Eyjan

Orðið á götunni: Halla biður fólk að vanda sig – varar við röngum upplýsingum

Mynd

Orðið á götunni er að margir hafi farið fram úr sér í umræðunni um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Mest hefur borið á nei-sinnum í umræðunni fram til þessa og nýverið beittu Sjálfstæðisflokkurinn, Samtök atvinnulífsins og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, sér fyrir stofnun samtakanna Áfram Ísland, sem er klofningur úr Heimssýn. Forsvarsmenn hinna nýju samtaka óttuðust að málflutningur Heimssýnar væri svo neikvæður og niðurdrepandi að hann myndi skaða málstaðinn. Binda þeir vonir við að jákvæðari búningur um nei-ið virki betur á kjósendur.

Mikill kraftur hefur verið í baráttu nei-sinna, sem hamast við að halda því að fólki að atkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist um aðild að ESB en ekki framhald viðræðna til að þjóðin geti síðar tekið upplýsta afstöðu til aðildar á grundvelli fyrirliggjandi aðildarsamnings. Orðið á götunni er að starfsemi nei-sinna sé vel fjármögnuð og það séu sömu aðilar og fjármögnuðu heljarmikla auglýsingaherferð gegn leiðréttingu veiðigjalda í fyrra sem standi að baka nei-baráttunni.

Orðið á götunni er að baráttan fyrir nei-inu nú gangi út á hræðsluáróður, líkt og andstaðan við leiðréttingu veiðigjalda þegar fullyrt var að mjög hófleg leiðrétting myndi leiða til gjaldþrota í sjávarútvegi, skrúfa fyrir alla fjárfestingu í greininni, leggja sjávarpláss í eyði og þar fram eftir götunum. Nú er því ranglega haldið fram að framhald aðildarviðræðna þýði sjálfkrafa inngöngu Íslands í ESB, ekki verði aftur snúið.

Nei-sinnar beita fyrir sig m.a. þeim rökum að umsóknarríki frá Austur Evrópu hafi neyðst til að fara í víðtæka aðlögun að regluverki ESB samhliða aðildarviðræðum. Nei-sinnar segja sama munu gilda um Ísland. Þetta er fullkomin blekking af hálfu nei-sinna vegna þess að ísland hefur allt aðra stöðu en fyrrum austantjaldsríkin. Ísland er þróað lýðræðisríki með traust réttarfar og þarf því ekki að fara í aðlögun á þeim sviðum. Þá er Ísland í EES og hefur á síðustu rúmum 30 árum farið í gegnum gagngera aðlögun að regluverki ESB vegna þess að út á það gengur EES.

Í kvöldfréttum RÚV í gær var viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þar sem hún varaði við því að mikið væri um að rangar upplýsingar væru settar fram í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst nk. Brýndi hún fyrir fólki að vanda sig í umræðunni og gæta sín á að halla ekki réttu máli. Gott gæti verið að hugsa áður en fólk hefur upp raust sína.

Orðið á götunni er að erfitt sé að verjast þeirri hugsun að í orðum Höllu hafi falist gagnrýni á framgöngu forvera hennar í embætti, Ólafs Ragnars, sem hefur farið mikinn og fullyrt margt sem ekki stenst skoðun varðandiaðild að ESB og þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hefur Ólafur Ragnar raunar verið einn þeirra sem hvað lengst hefur gengið í að mála skrattann á vegginn til að hræða kjósendur.

Orðið á götunni er að samkrull Ólafs Ragnars með Sjálfstæðisflokknum og SA sé undarlegt bræðralag sem þurfi þó ekki endilega að koma á óvart, Ólafur Ragnar leiti ávallt í félagsskap þeirra sem ríkastir eru hverju sinni og sníði málflutning sinn að þeirra þörfum og hagsmunum.