Morgunblaðið virðist hafa fundið sér þann tilgang í tilverunni að berjast hatrammlega gegn samningsstöðu Íslands í mögulegum aðildarviðræðum við ESB. Baráttan fer ekki einungis fram hér á landi heldur eru blaðamenn blaðsins óþreytandi við að brýna ráðamenn í aðildarríkjum bandalagsins til að gefa ekkert eftir í samningum við Ísland, semja alls ekki um undanþágur eða varanlegar sérlausnir, sýna bara hörkuna sex. Blaðið er að sönnu fimmta herdeildin hér á landi.
Þessa dagana fer blaðið mikinn gegn Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og sakar hana um að hafa haft rangt eftir Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, um mögulegar sérlausnir og undanþágu Íslands frá sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB. Orðið á götunni er að forsendur þessa fréttaflutnings Morgunblaðsins standist engan veginn. Það hefur þegar komið fram ítrekað bæði hjá stækkunarstjóra ESB og forseta framkvæmdastjórnarinnar að bandalagið mun taka fullt tillit til sérstöðu Íslands í sjávarútvegsmálum. Sérstaðan felst m.a. í því að botnsjávarfiskstofnar hér við land eru staðbundnir en flakka ekki milli lögsögu Íslands og annarra ríkja.
Sameiginleg fiskveiðistefna ESB snýr að verndun fiskstofna sem flakka milli lögsögu mismunandi ríkja. Allir flökkustofnar eru þar undir og engin aðildarríki fá undanþágur. Orðið á götunni er að hvernig sem Morgunblaðið reynir að fella staðbundna stofna hér við land undir sameiginlegu fiskveiðistefnuna muni blaðinu ekki verða að þeirri ósk sinni. Engu máli skiptir þótt blaðið reyni að draga upp á dekk gamla utanríkisráðherra, sem eru pólitískir andstæðingar núverandi ráðherra.
Í dag slær Morgunblaðið því upp í fjórdálk á forsíðu að Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og Klausturgestur, telji að Þorgerður Katrín eigi að biðjast afsökunar á því að hafa tjáð sig um samskipti sín við hollenska forsætisráðherrann. Orðið á götunni er að það sé ótrúlega bíræfið af blaðinu að bjóða upp á ráðgjöf í mannasiðum og framkomu frá manni sem gekk fram af þjóðinni og gerði út af við pólitískan feril sinn með dólgshætti og kvenfyrirlitningu í alkunnri upptöku af fylliríi Miðflokksmanna á Klausturbar.
Þetta er sami Gunnar Bragi og skrifaði bréf til Evrópusambandsins án þess að hafa til þess stuðning Alþingis og tilkynnti að Ísland væri hætt aðildarviðræðum við ESB. Framkvæmdastjórn sambandsins tók reyndar ekki meira mark á þessu bréfi eins manns en svo að staðfest hefur verið að umsókn Íslands er í fullu gildi.
Orðið á götunni er að upphlaup Morgunblaðsins út af samskiptum utanríkisráðherra og forsætisráðherra Hollands sé lítið annað en stormur í vatnsglasi. Blaðið reynir að búa til eitthvað úr engu. Þorgerður hefur sagt að hollenski forsætisráðherrann hafi talað um varanlegar sérlausnir í sjávarútvegsmálum fyrir Ísland og hollenski ráðherrann segir að ekki verði um undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni að ræða. Þetta stangast ekki á vegna þess að varanleg yfirráð Íslands yfir staðbundnum fiskstofnum hér við land kalla ekki á undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB.
Orðið á götunni er að umræddur fréttaflutningur Morgunblaðsins sé gott dæmi um fullkomna málefnafátækt blaðsins og annarra sem mega ekki til þess hugsa að íslenska þjóðin fái í fyllingu tímans að taka afstöðu til fyrirliggjandi samnings. Vert er að spyrja í hverra þágu það sé að ljúka ekki aðildarviðræðum en ríghalda þess í stað í ríkjandi kerfi. Hverjir græða á því? Hverjir tapa á því?