Eyjan

Gagnrýnir afskipti Ólafs Ragnars af þjóðaratkvæðagreiðslunni – „Fyrrverandi forseti klýfur þjóðina“

Mynd

„Uggvænlegt er þegar í ljós kemur að umdeildur hagsmunahópur í þágu nokkura auðmanna gegn viðræðum við Evrópusambandið, hyggst hafa sjálfan Seðlabankann í vasanum og beita áhrifum sínum gegnum bankann. Hvað er eiginlega í gangi?“ segir Guðjón Jensson, rithöfundur og leiðsögumaður, í aðsendri grein í Morgunblaðinu. 

Þar gagnrýnir hann Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þátttöku hans í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst:

„Fyrrverandi forseti klýfur þjóðina öðru sinni í tvær fylkingar og fer þvert á þau sjónarmið að forseti eigi fremur að vera sameiningartákn en að standa í því umdeilda stússi að sundra þjóðinni í þágu auðmanna.“

Guðjón snýr á algengt viðkvæði nei-sinna um fullveldi þjóðarinnar og spyr hvort við ætlum að glata sjálfsákvörðunarrétti okkar í hendur þeirra sem hafa hag af því að standa utan EBS. Engin þjóð hafi fram að þessu þurft að sjá á eftir fullveldi sínu í samstarfi við sambandið. 

Hann segir lagagrundvöll ESB vera nútímalegri og þróaðri en okkar Íslendinga og við stöndum langt að baki í ýmsum efnum: 

„Við stöndum langt að baki í ótalmörgum málum og má þar nefna margt. Mannréttindi eru betur virt innan Evrópusambandsins, neytendamál komin lengra, dýravernd og meðferð dýra, félagsleg réttindi eru víða betri en hér. Og ekki má gleyma umhverfismálunum sem hjá okkur mætti ætla sé í höndum trölla fremur en víðsýns og menntaðs fólks.“

Guðjón hvetur til þess að segja já þann 29. ágúst en segir að Ólafur Ragnar ætti að halda sig til hlés og skipta sér ekki af viðkvæmum málefnum samfélagsins. Hann spyr í lok greinar sinnar: 

„Hver er tilgangurinn með öllu þessu mótlæti þeirra sem betur mega sín í samfélaginu?“