Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Þingvallatónleikar

Mynd
Skjáskot/Fréttastofa RÚV
Mynd

Hér á árum áður ferðaðist ég mikið til fjarlægra landa. Í þessum ferðum notaði ég  leiðsögubækur frá Lonely Planet. Fyrirtækið hafði gefið út lesefni um fjölmörg lönd þar sem áhugaverðum stöðum var lýst, mælt með söfnum eða náttúruundrum. Lýsingar voru venjulega hófstilltar og hlutlausar en höfundarnir lýstu eftir athugasemdum frá ferðalöngum. Mér enn minnisstætt hversu mikið barst frá manni sem kallaði sig Mark frá Ástralíu. Hann hafði allt á hornum sér og lenti stöðugt í ógöngum. Leigubílstjórar svindluðu á honum, leiðsögumenn sendu hann í vitlausa átt og hann var alltaf óheppinn með veður og hótel. Mark fékk reglulega matareitrun á fínum veitingastöðum. Allt sem gat farið úrskeiðis gerði það hjá aumingja Mark.

Laugardaginn 20. júní var haldin mikil útihátíð að Þingvöllum. Veðrið lék við mannskapinn og margar hljómsveitir spiluðu án afláts í 11 klukkustundir. Átján þúsund manns virtust una sér vel enda ekki við öðru að búast á Þingvöllum í glaðasólskini. Heiðblár fjallahringur myndaði umgjörð kringum viðburðinn og Öxarárfoss hjalaði eins og barn baksviðs.

Fjölmiðlar voru þó óþreytandi við að finna einhvern Mark sem hafði allt á hornum sér. Vísi tókst að finna konu sem þurfti að bíða lengi í matarröðinni og sá ekki nógu vel á sviðið. Hún sagði að allt of margir gestir væru á staðnum. Fyrir tónleikana höfðu fjölmiðlar fundið óánægt fólk sem vildi fara með nesti og brennivín með sér inn á svæðið. Sumir kvörtuðu undan því að fá ekki að hafa með sér regnhlíf í allri sólarglennunni. Einhverjir vældu yfir því að umferðin gengi ekki nægilega hratt fyrir sig.

Hlutverk fjölmiðla hlýtur að vera að segja frá almennri upplifun af viðburðinum en ekki að finna þennan eina sem aldrei er ánægður. Slíkir einstaklingar virðast þó eiga greiða leið að fjölmiðlunum. Sjálfur er ég orðinn dauðleiður á þessum neikvæða og kvartandi Mark sem lifir lífinu skuggameginn á götunni. Má hann ekki bara vera ósáttur og reiður og bera sjálfur og einn ábyrgð á því? Gefið okkur frí frá þessu endlausa tuði frá Félagi kvartsárra Íslendinga. Þessi fjölmiðlaathygli gerir ekkert annað en að magna upp sjálfsvorkunn og óánægju þessa fólks.