Eyjan

Orðið á götunni: Þægileg innivinna á þokkalegum launum

Mynd

Laun og önnur starfskjör sveitarstjórnarmanna eru gjarnan miðuð við tiltekið hlutfall þingfararkaups og starfskjör þingmanna. Í Reykjavík lætur nærri að föst laun borgarfulltrúa séu 2/3 hlutar þingfararkaups og nema nú tæplega 1,2 milljónum á mánuði. ofan á þetta bætist fastur starfskostnaður upp á ríflega 80 þúsund á mánuði. Þá eru greiddar nálega 290 þúsund krónur á mánuði fyrir setu í borgarráði. Einnig eru greiddar 290 þúsund krónur fyrir setu í þremur nefndum. Þá fá oddvitar flokkanna aukagreiðslu upp á 290 þúsund.

Orðið á götunni er að borgarfulltrúar njóti ríkulegs launaskriðs þingmanna á undanförnum árum.

Miðflokkurinn vann ágætan kosningasigur í Reykjavík í kosningunum í vor og fékk þrjá borgarfulltrúa. Þrátt fyrir þetta komst flokkurinn ekki í meirihluta. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, gerði hins vegar tillögu um að Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, yrði formaður stjórnar Orkuveitunnar. Þetta er óvenjulegt, þar sem Ari er í minnihluta, en Hildur byggði tillögu sína á því að Ari býr yfir mikilli reynslu af fyrirtækjarekstri.

Hjá borginni er Ari borgarfulltrúi, borgarráðsmaður og situr í Umhverfis-og skipulagsráði, auk þess að vera oddviti síns flokks.

Laun hans á mánuði og tengdar greiðslur frá borginni nema samtals rösklega tveimur milljónum króna. Ofan á þetta bætist stjórnarformennskan í Orkuveitunni.

Laun hans á mánuði þar eru um 500.000 kr. í stjórnarlaun ( tvöföld laun meðstjórnanda). Auk þess er hefð fyrir því að formaður stjórnar eigi sæti í starfskjaranefnd sem formaður og fái greitt fyrir það. Einnig má ætla að formaður taki sæti í einhverri af mörgum stjórnum dótturfélaga Orkuveitunnar og fái greitt fyrir það. Samtals gætu þessar tekjur numið um 800 þúsund krónum á mánuði.

Samkvæmt þessu eru tekjur Ara Edwald fyrir störf í borgarstjórn og borgarfyrirtæki nálega þrjár milljónir króna á mánuði.

Með því slagar hann hátt upp í starfskjör borgarstjóra sem munu vera um 3 milljónir króna á mánuði sem er hið sama og forsætisráðherra, sem er einnig með 3 milljónir króna á mánuði samkvæmt vef Alþingis. Aðrir ráðherrar eru með um 2.6 milljónir króna í laun á mánuði.

Þetta hljóta að teljast mjög góð starfskjör hjá oddvita Miðflokksins sem situr í valdalausum minnihluta í borginni – heldur betri starfskjör en fagráðherrar og rétt undir því sem sjálfur forsætisráðherrann og borgarstjóri hafa.

Orðið á götunni er að þetta hljóti að teljast þægileg innivinna á þokkalegum launum.