Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Svangt barn borðar

Mynd
Mynd

Gamlir menn sitja oft á síðkvöldum og horfa um öxl og velta fyrir sér ævi sinni. Suma langar til að skrifa ævisögu sína en sem betur fer láta fæstir verða af því. Heimsmyndin hefur gjörbreyst á örfáum áratugum. Einu sinni áttu flestir foreldrar fjögur börn en núna eiga flest börn fjögur foreldri. Á liðinni öld var mataræði þjóðarinnar ákaflega fábrotið. Soðinn fiskur eða hvalkjöt á virkum dögum en lambalæri eða kótelettur á sunnudögum. Stundum voru á borðum bollur úr dularfullu hakki í litlausri sósu. Börn sem fúlsuðu við þessum matseðli voru kölluð matvönd. Þegar leitað var til læknis vegna lystarleysis þessara barna var svarið venjulega: „svangt barn borðar.“ Þetta þýddi að barnið ætti að éta það sem væri á borðum og það mundi sætta sig við matseðilinn þegar hungrið syrfi að. Þetta lærðu ungir læknanemar á kúrsus á barnadeild. „Ekki hlaupa eftir óþekkt og sérvisku.“

Uppeldi barna hefur líka gjörbreyst. Foreldrar eiga að nálgast börn eins og jafningja sína. Í staðinn fyrir reglur og aga, boð og bönn eru nú komnar endalausar samningaviðræður þar sem foreldrar láta venjulega í minni pokann.

Þetta er sérlega áberandi á matmálstímum. Börnin hafa tekið öll völd og nú er boðið upp á fjölbreyttan matseðil á flestum heimilum þar sem komið er til móts við sérkröfur barna og unglinga. Foreldrar þurfa að taka tillit til fæðuofnæmis og mataróþols sem enginn vissi að væru til fyrir 20-30 árum. Þrátt fyrir þennan fjölbreytta matseðil gengur ekki þrautalaust að fá börnin til að borða. Matmálstímar einkennast oft af fýlu, átökum og samningaþófi. Ekki bætir úr skák að ákveðinn hluti barna tekur örvandi ADHD-lyf sem hafa slæm áhrif á almenna matarlyst.

Þetta matarstríð hefur haft þær afleiðingar að matarmenning þjóðarinnar hefur tekið stórkostlegum framförum. Matseldin á mörgum heimilum er jafn umfangsmikil og á meðalstóru veitingahúsi. Fólk lærir að gera veganrétti og flóknar steikur úr sojabaunum sem mamma vissi ekki að væru til. Þessi matvendni barna hefur því haft jákvæð áhrif á fjölbreytni matseðils heimilina og matarúrval verslana sem bjóða uppá sósur og krydd frá öllum heimshornum. En í minningunni er soðin ýsa með kartöflum og hamsatólg það besta sem ég fæ en það er ekki á nokkrum matseðli lengur enda jafn óhollt og það er gott.