældist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í könnunum, er í 13,4%.
Viðreisn er með 12,7% fylgi.
Framsóknarflokkurinn tapar fylgi frá síðustu könnunum og er með 6,6%.
Flokkur fólksins bætir hins vegar við sig fylgi og er með 5,9%
Sósíalistar, Píratar og VG eru með fylgi undir 5% og myndu því ekki ná manni á þing ef kosið væri núna.