Grasrótarhreyfingin SJÁ hefur fengið öflugan liðsauka með komu Grétu Maríu Grétarsdóttur, verkfræðings, og Hrundar Rudólfsdóttur, framkvæmdastjóra, í stjórn hreyfingarinnar.
Í tilkynningu frá hreyfingunni segir: „Þær búa báðar yfir víðtækri reynslu, mikilli þekkingu og sterkri sýn sem mun nýtast hreyfingunni vel á komandi vikum. Það er mikill fengur fyrir SJÁ að fá þær til liðs við sig á þessum mikilvæga tímapunkti.
Fram undan eru spennandi tímar þar sem lögð verður sérstök áhersla á málefnalega, jákvæða og aðgengilega upplýsingamiðlun um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Markmið SJÁ er að stuðla að vandaðri umræðu og hvetja fólk til að kjósa já til að sjá, svo þjóðin geti tekið vel ígrundaða ákvörðun um framtíð sína.“
„Við erum afar ánægð með að Gréta María og Hrund hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur. Þær styrkja teymið okkar og koma með dýrmæta reynslu og kraft inn í starfið. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra verkefna sem fram undan eru,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri SJÁ.
Gréta María Grétarsdóttir:
„Það er mikilvægt að taka ákvörðun um framtíð okkar byggða á áreiðanlegum gögnum. Mér finnst því eðlilegt að við fáum að sjá hvað samningur felur í sér. Ég segi já þann 29. ágúst því ég vil geta tekið upplýsta ákvörðun um framtíð mína.“
Hrund Rudólfsdóttir:
„Fram undan er mikilvæg umræða um stóra ákvörðun sem mun hafa mikil áhrif á Ísland, sama hver niðurstaðan verður. Það er flókin og erfið vegferð fyrir þjóð að taka slíka umræðu og mikilvægt að þegar niðurstaða sé komin, að um hana ríki sem víðtækust sátt.
Ég tel mikilvægt að við skoðum nánar hvað í aðild að Evrópusambandinu gæti falist af tveimur stórum ástæðum. Í fyrsta lagi til að afla þeirra upplýsinga sem eru forsenda málefnalegrar umræðu og réttrar ákvarðanatöku. Í öðru lagi þá tel ég að það sé besta leiðin til að tryggja sátt í samfélaginu til framtíðar litið.“
Fyrir í stjórn eru Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir.
SJÁ mun á næstu vikum halda áfram að miðla upplýsingum, standa fyrir opnum fundum og viðburðum víðs vegar um landið og skapa vettvang fyrir málefnalega og uppbyggilega umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.
Víðtæk reynsla úr íslensku atvinnulífi
Gréta María og Hrund búa báðar yfir mikilli og góðri reynslu úr íslensku viðskiptalífi. Gréta María, sem er véla- og iðnaðarverkfræðingur að mennt, hóf feril sinn í Arion banka og var forstöðumaður hagdeildar bankans. Þaðan fór hún til Festi sem fjármálastjóri, en Festi er móðurfélag Krónunnar, Elko og Bakkans vöruhótels. Gréta varð framkvæmdastjóri Krónunnar og þaðan fór hún til Brims í nokkur ár áður en hún réð sig sem forstjóri Arctic Adventures, eins stærsta ferðaþjónustufélags landsins. Frá Arctic Adventures lá leiðin til Heimkaupa og loks Prís sem hún stýrði á fyrstu metrum þess fyrirtækis.
Það er því óhætt að fullyrða að Gréta María hafi yfirgripsmikla reynslu og þekkingu í íslensku viðskiptalífi úr bankastarfsemi, smásölu, sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Á öllum sviðum hefur hún verið í leiðtogahlutverki.
Hrund Rudólfsdóttir hefur líka víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi. Frá 2002-2006 var hún framkvæmdastjóri Lyf&Heilsu, hún stýrði heilbrigðistengdum fjárfestingum Milestone um árabil. Þá var hún framkvæmdastjóri mannauðsmála í Marel og var forstjóri Veritas samstæðunnar 2013-2023. Hún er nú framkvæmdastjóri Sólvalla rekstrarfélags ehf.
Hrund á sæti í stjórn Skaga hf. og situr einnig í stjórnum Stjánks ehf., Veitna ohf., Expectus ehf., Nova hf. og Nova klúbburinn hf. Hún situr sem óháður stjórnarmaður sem þýðir að hún situr ekki í krafti eigin hlutafjáreignar, heldur vegna þess að hluthafar í viðkomandi félögum treysta henni til að gæta hagsmuna eigenda í stjórn.
Ljóst er að aðkoma Grétu Maríu og Hrundar að stjórn SJÁ er mikill hvalreki fyrir samtökin sem berjast fyrir því að við Íslendingar fáum að sjá hvað okkur stendur til boða í aðildarsamningum við Evrópusambandið.