Nýr meirihluti í borginni hóf uppsagnir og tilfærslur með hávaða og yfirlýsingum í vikunni.
Hildur borgarstjóri vill sýna harðlínunni í Sjálfstæðisflokknum að tiltekt sé hafin.
Orðið á götunni er að hér sé meira um að ræða umbúðir en innihald. Mannréttindaskrifstofan er lögð niður eins og flestir hafa lagt til og bent á. Það eru því ekki mikil tíðindi en gæti sparað borginni 150 m.kr. útgjöld á ári þegar aðgerðin verður komin í gagnið. Að leggja niður samskipta- og upplýsingadeild sparar lítið ef verkefnin verða færð undir aðrar deildir borgarinnar – úr einum vasa í annan.
Svo á að útvista verkefnum. Ætli það fáist frítt?
Varla. Þá þarf borgin að greiða fyrir veitta þjónustu samkvæmt reikningum á háu tímakaupi sem verður mun dýrara. Hvar birtist þá sparnaður? Væntanlega bíða einhverjir traustir flokksmenn eftir að taka við ábatasömum verkefnum. Molar gætu fallið til.
Nýlega kom fram að halli á rekstri borgarinnar nam 4,5 milljörðum á fyrstu mánuðum þessa árs.
Lítils háttar sparnaður og tilfærslur milli deilda segja ekkert á móti því – en hjálpa umræðunni í 2-3 daga.
Því er haldið áfram með útspil. Tilkynnt var í gær að skipa ætti nefnd til að „semja“ við olíufélögin vegna bensínstöðvalóða sem borgin og nærliggjandi sveitarfélög eru löngu búin að semja um og staðfesta byggingarheimildir á.
Ætli borgin stefni að því að upphefja þinglýstar eignir þessara félaga til að heimta af þeim meira fé, það er að skattleggja þessi félög afturvirkt?
Orðið á götunni er að með því legðist lítið fyrir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem segist vera á móti aukinni skattlagningu.
Til þessa verkefnis hefur Óttar Pálsson, hrl., verið ráðinn. Hann er talinn einn færasti og dýrasti lögmaður landsins. Þetta verkefni mun sannarlega skila borginni auknum milljóna kostnaði þó alls óvíst sé um viðbótartekjur.
Þó að búið sé að draga niður fána Palestínu við ráðhúsið, stöðva Kaffistofu Samhjálpar og leggja niður Mannréttindaskrifstofuna ásamt því að færa nokkra starfsmenn til þarf ekki að búast við því að harðlínan sé sátt.
Orðið á götunni er að Miðflokksarmur Sjálfstæðisflokksins sé fúll og láti til sín taka nema Hildur nái fljótt útspilum sem telja.