Eyjan

Orðið á götunni: Jakob Frímann er sigurvegari

Mynd
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo (Mynd: Skjáskot RÚV/Ragnar Visage) og Jakob Frímann Magnússon.

Hátíðin Bergmál á Þingvöllum í gær er afrek sem fer í annála.

Hundruð manna lögðu sitt af mörkum. Listamenn, umsjónarmenn, lögregla – og ekki síst frumkvöðlarnir Kaleo og Jakob Frímann Magnússon – til þess að 20 þúsund gestir tækju þátt. Öll skipulagning var góð og bros skein úr hverju andliti í sólskininu á Þingvöllum.

Dagskráin var af dýrari endanum, hver stórstjarnan á fætur annarri steig á svið og breiddin var slík að um sannkallaða fjölskylduhátíð var að ræða. Þarna gátu allir fundið eitthvað fyrir sig. Afi og amma gátu rifjað upp Stuðmannahoppið, allir elska Helga Björns og KK og af nógu var að taka fyrir yngstu kynslóðina. Að ógleymdum Kaleo, sem eru náttúrlega á heimsmælikvarða.

Orðið á götunni er að Jakob Frímann Magnússon hafi hér unnið stórsigur. Hann fór fyrir glæsilegum hópi og talið er að aðrir en hann hefðu ekki náð í land með þetta risaverkefni.

Forseti Íslands og forsætisráðherra mættu sem sýnir velvilja núverandi stjórnvalda gagnvart því að efla Þingvelli sem óumdeildan samkomustað þjóðarinnar á stórum stundum. Það er fagnaðarefni fyrir íslenskan almenning. Til eru þeir sem mega ekki til þess hugsa að íslenskur almenningur hafi greiðan aðgang að þjóðgarðinum, telja að betur fari á því að Þingvellir verði fyrir elítuna, fyrir hina fáu og verðugu, ekki pupulinn.

Orðið á götunni er að fýlupúkarnir þjáist nú, Hjörleifur Guttormsson, Björn Bjarnason og Hannes Hólmsteinn.