Eyjan

Orðið á götunni: Senn dregur til tíðinda í Kviku banka

Mynd
Mynd/Reitir

Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku banka, lætur af störfum í árslok og leit er hafin að nýjum forstjóra. Ljóst er orðið að ekkert verður af sameiningu Arion banka og Kviku, en viðræðum um sameiningu var hætt eftir að Samkeppniseftirlitið gerði margvíslegar athugasemdir við hana í apríl sl. Jafnframt voru athugasemdir eftirlitsins þess eðlis að þær útiloka sameiningu Kviku við aðra stóra viðskiptabanka hér á landi.

Stjórnar bankans bíður því það verkefni að  finna öflugan leiðtoga sem getur leitt Kviku sem sjálfstæðan banka inn í framtíðina. Kvika er minnsti viðskiptabankinn hér á landi og fókusinn hefur verið á eignastýringu og fjárfestingabankastarfsemi fremur en hefðbundna viðskiptabankastarfsemi.

Kvika hefur einnig sérstöðu meðal íslenskra banka því að bankinn er með öfluga starfsemi í Bretlandi sem býður upp á mikla vaxtarmöguleika.

Orðið á götunni er að Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Kviku banka, hugsi sér gott til glóðarinnar og hafi augastað á bankastjórastöðunni. Sigurður hefur um árabil stýrt SI en á þeim tíma hefur hann sóst eftir álitlegum stöðum úti í atvinnulífinu og fjármálageiranum en ekki fengið. Hann sóttist t.d. fast eftir stöðu seðlabankastjóra þegar Ásgeir Jónsson var skipaður árið 2019.

Orðið á götunni er að eigendur Kviku banka hafi ekki hug á að ráða Sigurð. Hann þekkir bankann að sönnu, hafandi starfað þar áður en hann var ráðinn til SI, en eigendur vilja mann með meiri og djúpstæðari bankareynslu, helst alþjóðlega, og þar vantar upp á hjá Sigurði.

Orðið á götunni er að áhrifamiklir hluthafar í Kviku banka horfi mjög til þess að fá Guðna Aðalsteinsson, forstjóra fasteignafélagsins Reita, sem bankastjóra. Guðni tikkar í öll boxin sem menn eru að horfa til. Hann hefur áralanga og víðtæka bankareynslu og hefur starfað lengi í bæði London og Frankfurt hjá alþjóðlegum fjármálafyrirtækjum og getið sér góðan orðstír. Þá stýrði hann um nokkurra ára skeið Doha Bank, einum stærsta bankanum í Katar.

Önnur nöfn hafa heyrst nefnd en orðið á götunni er að senn geti dregið til tíðinda varðandi bankastjórastöðuna í Kviku banka.