Eyjan

Orðið á götunni: Glámskyggni útgerðarforstjóra ríður ekki við einteyming

Mynd

Fyrir ári voru margir með böggum hildar yfir því að íslenskur sjávarútvegur væri að falli kominn og að leiðrétting ríkisstjórnarinnar á veiðigjöldum kynni að vera kornið sem fyllti mælinn. Gunnþór Ingason, forstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað, sem þá var nýtekinn við formennsku í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, sagði blákalt að ekkert annað væri nú í boði en að segja upp fólki og loka vinnslueiningum. Útséð væri um frekari fjárfestingu í sjávarútvegi – hún myndi stöðvast vegna ofurgjaldtöku af greininni.

Og viti menn, ekki leið á löngu þar til Binni í Vinnslustöðinni, Binni blanki eins og hann er oft kallaður, tilkynnti lokun fiskvinnslu og sölu á togara. Vinnsluna og togarann hafði hann keypt skömmu áður til að koma höndum yfir aflaheimildir og alltaf hafði blasað við að hann myndi losa sig við skipið og vinnsluna – Vinnslustöðin átti nefnilega fyrir bæði skip og vinnslu og vantaði ekkert nema þennan viðbótarkvóta – en auðvitað kenndi Binni veiðigjöldunum um.

Um svipað leyti og Binni sagði upp fólki og auglýsti vinnslu og skip til sölu tilkynnti Brim hins vegar um að það hefði fest kaup á Lýsi hf. fyrir hátt í 30 milljarða. Orðið á götunni er að mörgum hafi þá verið mjög létt, enda ljóst að fjárfesting í sjávarútvegi væri þá ekki alveg dauð og grafin. Eftir áreiðanleikakönnun lækkaði kaupverðið reyndar í 20 milljarða, en það er samt alveg slatti.

Orðið á götunni er að heldur hafi hýrnað yfir landanum eftir því sem leið á veturinn. Hvert sjávarútvegsfyrirtækið á fætur öru tilkynnti metgróða í hverjum ársfjórðungi. Einhverjir urðu áhyggjufullir um áramót en þá tók leiðrétting veiðigjaldanna gildi. Þetta reyndust óþarfa áhyggjur. Hagnaðurinn hélt áfram að hækka. Áfram methagnaður í hverjum ársfjórðungi. Samherji græddi 8,5 milljarða á síðasta ári, bara hér innanlands, og horfur á mörkuðum góðar og útlit fyrir áframhaldandi methagnað, þrátt fyrir leiðréttingu veiðigjalda.

Ísfélagið í Vestmannaeyjum hagnaðist um 5,4 milljarða í fyrra, sem þótti nokkuð gott. Á fyrsta ársfjórðungi í ár nam hagnaðurinn 2,8 milljörðum og stefnir því í miklu betra ár en í fyrra. Og Síldarvinnslan hans Gunnþórs, sem hagnaðist um 8,2 milljarða á síðasta ári, hagnaðist um 5,1 milljarð bara á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026, eftir að veiðigjaldaleiðréttingin sem Gunnþór sagði að myndi leggja sjávarútveginn í rúst tók gildi.

Brim, sem keypti Lýsi í fyrra, hagnaðist um tæpa 9 milljarða í fyrra og á fyrsta ársfjórðungi nam hagnaðurinn 3,5 milljörðum. Þá keypti Brim líka útgerð og vinnslu í Stykkishólmi. Þegar horft er til þess og gríðarlegrar fjárfestingar t.d. Samherja í landeldi má með sanni segja að allar áhyggjur af því að leiðrétting veiðigjalda myndi ganga af íslenskum sjávarútvegi dauðum eru argasti óþarfi.

Orðið á götunni er að gleðilegt sé að áhyggjur forsvarsmanna í íslenskum sjávarútvegi af alvarlegum afleiðingum leiðréttingar veiðigjalda skuli hafa verið óþarfar með öllu.

Orðið á götunni er hins vegar að dómsdagsspádómar þeirra sömu forsvarsmanna hljóti að vekja áhyggjur af því hvort þeir séu raunverulega hæfir til að gera raunhæfar rekstraráætlanir, þegar horft er til þess að nú stefnir í að árið í ár verði eitthvert hið allra besta sem íslenskur sjávarútvegur hefur upplifað um langt skeið.