Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að Íslendingar gætu tekið upp evru í fyrsta lagi eftir fimm ár. Þetta kemur fram í aðsendri grein þingmannsins í Morgunblaðinu í dag. Pawel spyr hvort ástæða sé til að hafna varanlegri lausn á vaxtavanda heimilanna bara af því hún er ekki skyndilausn:
„„Það er langur tími,“ munu einhverjir segja og kannski er það rétt. Tíminn gæti líka orðið lengri ef viðræður eða samþykktarferli dragast á langinn, eða ef okkur gengur illa að ná Maastricht-viðmiðunum. En hvað ef það tekur tíu ár? Er það ástæða til að hafna varanlegri lausn á vaxtavanda heimilanna, bara af því að hún er ekki skyndilausn?“
Pawel ber saman stöðu Íslands í vaxtamálum við feril Króatíu. Stýrvextir í Króatíu hafi verið mjög háir en lækkað hratt í aðildarferlinu að ESB. Króatar hafi síðan tekið upp evru árið 2023 og búi núna við 2-3% stýrivexti á meðan stýrivextir hér á landi séu yfir 7%.
Hann segir ferlið taka langan tíma en jákvæðar breytingar komi fram á þeirri leið:
„Ef við hefðum klárað okkar ferli á sínum tíma gætu íslenskir neytendur í dag tekið fasteignalán á 3-4% óverðtryggðum vöxtum. Við getum ekki breytt því sem gerðist fyrir fimmtán árum. En við getum haft áhrif á það sem gerist eftir fimmtán ár. Þá verða þau ungmenni sem í dag eru 10-15 ára að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaðnum. Við getum haft áhrif á vaxtakjör þessa hóps með ákvörðunum okkar í dag. Hvaða framtíð viljum við bjóða þeim?“