Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Hægra heilahvelið

Mynd
Mynd/Getty
Mynd

Í ellinni leita á mann dapurlegar minningar svo sem um knattspyrnuferilinn hjá Fram sem lauk í ruslflokki félagsins áður en hann byrjaði.

Ég reyndi líka fyrir mér í dansskóla hjá Hermanni Ragnars og frú í Skátaheimilinu. En mér tókst engan veginn að finna takt í tónlistinni. Ég ruglaðist meira að segja á vinstri og hægri svo að Hermann gat sagt uppáhaldsbrandarann sinn: „Ef þið vitið ekki muninn á hægri og vinstri þá er hægri fóturinn sá sem þið heilsið með.“ Eftir dapurlegan vetur var dansnáminu lokið.

Tónlistarnámið misheppnaðist líka. Píanókennari við Lokastíg gafst upp eftir nokkra mánuði. Sama gerðist í skátakórnum sem söng á sumardaginn fyrsta í Fríkirkjunni. Stjórnandinn sendi mig heim á fyrstu æfingunni. Eftir annað lagið benti hann á mig og sagði: „Þú mátt fara.“ Við horfðumst í augu eina örstund og ég fann að þessi maður hafði enga samúð með þeim sem ekki héldu lagi. Ég gekk niður af kórloftinu með tárin í augunum og kom aldrei aftur.

Í skíðaferðum með Lauganesskóla og gaggó tóku skíðin alltaf völdin og fóru í sitthvora áttina sem endaði með harðri byltu í snjófölinni.

Í sundkennslu í gömlu sundlaugunum var ég alltaf í lífshættu. Eiríkur gamli sundkennari hafði áhyggjur af mér enda var ég alltaf við það að drukkna. Oftar en einu sinni sendi hann einhvern sundmanninn út í djúpu laugina til að sækja mig þar sem ég buslaði skelfingu lostinn í hálfu kafi.

Ég reyndi að slá í gegn í Skólablaðinu í MR sem skáld en það mistókst líka. Mig vantaði algjörlega brageyra.

Löngu síðar áttaði ég mig á því fótbolti, tónlist, sund, dans og skáldskapur eru öll staðsett í hægra heilahvelinu. Alla þessa beisku ósigra æskuáranna mátti rekja til þess að hafa fæðst með vanþroskað hægra heilahvel. Þetta er viðvarandi vandamál. Ég er enn að reyna að hafa gaman af klassískri tónlist en finnst hún ótrúlega leiðinleg. Sama máli gegnir um djúpvitur kvæði sem ég skil engan veginn. Ég er löngu hættur að reyna að stíga dans eða synda.

Því miður er ekkert við þessu að gera. Eftir nokkur ár verður hægt að panta nýtt og betra hægra heilahvel í gervigreindarappi frá Apple Store en ég missi sennilega af því sakir aldurs.