Eyjan

Svarthöfði skrifar: Það eina sem getur bjargað Morgunblaðinu er JÁ þann 29. ágúst

Mynd

Eitthvað virðist titringur vera farinn að aukast fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Áberandi hefur verið hve áköfum nei-sinnum, sem fullyrða að ekki sé um neitt að semja, hægt sé að finna aðildarskilmálana í stöðluðu formi á netinu, svipað og vörulýsingu í netverslun Temu, og ljóst sé að aðild Íslands að ESB fylgi landauðn og ánauð. Mest hefur þetta birst í Morgunblaðinu, sem reglulega hendir í leiðara eða aðrar ritstjórnargreinar um hið „brennandi hús“ í Brussel og efnahagslega hnignun Evrópu.

Svarthöfði getur ekki neitað því að hann veltir stundum fyrir sér hvers vegna nei-sinnar vilja ekki að við fáum að kjósa um framhald viðræðnanna. Ef fullvissan er alger um að samningur um aðild verði hreint ömurlegur fyrir Ísland er einfaldlega engin hætta á ferð. Þjóðin mun vitaskuld hafna vonlausum samningi. Nú, ef nei-sinnar hafa sitt fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni er málið dautt, aðildarviðræðum verður ekki haldið áfram.

Í ljósi ákefðarinnar í að segja nei við viðræðum læðist sá grunur að Svarthöfða að nei-sinnar séu bara alls ekki jafn vissir og þeir segjast vera um að samningurinn verði svona hrikalega lélegur. Jafnvel búist þeir við að samningurinn verði Íslendingum svo hagfelldur að þeir taki honum fagnandi og samþykki hann.

Morgunblaðið hefur hvergi dregið af sér í baráttunni gegn því að þjóðarviljinn komi fram um framhald aðildarviðræðna. Er ekki ofsagt að segja blaðið hreinlega undirlagt af nei-áróðri. Í sjálfu sér þarf það ekki að koma á óvart. Morgunblaðið er í eigu aðila sem eru fyrir löngu komnir inni í Evrópusambandið í öllum praktískum skilningi. Þeir hafa sínar tekjur í evrum og fjármagna sig í evrum á vöxtum sem eru um þriðjungur þess sem krónubundnir Íslendingar þurfa að borga af sínum lánum. Þessu forskoti vilja eigendur Morgunblaðsins halda, nema hvað!

Þannig liggur það klárlega fyrir að verði jákvæðnin ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni fær Morgunblaðið endurnýjaðan tilgang í þágu eigenda sinna. Þá verður sett á fullt stím í baráttunni fyrir nei í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni og Svarthöfði hefur tröllatrú á því að nei-menn muni engin áhrif láta hafa á sig hvort samningurinn verður góður eða vondur.

Ef neikvæðnin ræður 29. ágúst blasir hins vegar við að eigendur Morgunblaðsins hafa unnið fullnaðarsigur. Þá verða engar viðræður og ESB-málið bara komið út af borðinu um langa framtíð. Svarthöfði sér í hendi sér að þau úrslit yrðu mikill hvalreki fyrir þá sem hafa þurft að punga út hundruðum milljóna á ári hverju til að halda úti Morgunblaðinu í eilífri baráttu fyrir hagsmunum sínum. Þess gerðist þá ekki þörf lengur. Ekki þyrfti lengur að henda fúlgum fjár í að halda úti áróðursriti – ekki þegar fullur sigur er unninn.

Svarthöfða þykir því einsýnt að dagar Morgunblaðsins eru senn taldir ef það verður nei sem kemur upp úr kjörkössunum 29. ágúst næstkomandi. Það eina sem getur bjargað blaðinu – alla vega um sinn – er að já verði niðurstaðan. Því liggur beint við fyrir velunnara Morgunblaðsins að velja já í lok ágúst.